DROPS Children 49 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!
Product image DROPS Daisy yarn
DROPS Daisy
100% Ull
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10890.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Echo River

Prjónuð peysa úr DROPS Daisy eða DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, köðlum, áferðamynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 252-16

#echoriversweater

DROPS Design: Mynstur da-019
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS DAISY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
550-600-650-750-800-900 gr litur 02, marsipan

Eða notið:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
600-650-750-800-900-950 gr litur 0206, hveiti

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni með prjóna nr 4 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Daisy
DROPS Daisy
100% Ull
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10890.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7.
Lykkjufjöldinn í A.1 er breytilegur, en er alltaf talinn sem 6 lykkjur.
Lykkjufjöldinn í A.6 er breytilegur, en er alltaf talinn sem 45 lykkjur.
Finndu þína stærð og byrjaðu á örinni sem tilgreind er (á við A.4, A.5a og A.7a).

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan:
Á UNDAN LASKALYKKJU:
Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur.
Á EFTIR LASKALYKKJU:
Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merki þannig:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með merki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt (merkið situr í þessari lykkju), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 106-110-114-118-122-130 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Daisy eða DROPS Lima. Skiptið yfir á hringprjón 3 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Setjið 1 merki í byrjun umferðar og prjónið í hring þannig: Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir fyrstu 5-5-5-7-7-7 lykkjur, prjónið A.1, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir næstu 47-49-51-53-55-59 lykkjur, prjónið A.1, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir næstu 42-44-46-46-48-52 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 8 cm – stillið af að síðasta umferð sé önnur umferð í A.1.
Síðar á að brjóta kant í hálsmáli inn að röngu og við frágang þá verður kantur í hálsmáli ca 4 cm.
Prjónið næstu umferð þannig: Prjónið brugðið yfir fyrstu 5-5-5-7-7-7 lykkjur, prjónið A.1 eins og áður, prjónið brugðið yfir næstu 47-49-51-53-55-59, prjónið A.1 eins og áður, prjónið brugðið yfir síðustu 42-44-46-46-48-52.
Prjónið síðustu umferð í kanti í hálsmáli þannig: Prjónið fyrstu 5-5-5-7-7-7 lykkjur slétt, prjónið A.1 eins og áður, prjónið slétt yfir næstu 47-49-51-53-55-59 lykkjur jafnframt er aukið út um 16-14-20-22-20-16 lykkjur jafnt yfir þær (= 63-63-71-75-75-75 lykkjur), prjónið A.1 eins og áður, prjónið næstu 5-5-5-7-7-7 lykkjur slétt, prjónið síðustu 37-39-41-39-41-45 lykkjur slétt JAFNFRAMT er aukið út um 4-2-4-6-4-0 lykkjur jafnt yfir þær (= 41-41-45-45-45-45 lykkjur) = 126-126-138-146-146-146 lykkjur.
Byrjum umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 43-43-47-51-51-51 lykkjur í umferð (= ca miðja að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki.

BERUSTYKKI:
Prjónið síðan með hringprjón 4. Nú eru 4 merki sett í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í slétta lykkju og þessar lykkjur kallast nú fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni.
Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 14-14-14-18-18-18 lykkjur (= ermi, A.1 situr í miðju af þessum lykkjum).
Setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 53-53-61-61-61-61 lykkjur (= framstykki).
Setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 14-14-14-18-18-18 lykkjur (= ermi, A.1 situr í miðju af þessum lykkjum).
Setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru eftir 41-41-45-45-45-45 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki).
Nú er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 laskalykkjur – lesið útskýringu að ofan. Fyrsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið laskalykkju, * prjónið A.2, prjónið A.3 yfir næstu 0-0-0-2-2-2 lykkjur, prjónið A.1, prjónið A.4 – byrjið á tilgreindri ör (= ermi) *.
Prjónið laskalykkju, prjónið A.5a, A.6, A.7a, prjónið laskalykkju (= framstykki), prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar (= ermi).
Prjónið laskalykkju, prjónið A.2, haldið áfram með A.3 / perluprjón að næstu laskalykkju, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu (= bakstykki).
Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð – þegar mynsturteikning A.2 og A.4 hefur verið prjónuð til loka á hæðina, heldur útaukning áfram og perluprjón / A.3 á sama hátt yfir ermar og bakstykki og nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Þegar mynsturteikning A.5a og A.7a hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.5x og A.7x yfir þessar lykkjur JAFNFRAMT sem síðan er aukið út með A.5b og A.7b hvoru megin við framstykki. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu.
Aukið út fyrir laskalínu alls 29 sinnum í öllum stærðum (= 58 umferðir prjónaðar) = 368-368-376-384-384-384 lykkjur.
Nú er útaukningu fyrir ermar lokið, en haldið áfram að auka út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki í annarri hverri umferð 0-2-4-6-8-12 sinnum til viðbótar (= 4 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð) = 368-376-392-408-416-432 lykkjur í umferð. Þegar útaukningu fyrir A.5b og A.7b er lokið (fjöldi útaukninga í hverri stærð er merkt í mynsturteikningu), prjónið A.3 / perluprjón eins og áður yfir þessar lykkjur.
Prjónið síðan mynstur eins og áður án þess að auka út þar til stykkið mælist 21-23-24-25-27-30 cm frá merki eftir kanti í hálsmáli – stillið af að síðasta umferð sé síðasta umferð í A.1.
Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
JAFNFRAMT þegar næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið laskalykkju slétt (= tilheyrir bakstykki), setjið næstu 72-72-72-76-76-76 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 3-7-11-15-23-27 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 123-127-135-139-143-151 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 72-72-72-76-76-76 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 3-7-11-15-23-27 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 100-104-112-116-120-128 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 230-246-270-286-310-334 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykkinu (= í miðju af 3-7-11-15-23-27 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið slétt fram að merki, umferðin byrjar í lykkju með merki og prjónað er í hring. Nýjar lykkjur undir ermi ásamt laskalykkjum eru prjónaðar inn í mynstur A.3 / perluprjón (mynstrið gengur upp undir ermi á milli framstykkis og bakstykkis).
Haldið áfram að prjóna mynstur eins og áður hringinn á öllu fram- og bakstykkinu þar til stykkið mælist 46-48-50-50-52-54 cm frá merki mitt að framan – stillið af að síðasta umferð sé annað hvort 3. eða 8. umferð í A.6.
Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 22-26-28-32-38-46 lykkjur jafnt yfir bakstykki í umferð 1 = 252-272-298-318-348-380 lykkjur.
Þegar stroff mælist 5-5-5-6-6-6 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Peysan mælist 51-53-55-56-58-60 cm frá merki mitt að framan og ca 54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl.

