Tove skrifaði:
Hvor mye garn går med om man heller vil bruke Alaska eller Nepal garn?
19.09.2024 - 14:51DROPS Design svaraði:
Hei Tove. Denne jakken er strikket med 2 garn, DROPS Soft-Tweed og DROPS Kid-Silk, som tilsvarer garngruppe D. DROPS Alaska og DROPS Nepal tilhører garngruppe C. 17 masker x 22 pinner = 10 x 10 cm. I oppskriften 252-39 er strikkefastheten oppgitt til 16 masker x 21 pinner. Men om du allikevel vil teste det ut, vil det gå mellom 650-1100 gram Nepal eller Alaska, avhengig av hvilken str. du ønsker å strikke. mvh DROPS Design
23.09.2024 - 11:04
Christa Harrison skrifaði:
Scarlett
11.08.2024 - 19:44
Christa Harrison skrifaði:
Scarlett
11.08.2024 - 19:44
Stefanie skrifaði:
Einfach schön und etwas verspielt. Die Jacke wirkt durch den wellenförmigen Ärmel sehr leicht
11.08.2024 - 09:04
Régine skrifaði:
Noblesse
09.08.2024 - 07:57
Silver Petunia Cardigan#silverpetuniacardigan |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Soft Tweed og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, tvöföldum kanti í hálsmáli, i-cord og pífu. Stærð S - XXXL.
DROPS 252-39 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan. Á UNDAN A.1: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR A.1: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 4 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-8½-7½-8-8-8½ cm á milli hverra hnappagata. Neðsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við og fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 92-92-96-100-108-108 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Soft Tweed og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Skiptið yfir á hringprjón 4 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið 1 lykkju í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið), þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist 6 cm (= ca hæð á kanti í hálsmáli þegar hann er brotinn tvöfaldur). Í lok hvorra af næstu 2 umferðum eru fitjaðar upp 5 lykkjur fyrir kant að framan = 102-102-106-110-118-118 lykkjur í umferð. Prjónið síðan stroff eins og áður, en ystu 6 lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar eins og KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Prjónið þar til kantur í hálsmáli mælist 12 cm – endið með eina umferð frá röngu. Setjið eitt merki innan við kant að framan í annarri hliðinni á stykkinu, stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið fyrstu umferð frá réttu – fellt er af fyrir HNAPPAGAT í þessari umferð – lesið útskýringu að ofan: Prjónið 6 kantlykkjur að framan, 6-6-6-6-10-10 lykkjur sléttprjón, A.1 (= vinstra framstykki), 14-14-14-14-14-14 lykkjur sléttprjón (= ermi), A.1, 10-10-14-18-18-18 lykkjur sléttprjón, A.1 (= bakstykki), 14-14-14-14-14-14 lykkjur sléttprjón (= ermi), A.1, 6-6-6-6-10-10 lykkjur sléttprjón og 6 kantlykkjur að framan (= hægra framstykki). Prjónið 1 umferð frá röngu. Haldið áfram í sléttprjóni, kant að framan og A.1 eins og útskýrt er að ofan og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan og á eftir hverju A.1 (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið mynstur eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið umferð 1 og 2 alls 12-11-16-20-18-16 sinnum (= 24-22-32-40-36-32 prjónaðar umferðir) = 198-190-234-270-262-246 lykkjur í umferð. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Haldið áfram í sléttprjóni, kant að framan og A.1 eins og áður og aukið síðan út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan og á eftir hverju A.1 (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið mynstur eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. UMFERÐ 3 (= rétta): Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan 1. mynstureiningu af A.1, á eftir 2. mynstureiningu af A.1, á undan 3. mynstureiningu af A.1 og á eftir 4. mynstureiningu af A.1. þ.e.a.s. einungis er aukið út á framstykkjum og bakstykki, ekki er aukið út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið mynstur eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið umferð 1 til 4 alls 5-7-4-3-5-8 sinnum (= 20-28-16-12-20-32 prjónaðar umferðir = 5-7-4-3-5-8 útaukningar á ermum og 10-14-8-6-10-16 útaukningar á framstykkjum/bakstykki) = 258-274-282-306-322-342 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út 22-25-24-26-28-32 sinnum á framstykkjum/bakstykki og 17-18-20-23-23-24 sinnum á ermum. Prjónið síðan í sléttprjóni, A.1 og kant að framan eins og áður, án þess að auka út, þar til stykkið mælist ca 20-24-25-27-29-31 cm frá merki mitt að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 44-47-46-48-54-58 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 48-50-54-60-60-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-10-10-14-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 74-80-82-90-94-102 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 48-50-54-60-60-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-10-10-14-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 44-47-46-48-54-58 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 174-186-194-206-230-246 lykkjur. Prjónið sléttprjón, A.1 og kant að framan eins og áður þar til stykkið mælist 41-43-45-46-48-50 cm frá merki mitt að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT er aukið út um 68-68-80-88-88-100 lykkjur jafnt yfir í umferð (ekki er aukið út yfir kanta að framan og ekki yfir 6-6-10-10-14-14 lykkjur á milli A.1 í hvorri hlið) = 242-254-274-294-318-346 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – munið eftir útaukningu og passið uppá að stroffið gangi jafnt upp í samanber A.1) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 10-10-10-11-11-11 cm fellið af. Peysan mælist 51-53-55-57-59-61 cm frá merki mitt að framan og ca 55-57-59-61-63-65 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 48-50-54-60-60-62 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-10-10-14-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-56-64-70-74-76 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-6-10-10-14-14 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn í umferð – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, er lykkjum fækkað mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 6-6-3½-3-2½-2 cm alls 5-5-8-10-11-12 sinnum = 44-46-48-50-52-52 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 37-35-33-32-30-29 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-6-8-6-8-8 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 52-52-56-56-60-60 lykkjur. Prjónið stroff í 3 cm. Haldið áfram með stroff, en prjónið A.2 í hverri brugðinni einingu (= pífa). Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 104-104-112-112-120-120 lykkjur í umferð. Fellið af. Ermin mælist ca 44-42-40-39-37-36 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið stroffið niður með nokkrum sporum. Saumið saman op við miðju framan í kanti að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #silverpetuniacardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 252-39
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.