DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Alpaca yarn
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 16170.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Winter Pearl Sweater

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, laskalínu og köðlum. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 255-1

#winterpearlsweater

DROPS Design: Mynstur z-1042
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL – XXL – XXXL
Vegna mynsturs kemur peysan til með að dragast saman. Mál í teikningu sýnir peysuna þegar hún liggur flöt og er ekki teygð út. Prjónaðu þá stærð sem þú prjónar vanalega.

GARN:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-400-450-500-550-600 gr litur 100, natur
Og:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-175-175-200-225-250 gr litur 56, marsipan

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: Lengd 40 cm og 80 cm.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
27 lykkjur á breidd og 24 umferðir á hæð með mynstri og 2 þráðum með prjóna nr 4,5 = 10 x 10 cm.
Jafngildir ca: 18 lykkjur á breidd og 24 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum með prjóna nr 4,5 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 16170.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.
A.3 er alltaf talið sem 8 lykkjur.

LASKALÍNA:
Aukið er út fyrir laskalínu á undan / á eftir 1 lykkju brugðið + 1 lykkja slétt + 1 lykkja brugðið (= laskalína).
Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Útaukningin er teiknuð í mynsturteikningu.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermi):
Lykkjum er fækkað í hvorri hlið um 1 lykkju slétt, fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman (= 2 lykkjur færri). Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í heilan kaðal eru prjónaðar slétt.

-----------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf.
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 108-108-108-120-120-132 lykkjur á hringprjón 3 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið stroff eins og útskýrt er í A.1 yfir allar lykkjur, prjónið eins og útskýrt er í fyrstu 4 umferðum í A.1. Prjónið stroff þar til stykkið mælist 9-9-9-11-11-11 cm, kantur í hálsmáli er brotinn niður tvöfaldur síðar. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið síðustu umferð í A.1 (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð) = 144-144-144-160-160-176 lykkjur. Setjið 1 merki eftir fyrstu 52-52-52-57-57-61 lykkjur í umferð (= ca mitt að framan), stykkið er mælt frá þessu merki.

BERUSTYKKI:
Haldið áfram hringinn með mynstur þannig: Takið upp 1 lykkju frá umferðinni að neðan (allar lykkjur sem eru teknar upp frá umferðinni að neðan eru prjónaðar snúnar brugðið), 1 lykkja slétt (= laskalína), takið upp 1 lykkju frá umferðinni að neðan, A.2, prjónið A.3 yfir næstu 24 lykkjur, prjónið fyrstu 3 lykkjur í A.3, A.4 (= ermi), takið upp 1 lykkju frá umferðinni að neðan, 1 lykkja slétt (= laskalína), takið upp 1 lykkju frá umferðinni að neðan, A.2, prjónið A.3 yfir næstu 32-32-32-40-40-48 lykkjur, prjónið fyrstu 3 lykkjur í A.3, A.4 (= framstykki), takið upp 1 lykkju frá umferðinni að neðan, 1 lykkja slétt (= laskalína), takið upp 1 lykkju frá umferðinni að neðan, A.2, prjónið A.3 yfir næstu 24 lykkjur, prjónið fyrstu 3 lykkjur í A.3, A.4 (= ermi), takið upp 1 lykkju frá umferðinni að neðan, 1 lykkja slétt (= laskalína), takið upp 1 lykkju í umferðinni að neðan, A.2, prjónið A.3 yfir næstu 32-32-32-40-40-48 lykkjur, prjónið fyrstu 3 lykkjur í A.3, A.4 (= bakstykki). ATH! Passið uppá að mynstrið passi yfir lykkjur frá stroffi. Útaukning fyrir laskalínu er teiknuð inn í mynsturteikningu og teknar eru upp 8 auka lykkjur = 160-160-160-176-176-192 lykkjur í umferð.

LASKALÍNA:
Aukið síðan út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Aukið er út hvoru megin við 1 lykkju brugðið + 1 lykkju slétt + 1 lykkju brugðið í hverri laskalínu.
Í hvert skipti sem A.2 og A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, er pláss fyrir 2 nýjar mynstureiningar af A.3 á breidd.

