Bat skrifaði:
Wow, this sweater is STUNNING. Would this be a suitable project for someone trying color work (like the box detail) for the first time?
24.09.2024 - 01:29
Astrid skrifaði:
Mystic Rocks
11.08.2024 - 12:11
Ini skrifaði:
Lovely pattern and colors!!!
10.08.2024 - 10:41
Susanna skrifaði:
Kachelofen
09.08.2024 - 20:27
Jo skrifaði:
Spectrum boxing
08.08.2024 - 15:50
Cornelis skrifaði:
Le dessin me fait penser à l'artiste peintre Escher
08.08.2024 - 15:35
Cobblestones#cobblestonessweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, norrænu mynstri, röndum í litatónum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð XS - XXL.
DROPS 254-1 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. RENDUR: Rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir) og rendurnar eru grunnlitur á flíkinni. ATH: Rendurnar eru prjónaðar í cm-máli og koma ekki til með að ganga jafnt upp með heilli mynstureiningu A.1 til A.3. Prjónið þannig: 10-11-12-12-12-13 cm með 1 þræði Alpaca í litnum ljós perlugrár og 1 þræði Kid-Silk í litnum ljós himinblár. 6-6-6-6-6-6 cm með 1 þræði Alpaca í litnum ljós blár og 1 þæði Kid-Silk í litnum ljós himinblár. 6-6-6-6-7-7 cm með 1 þræði Alpaca í litnum ljós blár og 1 þræði Kid-Silk í litnum blár vindur. 6-6-6-6-6-6 cm með 1 þræði Alpaca í litnum þoka og 1 þræði Kid-Silk í litnum blár vindur. 6-6-6-6-7-7 cm með 1 þræði Alpaca í litnum ljós nougat og 1 þræði Kid-Silk í litnum blár vindur. 6-6-6-6-6-6 cm með 1 þræði Alpaca í litnum ljós nougat og 1 þræði Kid-Silk í litnum karamella. Prjónið síðan að loka máli með 1 þræði Alpaca í litnum kamel og 1 þræði Kid-Silk í litnum karamella. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eins og útskýrt er að neðan. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á UNDAN LASKALYKKJU: Gerið uppslátt um hægri prjón með því að leggja þráðinn yfir hægri prjón frá bakhlið að framhlið, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt í fremri lykkjubogann. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI Á EFTIR LASKALYKKJU: Gerið uppslátt um hægri prjón með því að leggja þráðinn framan við prjóninn og síðan að draga þráðinn frá framhlið að bakhlið, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt í aftari lykkjubogann. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 168 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 32) = 5,25. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn - svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur að röngu og saumaður niður. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-88-88-104-104-104 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Alpaca í litnum ljós perlugrár og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum ljós himinblár (= 2 þræðir). Skiptið yfir á hringprjón 3 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff þannig: * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram með stroff í 11-11-11-13-13-13 cm. Síðar á að brjóta kant í hálsmáli inn að röngu og við frágang þá verður kantur í hálsmáli ca 5-5-5-6-6-6 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 32-32-32-36-36-36 lykkjur í umferð (= mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru sett 4 merkiþræðir í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkiþræðirnir eru settir á milli 2 lykkja slétt og þessar 2 lykkjur er nú kallaðar fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni með grunnlit/lit í röndinni sem er prjónuð. Setjið 1. merkiþráðinn í byrjun umferðar, teljið 20 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 24-24-24-32-32-32 lykkjur (= framstykki), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 20 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju. Það eru 24-24-24-32-32-32 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merkiþræði (= bakstykki). Prjónið síðan RENDUR og MYNSTUR og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig: UMFERÐ 1: Skiptið yfir á hringprjón 4,5, byrjið fyrstu röndina, prjónið 1 lykkju í sléttprjóni með grunnlit (= 1 laskalykkja), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1, A.2, A.3 yfir lykkjur á ermi, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við 2 laskalykkjurnar, aukið út 2-2-2-6-6-6 lykkjur jafnt yfir á milli 2. og 3. merkiþráða og prjónið samtímis A.1, A.2 alls 2-2-2-4-4-4 sinnum, A.3 yfir lykkjur á framstykki, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við 2 laskalykkjurnar, prjónið A.1, A.2, A.3 yfir lykkjur á ermi, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við 2 laskalykkjurnar, aukið út 2-2-2-6-6-6 lykkjur jafnt yfir á milli 4. og 1. merkiþráða og prjónið samtímis A.1, A.2 alls 2-2-2-4-4-4 sinnum, A.3 yfir lykkjur á bakstykki, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu á undan síðustu lykkju í umferð og prjónið síðustu lykkju í sléttprjóni (= 1 