DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Alpaca yarn
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 20240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Cobblestones

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, norrænu mynstri, röndum í litatónum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð XS - XXL.

Velja stærð:
DROPS 254-1

#cobblestonessweater

DROPS Design: Mynstur z-1035
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS -S - M - L - XL - XXL

GARN:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-100-150-150-150 gr litur 100, natur
100-100-100-100-100-100 gr litur 302, kamel
50-100-100-100-100-100 gr litur 2020, ljós nougat
50-50-50-100-100-100 gr litur 9020, ljós perlugrár
50-50-50-50-100-100 gr litur 6205, ljós blár
50-50-50-50-50-50 gr litur 9021, þoka
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-50-50-50-50 gr litur 01, natur
50-50-50-50-50-50 gr litur 07, ljós himinblár
50-50-50-50-50-50 gr litur 43, blár vindur
50-50-50-50-50-50 gr litur 50, karamella

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
18 lykkjur á breidd og 24 umferðir á hæð með sléttprjóni með 1 þræði í hvorri tegund með prjóna nr 4,5 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 20240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.
Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

RENDUR:
Rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir) og rendurnar eru grunnlitur á flíkinni. ATH: Rendurnar eru prjónaðar í cm-máli og koma ekki til með að ganga jafnt upp með heilli mynstureiningu A.1 til A.3. Prjónið þannig:
10-11-12-12-12-13 cm með 1 þræði Alpaca í litnum ljós perlugrár og 1 þræði Kid-Silk í litnum ljós himinblár.
6-6-6-6-6-6 cm með 1 þræði Alpaca í litnum ljós blár og 1 þæði Kid-Silk í litnum ljós himinblár.
6-6-6-6-7-7 cm með 1 þræði Alpaca í litnum ljós blár og 1 þræði Kid-Silk í litnum blár vindur.
6-6-6-6-6-6 cm með 1 þræði Alpaca í litnum þoka og 1 þræði Kid-Silk í litnum blár vindur.
6-6-6-6-7-7 cm með 1 þræði Alpaca í litnum ljós nougat og 1 þræði Kid-Silk í litnum blár vindur.
6-6-6-6-6-6 cm með 1 þræði Alpaca í litnum ljós nougat og 1 þræði Kid-Silk í litnum karamella.
Prjónið síðan að loka máli með 1 þræði Alpaca í litnum kamel og 1 þræði Kid-Silk í litnum karamella.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eins og útskýrt er að neðan.
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á UNDAN LASKALYKKJU:
Gerið uppslátt um hægri prjón með því að leggja þráðinn yfir hægri prjón frá bakhliðframhlið, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt í fremri lykkjubogann. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI Á EFTIR LASKALYKKJU:
Gerið uppslátt um hægri prjón með því að leggja þráðinn framan við prjóninn og síðan að draga þráðinn frá framhlið að bakhlið, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt í aftari lykkjubogann. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 168 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 32) = 5,25.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 5. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn - svo ekki myndist gat.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf.
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður.
Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur að röngu og saumaður niður.
Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 88-88-88-104-104-104 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Alpaca í litnum ljós perlugrár og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum ljós himinblár (= 2 þræðir).
Skiptið yfir á hringprjón 3 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur).
Prjónið stroff þannig: * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
Haldið svona áfram með stroff í 11-11-11-13-13-13 cm. Síðar á að brjóta kant í hálsmáli inn að röngu og við frágang þá verður kantur í hálsmáli ca 5-5-5-6-6-6 cm.
Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 32-32-32-36-36-36 lykkjur í umferð (= mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki.

BERUSTYKKI:
Nú eru sett 4 merkiþræðir í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkiþræðirnir eru settir á milli 2 lykkja slétt og þessar 2 lykkjur er nú kallaðar fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni með grunnlit/lit í röndinni sem er prjónuð.
Setjið 1. merkiþráðinn í byrjun umferðar, teljið 20 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 24-24-24-32-32-32 lykkjur (= framstykki), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 20 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju. Það eru 24-24-24-32-32-32 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merkiþræði (= bakstykki).