Haldið áfram með mynstur og útaukningu þar til A.2, A.3 og A.4 er prjónað alls 3-4-4-4-5-5 sinnum á hæðina. Nú eru 344-408-408-424-488-504 lykkjur í umferð. Nú er einungis aukið út á framstykki / bakstykki, útaukning á ermum er nú lokið. Prjónið 2 mynstureiningar til viðbótar á hæðina með útaukningu eins og útskýrt er í A.2 og A.4 á framstykki / bakstykki, á ermum er síðan prjónað áfram með mynstur án útaukninga. Það eru nú 408-472-472-488-552-568 lykkjur í umferð. Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 25-30-30-30-35-35 cm frá merki mitt að aftan.
Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
Jafnframt sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Haldið eftir 2 fyrstu lykkjum í umferð (tilheyrir bakstykki), setjið næstu 81-97-97-97-113-113 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 13-13-13-13-13-21 nýjar lykkjur í umferð (í hlið undir ermi), prjónið næstu 123-139-139-147-163-171 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 81-97-97-97-113-113 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 13-13-13-13-13-21 nýjar lykkjur í umferð (í hlið undir ermi), prjónið 121-137-137-145-161-169 lykkjur eins og áður (bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 272-304-304-320-352-384 lykkjur. Haldið áfram að prjóna mynstur yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm frá merki mitt að framan.
Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff eins og útskýrt er í A.5 í 6 cm, passið uppá að það verði 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt yfir kaðal og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir hinar lykkjurnar. Fellið af. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá merki mitt að framan og 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 81-97-97-97-113-113 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 13-13-13-13-13-21 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi + 1 lykkja aukalega í hvorri hlið = 96-112-112-112-128-136 lykkjur. Setjið einn merkiþráð mitt undir ermi. Haldið áfram að prjóna mynstur hringinn yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í ca hverjum 4-2-2-2½-1-1 cm alls 8-14-13-11-18-20 sinnum = 80-84-86-90-92-96 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 37-32-34-34-30-30 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff eins og útskýrt er í A.5 í 6 cm, passið uppá að það verði 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt yfir kaðal og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir hinar lykkjurnar. Fellið af.
Ermin mælist ca 43-38-40-40-36-36 cm frá skiptingunni.

FRÁGANGUR:
Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu á stykki og saumið niður, passið uppá að saumurinn sé teygjanlegur og ekki of stífur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 08.10.2024
Mynsturteikning A.2 hefur verið uppfærð.

Mynstur

slétt lykkja = slétt lykkja
brugðin lykkja = brugðin lykkja
lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru = lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru
þessi rúða sýnir enga lykkju þar sem búið er að fækka um þessa lykkju áður, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu = þessi rúða sýnir enga lykkju þar sem búið er að fækka um þessa lykkju áður, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, það á að myndast gat = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, það á að myndast gat
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn eins og útskýrt er í mynsturteikningu, það á ekki að myndsast gat <br />
<br />
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn eins og útskýrt er í mynsturteikningu, það á ekki að myndsast gat

Diagram for DROPS 255-1
Diagram for DROPS 255-1
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 255-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (158)

country flag Agnieszka skrifaði:

Hi, oczka na reglan za pierwszym razem dodajemy poza schematem a2 i a4 jeszcze 8 oczek przy prawym oczku reglanowym czyli przy np rozmiarze M będzie to w sumie 16 oczek, ale już w kolejnych rzędach podążamy tylko za schematem a2 i a4 czyli co drugi rząd od teraz będzie nam przybywać po 8oczek?

26.01.2025 - 17:40

DROPS Design svaraði:

Witaj Agnieszko, dalej dodajesz oczka zgodnie ze schematami A.2 i A.4. Są okrążenia, w których dodasz 8 oczek, ale są i takie gdzie będzie dodanych 16 oczek (rząd 5 i 7). Pozdrawiamy!

27.01.2025 - 14:36

country flag Petra skrifaði:

Eine kleine Anmerkung noch zu meiner Frage: Ich stricke Größe S

24.01.2025 - 15:17

country flag Petra skrifaði:

Laut Anleitung habe ich bei der letzten Reihe vor der Passe 144 Maschen auf der Nadel. Stricke ich nun die Anleitung der Passe fehlen mir genau 8 Maschen, da die Anleitung genau über 152 Maschen geht!!? Stimmt die Anleitung nicht oder habe ich einen Denkfehler!!?? Ich habe bestimmt schon 5x Aufgeribbelt bis ich drauf gekommen bin!!

24.01.2025 - 15:02

DROPS Design svaraði:

Liebe Petra, man wird 2 Maschen bei jeder Raglanlinie zunehmen: 1 M vor + 1 M nach der rechten Masche (so sind es insgesamt 3 Maschen für die Raglanlinie) = 8 Zunahmen + 1 Masche in jedem A.2 + 1 Masche in jedem A.4 = 8 Zunahmen, so sind es 144 + 8+8=160 Maschen.Viel Spaß beim Stricken!

