Bianca Vink skrifaði:
Hallo\r\nDank voor u antwoord maar ik kom er nog steeds niet uit ik begin opde verkeerde kant met 8 vaste en dan 3 losse eigenlijk 4 dan 3 stokjes ik eindig met 1 stokje dan begin ik met 3 losse (4) 3 stokjes\r\nSorry maar de tekening is voor mij niet zo duidelijk.\r\nAlvast dank voor u antwoord.
28.04.2024 - 06:41
Eleonor Meurell skrifaði:
Hej, jag undrar hur en "Kedjemaska" virkas? Kan inte hitta det i era, annars så exilenta, videon eller förklaringar, Vänligen, Eleonor
23.04.2024 - 10:27DROPS Design svaraði:
Hej Eleonor, det är en smygmaska på svenska. Det skal vi få opdateret i opskriften :)
23.04.2024 - 15:30
Bianca Vink skrifaði:
Hallo kunt u mij vertellen hoe ik het armsgat begin ik kom er niet uit. Dank u
20.04.2024 - 14:30DROPS Design svaraði:
Dag Bianca,
Zorg ervoor dat je op de verkeerde kant begint. In plaats van A.1a haak je nu A.2a (De eerste toer waar een sterretje bij staat in het telpatroon sla je over. Deze toer staat er allen bij zodat je kunt zien hoe de steken in de vorige steken moet haken.) en in plaats van A.1c haak je nu A.2c. Je haakt wat minder herhalingen van A.1b in het tussenstuk zodat je goed uitkomt met A.2c op het einde van de naald.
24.04.2024 - 12:28
Checkerboard Top skrifaði:
On dirait un damier ou un échiquier
18.01.2024 - 18:09
Checkmate Summer#checkmatesummertop |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Heklaður toppur úr DROPS Paris. Stykkið er heklað neðan frá og upp með klauf í hliðum. Stærð XS - XXL.
DROPS 249-29 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. A.1 sýnir mynstur með stuðlahópum. A.2 sýnir úrtöku fyrir handveg. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. HEKLLEIÐBEININGAR: Hver umferð með stuðlum byrjar með 3 loftlykkjum. Umferðin endar með 1 stuðli í 3. loftlykkju í byrjun á fyrri umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er heklað fram og til baka hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman í hliðum og á öxlum. Í lokin er heklaður kantur í kringum hálsmál og í kringum báða handvegina. BAKSTYKKI: Heklið 56-64-68-72-80-88 loftlykkjur – lesið LOFTLYKKJA að ofan, með heklunál 5 með DROPS Paris. Snúið stykkinu, heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, síðan er hekluð 1 fastalykkja í hverja loftlykkju = 55-63-67-71-79-87 fastalykkjur (þessi umferð er frá röngu). Snúið og heklið 1 stuðul í hvern stuðul = 55-63-67-71-79-87 stuðlar. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið síðan með 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 5 cm. Næsta umferð er hekljuð frá réttu þannig: Heklið A.1a í fyrsta stuðul, heklið A.1b alls 13-15-16-17-19-21 sinnum, heklið A.1c í 2 síðustu stuðla. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 26-27-28-29-30-31 cm og næsta umferð er hekluð frá röngu, fækkið lykkjum fyrir handveg þannig – ATH! Byrjið á 2. umferð í mynsturteikningu! Heklið A.2c, haldið áfram með A.1b þar til eftir eru 2-3-3-3-4-4 stuðlahópar í umferð, heklið A.2a yfir næstu lykkjur. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar A.2 hefur verið heklað til loka á hæðina, hefur verið fækkað um 2-3-3-3-4-4 stuðlahópa í hvorri hlið fyrir handveg. Haldið áfram fram og til baka með stuðlahópa eins og áður, þ.e.a.s. næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1a í fyrstu lykkju, heklið A.1b alls 9-10-11-11-13 sinnum, heklið A.1c yfir síðustu lykkjur. Heklið þar til stykkið mælist 38-40-42-43-45-47 cm. Klippið og festið þráðinn. FRAMSTYKKI: Heklið á sama hátt og bakstykki. Ekki festa þræðina. Nú er heklað BAND Á ÖXL / HLÝRI í hvorri hlið eins og útskýrt er að neðan. BAND Á ÖXL / HLÝRI: Byrjið frá réttu og heklið þannig: EF UMFERÐIN BYRJAR FRÁ RÉTTU: Heklið A.1a, heklið A.1b alls 1-1-1-1-1-2 sinnum, heklið A.1c. EF UMFERÐIN BYRJAR FRÁ RÖNGU: Heklið A.1c, heklið A.1b alls 1-1-1-1-1-2 sinnum, heklið A.1a. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka þar til band á öxl / hlýri mælist ca 8-8-8-10-10-10 cm (band á öxl / hlýri á að liggja yfir öxlina og saumað við bakstykki – mátið e.t.v. toppinn og stillið lengdina af). Klippið þráðinn. Heklið annað band á öxl / hlýra í hinni hliðinni. FRÁGANGUR: Saumið bönd á öxl / hlýra við bakstykki yst í hvora hlið. Saumið hliðarsauma – saumið ofan frá og niður kant í kant, endið band á öxl / hlýra þegar eftir eru ca 6 cm neðst í hvorri hlið (klauf). KANTUR Í HRINGUM HÁLSMÁL: Byrjið mitt ofan á annarri öxlinni og heklið með heklunál 5 þannig: 1 fastalykkja um fyrsta stuðul, * 4 loftlykkjur, hoppið yfir 1 stuðul / stuðlahóp (ca 2 cm), 1 fastalykkja um næsta stuðul / loftlykkju *, heklið frá *-* meðfram bandi á öxl / hlýra og í kringum hálsmál og endið umferð með 4 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Klippið og festið þráðinn. KANTUR Í KRINGUM HANDVEG: Byrjið í hlið undir ermi og heklið með heklunál 5 þannig: 1 fastalykkja í hliðarsauminn, * 4 loftlykkjur, hoppið yfir ca 2 cm, 1 fastalykkja um næsta stuðul / loftlykkju *, heklið frá *-* í kringum allan handveginn og endið umferð með 4 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Klippið og festið þráðinn. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #checkmatesummertop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 7 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 249-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.