ERMAR:
Setjið 72-72-72-76-76-76 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 3-7-11-15-23-27 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 75-79-83-91-99-103 lykkjur.
Setjið 1 merki í miðju af 3-7-11-15-23-27 nýjum lykkjum undir ermi – umferðin byrjar í þessari lykkju og þessi lykkja er alltaf prjónuð í sléttprjóni.
Stillið af að mynstur A.3 og A.1 haldi áfram eins og áður frá berustykki yfir á ermi – mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp undir ermi, en það er mikilvægt að mynstrið verði samhverft hvoru megin við A.1.
Prjónið í hring með mynstur eins og áður – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2-2-2-2-3-2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig:
Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 3-2½-2½-2-1½-1½ cm alls 11-12-13-16-18-19 sinnum = 53-55-57-59-63-65 lykkjur.
Prjónið síðan þar til ermin mælist 38-36-36-35-34-31 cm frá skiptingunni.
Prjónið næstu umferð þannig:
Prjónið 24-25-26-27-29-30 lykkjur slétt JAFNFRAMT er aukið út um 5-4-5-6-6-7 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 29-29-31-33-35-37 lykkjur), prjónið A.1 eins og áður, prjónið 23-24-25-26-28-29 lykkjur slétt JAFNFRAMT er aukið út um 5-6-7-6-6-7 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 28-30-32-32-34-36 lykkjur) = 63-65-69-71-75-79 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir fyrstu 29-29-31-33-35-37 lykkjur, prjónið A.1, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir síðustu 28-30-32-32-34-36 lykkjur. Haldið svona áfram hringinn með stroff þar til stroffið mælist 5-5-5-6-6-6 cm – stillið af að síðasta umferð sé síðasta umferð í A.1.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 43-41-41-41-40-37 cm frá skiptingunni.

FRÁGANGUR:
Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

slétt lykkja = slétt lykkja
brugðin lykkja = brugðin lykkja
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt – svo það myndist gat = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt – svo það myndist gat
lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru
þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu = þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn eins og útskýrt er í mynstri – svo ekki myndist gat = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn eins og útskýrt er í mynstri – svo ekki myndist gat
setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
finndu þína stærð í mynstri og byrjið frá þeirri umferð = finndu þína stærð í mynstri og byrjið frá þeirri umferð
Diagram for DROPS 252-16
Diagram for DROPS 252-16
Diagram for DROPS 252-16
Diagram for DROPS 252-16
Diagram for DROPS 252-16
Diagram for DROPS 252-16

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #echoriversweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 252-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (25)

country flag Conny skrifaði:

Die Farbe des Pullovers vom letzten Foto sieht etwas anders aus als die vorherigen Bilder. Sind das unterschiedliche Garne? Und wenn ja, welche - die Farbnummern? Ich habe mir drops daisy in Farbe Marzipan gekauft, die sieht aber ganz anders als auf den Fotos aus. Es ist nicht so hell, sondern ist für mich ein beige, also wesentlich dunkler im Farbton.

17.04.2025 - 21:46

DROPS Design svaraði:

Liebe Conny, die Farbwiedergabe ist von vielen Faktoren abhängig - Lichtverhältnisse bei der Fotoaufnahme (das letzte Foto wurde z.B. nicht draußen, sondern drinnen aufgenommen, es ist aber die gleiche Farbe), Farbeinstellungen des Bildschirms etc. Die gezeigten Farben stimmen daher nicht unbedingt exakt mit dem Farbton, den Sie dann als Knäuel in der Hand halten, überein. Hoffentlich freunden Sie sich trotzdem mit dem Marzipan-Farbton an! Viel Spaß beim Stricken!