27.01.2025 - 07:59

country flag Pia skrifaði:

Liebes Drops-Team, ich habe eine Frage zu Ihrer Anleitung beim Übergang von Kragen zu Passe: In der Anleitung steht, dass ich 1 Masche aus der darunterliegenden Runde auffassen soll. Meine Frage ist, ob ich dies direkt nach dem ursprünglichen Rundenanfang mache oder erst die 52 Maschen stricke, und den Markierer für die vordere Mitte setze? Und dann die Masche aufnehme? Liebe Grüße Vielen Dank für Ihre Hilfe und die tollen Anleitungen! Mit freundlichen Grüßen

21.01.2025 - 15:40

DROPS Design svaraði:

Liebe Pia, der Markierer nach den ersten 52 Maschen gilt nur zum messen, dh die 1. Runde beginnt wie zuvor. Diese Maschen muss man hier zunehmen damit 1 Masche rechts vom Bündchen, 1 links (Zunahme), 1 rechts (wie zuvor), 1 links (Zunahme) wird. Viel Spaß beim Stricken!

22.01.2025 - 09:47

country flag Caroline skrifaði:

Bonjour, Les dimensions de l'échantillon sont-elles données avant ou après blocage? Je vous remercie.

20.01.2025 - 19:40

DROPS Design svaraði:

Bonjour Caroline, nous ne bloquons pas nos vêtements, si toutefois vous pensez qu'il pourrait y avoir une différence dans votre échantillon avant/après, vous pouvez essayer. Bon tricot!

21.01.2025 - 09:41

country flag Ingunn Lund skrifaði:

Hei! Jeg er ferdig m halskant og skal begynne på bærestykke. 1.omg er grei, har økt 16m. Skal det videre økes 8 ekstra m i tillegg til raglan? Hva m 5. og 7. omg der er det 2 kast i diagrammet. Jeg forstår heller ikke hvordan raglanøkning er tegnet inn i diagrammet når økningene der viser kast og ikke plukke opp m på forrige omg. Mvh Ingunn

09.01.2025 - 18:11

DROPS Design svaraði:

Hei Ingunn. Etter 1. omgang skal det kun økes til raglan (tegnet inn i diagrammene, A.2 / A.4). Der det i diagrammene, A.2 / A.4 er 2 kast, så strikkes disse kastene vridd, slik at det ikke blir hull. mvh DROPS Design

13.01.2025 - 13:42

country flag Bita skrifaði:

Bonjour, Peut on tricoter ce pull uniquement avec drops Alpaca, sans utiliser le drops silk, et réaliser ce modèle ?

07.01.2025 - 22:34

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Bita, vous pouvez retirer la laine DROPS Kid-Silk, mais il vous faudra toujours tricoter avec 2 fils du groupe de fils A, par exemple 2 fils Alpaca (au lieu d'1 fil Alpaca + 1 fil Kid-Silk) pour avoir la bonne tension et donc les bonnes mesures finales sans avoir à tout recalculer sur votre tension. Bon tricot!

08.01.2025 - 07:39

country flag Christina Simonsen skrifaði:

Hejsa Nu har jeg lavet kraven og har lavet den første del af bærestykket der står jeg skal have 176 masker men jeg har kun 148 masker og startede med 160 masker inden jeg startede på bærestykket jeg forstår ikke hvordan jeg kan have fære masker

07.01.2025 - 20:36

DROPS Design svaraði:

Hei Christina. Vi skal hjelpe deg så godt vi kan, men fint om du har oppgi hvilken størrelse du stikker. mvh DROPS Design

13.01.2025 - 12:37

country flag Kichi Brammer skrifaði:

Jeg skal igang med første omgang efter jeg har fulgt beskrivelsen “bærestykke” - altså række 2 i diagrammerne A2-3-4.. Mine 3 første masker på omgangen er raglan fra forrige omgang. Hvad gør jeg med disse 3 masker? Derudover forstår jeg ikke helt raglan beskrivelsen. Tages der ud på hver omgang ved de 4 raglan udover at man følger diagram A2-3-4?

05.01.2025 - 22:55

DROPS Design svaraði:

Hei Kichi. Vi skal hjelpe deg så godt vi kan, men hvilken str. strikker du / hvor mange masker har du på pinnen når du starter på bærestykket? mvh DROPS Design

13.01.2025 - 09:28

country flag Bibi skrifaði:

Als je 13 steken moet vermeerder onder de mouw, kom ik niet uit het met patroon. Ik brei in maat M/L en de steken kloppen allemaal. Maar kom niet uit het patroon

05.01.2025 - 20:30

DROPS Design svaraði:

Dag Bibi,

Het kan inderdaad zijn dat je niet uitkomt onder de mouw. Probeer tot zover mogelijk midden onder de mouw het patroon door te laten lopen en de steken die niet in het patroon passen brei je in tricotsteek.

19.02.2025 - 09:47