laskalykkja) = 100-100-100-124-124-124 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón í röndum og mynstur eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar inn jafnóðum inn í mynstrið eins og útskýrt er í mynsturteikningu (munið eftir að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er í LASKALÍNA). UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón í röndum og mynstur eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón í röndum og mynstur eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar jafn óðum inn í mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu (munið eftir að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er í LASKALÍNA). Prjónið UMFERÐ 3 og 4 alls 11-14-17-20-23-20 sinnum (= 22-28-34-40-46-40 prjónaðar umferðir) = 188-212-236-284-308-284 lykkjur. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. ATH: Í hvert skipti sem A.1 til A.3 er prjónað 1 sinni á hæðina, er pláss fyrir 2 mynstureiningar fleiri með A.2 á breiddina. Haldið áfram í sléttprjóni í röndum og mynstur eins og áður og aukið síðan út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á eftir 2. merkiþræði, á undan 3. merkiþræði, eftir 4. merkiþræði og á undan 1. merkiþræði, þ.e.a.s. einungis er aukið út á framstykki og bakstykki, ekki er aukið út yfir ermar (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur (munið eftir að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er í LASKALÍNA). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 12-12-12-9-9-12 sinnum (= 24-24-24-18-18-24 prjónaðar umferðir) = 236-260-284-320-344-332 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 24-27-30-30-33-33 sinnum á framstykki/bakstykki og 12-15-18-21-24-21 sinnum á ermum. Mynstrið endar / byrjar annað hvort með heilli eða hálfri mynstureiningu A.2 við hliðina á hverri laskalínu. Prjónið síðan í sléttprjóni og mynstur eins og áður, án þess að auka út, þar til stykkið mælist 21-23-25-25-28-28 cm frá merki mitt að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 44-50-56-62-68-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-10-10-10-22 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 74-80-86-98-104-104 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 44-50-56-62-68-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-10-10-10-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 74-80-86-98-104-104 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig og byrjun umferðar er í skiptingunni á milli bakstykkis og nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið mitt undir ermi. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 168-180-192-216-228-252 lykkjur. Prjónið sléttprjón í röndum og mynstur eins og áður (A.2 er einnig prjónað yfir 10-10-10-10-10-22 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið mitt undir ermum, þannig að mynstrið gangi jafnt upp hringinn á öllu fram- og bakstykki), þar til stykkið mælist ca 43-45-47-48-50-52 cm frá merki mitt að framan – endið þegar prjónuð hefur verið 1 umferð með einum lit eftir heila rúðu á hæðina. Skiptið yfir á hringprjón 3 og notið 1 þráð Alpaca í litnum kamel og 1 þráð Kid-Silk í litnum karamella (= 2 þræðir) og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 32-32-32-36-36-44 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 200-212-224-252-264-296 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm er fellt af. Peysan mælist ca 49-51-53-55-57-59 cm frá merki mitt að framan og ca 54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 44-50-56-62-68-62 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-10-10-10-10-22 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-60-66-72-78-84 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 10-10-10-10-10-22 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Haldið áfram með rendur og mynstur frá berustykki umferðina hringinn – mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi þegar lykkjum er fækkað mitt undir ermi eins og útskýrt er að neðan, en mynstrið gengur jafnt upp þegar úrtöku er lokið. Þegar ermin mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 3-2-2-1½-1½-1 cm alls 3-6-6-9-9-12 sinnum = 48-48-54-54-60-60 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist ca 40-39-38-36-34-35 cm frá skiptingunni – endið á sama hátt og á fram- og bakstykki. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) með 1 þræði Alpaca í litnum kamel og 1 þræði Kid-Silk í litnum karamella JAFNFRAMT er aukið út um 8-8-10-10-12-12 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 56-56-64-64-72-72 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af. Ermin mælist ca 46-45-44-43-41-42 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cobblestonessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 254-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.