17.04.2025 - 22:10

country flag Emelie skrifaði:

I’d like to use DROPS Air for this pattern. I want to make it size S. Which needle size would you recommend and where should I reduce the number of stitches? I’m thinking in the arms? I know I should’ve used a B group yarn, but the Air had such pretty colours and I couldn’t help myself :)

20.01.2025 - 13:56

DROPS Design svaraði:

Dear Emelie, this jumper is worked with a tension of 21 sts x 28 rows = 10 x 10 cm, ie for a yarn group B while Air belongs to yarn group C, tension would not fit in both width and heigth and you would have to entirely recalculate the pattern to get it working. It might be easier to find another pattern with the same tension as a yarn group C/Air - see here - add filters to refine the search. Happy knitting!

20.01.2025 - 15:47

country flag Thérèse Comte skrifaði:

Bonjour, j'ai terminé les diagrammes A5a et A7a et je ne comprends pas ce que je dois faire pour continuer. Je fais le modèle en taille XL. Je ne comprends pas les diagrammes A5b et A7b . je suis complètement bloquée. Merci de venir à mon secours.

17.01.2025 - 17:08

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Comte, lorsque vous avez terminé A.5a et A.7a, vous tricotez ces mailles en suivant les diagrammes A.5x et A.7x cette fois, mais vous devez continuer à augmenter pour le raglan, vous allez donc maintenant augmenter au début du devant avec A.5b et à la fin du devant avec A.7b. Bon tricot!

20.01.2025 - 07:18

country flag Susan skrifaði:

Jeg er nået til at skulle sætte markører inden raglan. Jeg strikker størrelse M, og skal således sætte markør efter 14. maske. Der står nu, at A1 er i midten af disse masker. Dette kan jeg ikke få til at passe. Der er 5 masker inden A1 ( er 6 masker) og dermed 3 masker efter. Hvad gør jeg forkert?

16.01.2025 - 21:10

DROPS Design svaraði:

Hej Susan, sådan her bliver det, 1 mærke, 4 masker A.1=6 masker 4 masker, 1 mærke, 53 masker osv :)

17.01.2025 - 12:14

country flag Diane Scraire skrifaði:

Bonjour, J'aimerais savoir si je dois commencer les augmentations des raglans au premier tour ou au deuxième tour .

14.01.2025 - 21:30

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Scraire, vous augmentez dès le 1er tour - les augmentations figurent dans les diagrammes A.2 et A.4 (manches) et dans les diagrammes A.5a et A.7a (devant) et expliquées au 1er rang pour le dos (A.2 au début du dos + 1 augmentation à la fin du dos). Bon tricot!

15.01.2025 - 08:59

country flag Susi skrifaði:

Wieso benötige ich für diesen Pullover in Größe L 650 g Daisy. Aber beim lange nicht so aufwendig strukturierten 'Winter Rain' 750g Daisy, also glatte 100g mehr ? Da stimmt doch etwas nicht. Bei ähnlichen Maßen wird doch für das Zopfmuster beim 'Echo River' viel mehr Wolle benötigt, als für das glatte Strukturmuster beim 'Winter Rain'. Oder etwa nicht ???

08.01.2025 - 13:49

DROPS Design svaraði:

Liebe Susi, die Garnmenge für Winter Rain wurde geändert, danke für den Hinweis. Viel Spaß beim Stricken!

09.01.2025 - 09:53

country flag EBou skrifaði:

Je viens de terminer ce beau projet : j'ai eu énormément de plaisir à le réaliser. Merci beaucoup ! J'ai eu un peu de mal au début de l'empiècement : en utilisant des marqueurs et en gardant en tête la symétrie du "point de riz" , j'ai pu avancer sans problème pour la suite. Le petit motif qui court tout au long des bras est très joli et facilite la comparaison entre les deux manches. Bien cordialement

25.12.2024 - 10:46

country flag EBou skrifaði:

Bonjour, \r\nPouvez-vous me dire si le dos est comme le devant avec des torsades ? Je n\'arrive pas à trouver l\'information. Merci d\'avance! Bien cordialement

02.12.2024 - 07:29

DROPS Design svaraði:

Bonjour, il n'y a pas de torsades sur le dos de ce pull. Bon tricot!

02.12.2024 - 08:34

country flag Joana skrifaði:

Can i switch the yarn to cotton merino? would that affect something?

15.11.2024 - 22:15

DROPS Design svaraði:

Hi Joana, yes, feel free to switch yarn to DROPS Cotton Merino, this yarn is the same weight and has the same metrage, so the change will not affect anything. Happy knitting!

17.11.2024 - 18:34

country flag Lise Heinricy Gottlieb skrifaði:

Jeg havde tjekket valg af sprog, inden jeg skrev, og tekst til diagram er stadig norsk

14.11.2024 - 14:25

DROPS Design svaraði:

Hej Lise. Nu ska det vara riktigt, prova att uppdatera sidan. Mvh DROPS Design

15.11.2024 - 08:13