Prjónið síðan RENDUR og MYNSTUR og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig:
UMFERÐ 1:
Skiptið yfir á hringprjón 4,5, byrjið fyrstu röndina, prjónið 1 lykkju í sléttprjóni með grunnlit (= 1 laskalykkja), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1, A.2, A.3 yfir lykkjur á ermi, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við 2 laskalykkjurnar, aukið út 2-2-2-6-6-6 lykkjur jafnt yfir á milli 2. og 3. merkiþráða og prjónið samtímis A.1, A.2 alls 2-2-2-4-4-4 sinnum, A.3 yfir lykkjur á framstykki, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við 2 laskalykkjurnar, prjónið A.1, A.2, A.3 yfir lykkjur á ermi, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við 2 laskalykkjurnar, aukið út 2-2-2-6-6-6 lykkjur jafnt yfir á milli 4. og 1. merkiþráða og prjónið samtímis A.1, A.2 alls 2-2-2-4-4-4 sinnum, A.3 yfir lykkjur á bakstykki, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu á undan síðustu lykkju í umferð og prjónið síðustu lykkju í sléttprjóni (= 1 laskalykkja) = 100-100-100-124-124-124 lykkjur.
UMFERÐ 2:
Prjónið sléttprjón í röndum og mynstur eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar inn jafnóðum inn í mynstrið eins og útskýrt er í mynsturteikningu (munið eftir að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er í LASKALÍNA).
UMFERÐ 3:
Prjónið sléttprjón í röndum og mynstur eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri).
UMFERÐ 4:
Prjónið sléttprjón í röndum og mynstur eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar jafn óðum inn í mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu (munið eftir að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er í LASKALÍNA).
Prjónið UMFERÐ 3 og 4 alls 11-14-17-20-23-20 sinnum (= 22-28-34-40-46-40 prjónaðar umferðir) = 188-212-236-284-308-284 lykkjur. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu.
ATH: Í hvert skipti sem A.1 til A.3 er prjónað 1 sinni á hæðina, er pláss fyrir 2 mynstureiningar fleiri með A.2 á breiddina.

Haldið áfram í sléttprjóni í röndum og mynstur eins og áður og aukið síðan út fyrir laskalínu þannig:
UMFERÐ 1:
Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á eftir 2. merkiþræði, á undan 3. merkiþræði, eftir 4. merkiþræði og á undan 1. merkiþræði, þ.e.a.s. einungis er aukið út á framstykki og bakstykki, ekki er aukið út yfir ermar (= 4 lykkjur fleiri).
UMFERÐ 2:
Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur (munið eftir að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er í LASKALÍNA).
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 12-12-12-9-9-12 sinnum (= 24-24-24-18-18-24 prjónaðar umferðir) = 236-260-284-320-344-332 lykkjur í umferð.

Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 24-27-30-30-33-33 sinnum á framstykki/bakstykki og 12-15-18-21-24-21 sinnum á ermum. Mynstrið endar / byrjar annað hvort með heilli eða hálfri mynstureiningu A.2 við hliðina á hverri laskalínu.
Prjónið síðan í sléttprjóni og mynstur eins og áður, án þess að auka út, þar til stykkið mælist 21-23-25-25-28-28 cm frá merki mitt að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Setjið fyrstu 44-50-56-62-68-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-10-10-10-22 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 74-80-86-98-104-104 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 44-50-56-62-68-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-10-10-10-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 74-80-86-98-104-104 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig og byrjun umferðar er í skiptingunni á milli bakstykkis og nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið mitt undir ermi.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 168-180-192-216-228-252 lykkjur. Prjónið sléttprjón í röndum og mynstur eins og áður (A.2 er einnig prjónað yfir 10-10-10-10-10-22 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið mitt undir ermum, þannig að mynstrið gangi jafnt upp hringinn á öllu fram- og bakstykki), þar til stykkið mælist ca 43-45-47-48-50-52 cm frá merki mitt að framan – endið þegar prjónuð hefur verið 1 umferð með einum lit eftir heila rúðu á hæðina.
Skiptið yfir á hringprjón 3 og notið 1 þráð Alpaca í litnum kamel og 1 þráð Kid-Silk í litnum karamella (= 2 þræðir) og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 32-32-32-36-36-44 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 200-212-224-252-264-296 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm er fellt af.
Peysan mælist ca 49-51-53-55-57-59 cm frá merki mitt að framan og ca 54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl.

ERMAR:
Setjið 44-50-56-62-68-62 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-10-10-10-10-22 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-60-66-72-78-84 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð mitt í 10-10-10-10-10-22 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn.
Haldið áfram með rendur og mynstur frá berustykki umferðina hringinn – mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi þegar lykkjum er fækkað mitt undir ermi eins og útskýrt er að neðan, en mynstrið gengur jafnt upp þegar úrtöku er lokið.
Þegar ermin mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 3-2-2-1½-1½-1 cm alls 3-6-6-9-9-12 sinnum = 48-48-54-54-60-60 lykkjur.
Prjónið síðan þar til ermin mælist ca 40-39-38-36-34-35 cm frá skiptingunni – endið á sama hátt og á fram- og bakstykki.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) með 1 þræði Alpaca í litnum kamel og 1 þræði Kid-Silk í litnum karamella JAFNFRAMT er aukið út um 8-8-10-10-12-12 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 56-56-64-64-72-72 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af. Ermin mælist ca 46-45-44-43-41-42 cm frá skiptingunni.

FRÁGANGUR:
Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli

Mynstur

slétt lykkja með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk í grunnlit/lit í rönd sem er prjónuð<br />
<br />
= slétt lykkja með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk í grunnlit/lit í rönd sem er prjónuð

slétt lykkja með 1 þræði Alpaca í litnum natur og 1 þræði Kid-Silk í litnum natur<br />
= slétt lykkja með 1 þræði Alpaca í litnum natur og 1 þræði Kid-Silk í litnum natur
Diagram for DROPS 254-1
Diagram for DROPS 254-1

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cobblestonessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 254-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (16)

country flag Sytske skrifaði:

Kan ik deze trui ook met alpaca silk (C) breien? En hoe reken ik dan benodigde hoeveelheid uit?

13.06.2025 - 23:11

country flag Birgitte Olesen skrifaði:

Er vild med Drops Air🎉ville det være Muligt at strikke “Coblestones” sweater I det?

17.03.2025 - 18:58

DROPS Design svaraði:

Hei Birgitte. Cobblestones sweater (254-1) er strikket i DROPS Air + DROPS Kid-Silk. mvh DROPS Design

24.03.2025 - 09:05

country flag Anna Nørskov skrifaði:

Hej. Jeg mangler et nøgle Kid silk nr. 43 helst med lot N129553. Er der nogle der har en stor rest eller nogen der ved, hvor jeg kan få dette lot nr.

25.01.2025 - 19:50

DROPS Design svaraði:

Hei Anna. Vi selger bare kilovis til butikker. Men ta kontakt med en annen butikk / en nettbutikk og hør om de har denne innfargingen. Du finner alle butikker under: Finn en butikk! Ellers så anbefaler jeg deg å bruke diverse sosiale medier for håndarbeid (f.eks DROPS Workshop), der er det mange brukere som hjelper hverandre med etterlysning av garn og partinr. mvh DROPS Design

27.01.2025 - 11:12

country flag Ingrid Van Tuyl skrifaði:

De grootste maat XXL geeft minder steken dan de maat XL. Heel vreemd, klopt dat??

09.01.2025 - 11:21

DROPS Design svaraði:

Dag Ingrid,

Soms is dit het geval, maar dan wordt dat vaak op een andere plek gecompenseerd. Vaak zijn de mouwen ook minder lang in de grotere maten, omdat de schouders breder zijn.

11.01.2025 - 14:01

country flag Petra Bähr skrifaði:

Bei der ersten Runde soll man 2 Mal zwei zusätzliche Maschen (neben Den Raglanzunahmen) aufnehmen. So kommt man dann auch auf die Summe (bei mir 100) Aber wie passen diese dann in das Muster in Runde 3? Danke!

08.12.2024 - 22:06

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Bähr, die neuen Maschen werden bei der nächsten Runde wie in Diagram A.1 und A.3 gestrickt. Viel Spaß beim Stricken!

09.12.2024 - 09:22

country flag Gydda skrifaði:

Hvis jeg vil strikke denne i en str l, og i 2 tråde alpaca, skal der så dobles op i alle farver for at der er nok ?

25.11.2024 - 10:50

DROPS Design svaraði:

Hej Gydda, ja så dobler du garnforbruget i DROPS Alpaca (i stedet for at bruge DROPS Kid-Silk) :)

28.11.2024 - 14:13

country flag Sally Cooper skrifaði:

I love this. Would it work with a green colour way? Sea fog instead of fog & sage or would it be pistachio instead of light blue? Then for the kid silk; could it be North Sea instead of blue wind and pistachio, peppermint, mint or sage instead of blue wind? I can only send for yarn online, so it would be helpful if someone could tell me if the colours work. Thank you

02.11.2024 - 20:41

DROPS Design svaraði:

Dear Sally, colour combinations will usually depend on the knitter's taste; you may want it to have a lighter or darker hue, a greener or bluer tone, e.t.c. Also, the colourway may also look slightly different depending on the dyelot of the yarns, the lighting of the photo or the screen where you are seeing the combination. We recommend you contact your usual DROPS store so that they may better advise you on how the colours match. If you can only order online, they may be able to still help you by sending you photos of the colours and yarns together, to check if they match well. Happy knitting!

03.11.2024 - 20:18

country flag Irene Harnesk Lundqvist skrifaði:

Hej Håller på att sticka denna tröja Har beställt Alpacka natur och Kid-silk natur som det står i beskrivningen om vilket garn man ska ha. men den färgen finns ju inte på stick beskrivningen där det räknas upp hur många cm man ska sticka av varje färg. Var ska den färgen var vad är skrivet fel? mvh Irene

21.10.2024 - 16:04

DROPS Design svaraði:

Hej Irene. Om du ser på diagrammen längst ner på mönstret så ser du var du ska använda det. Mvh DROPS Design

23.10.2024 - 13:45

country flag Marianne Maj skrifaði:

Jeg er ved at strikke model 254-1 Er der ikke fejl i ærmegabets opslag? 10 masker ialle størrelser på nær den største, der har 22. Jeg strikker str. L og har valgt 16 masker, som er mere passende.

01.10.2024 - 09:00

DROPS Design svaraði:

Hei Marianne. Skal være riktig slik det står i oppskriften. Du kan velge at annet maskeantall, men da er det ikke sikkert mønstret og målene vil stemme med resten av oppskriften. mvh DROPS Design

15.10.2024 - 07:35

country flag Marianne Maj skrifaði:

Jeg er ved at strikke model 254-1 og tror der er en fejl i ærmegabets opslag. Alle størrelser skal slå 10 masker op på nær den sidste som slår22 masker op. Det er da et stort spring. Jeg har slået 16 masker op til størelse L. Det er da mere passende.

01.10.2024 - 08:55