Cyne skrifaði:
J’adore votre site web et vos patrons. Merci!
22.01.2024 - 07:09
Rodica skrifaði:
Violet scent
21.01.2024 - 21:56
Karin skrifaði:
Sara
21.01.2024 - 18:34
Fernanda Kazic skrifaði:
Blåbärsris!
20.01.2024 - 22:12
Aurore skrifaði:
Lilas
20.01.2024 - 14:53
Annarita skrifaði:
Lavender Haze
20.01.2024 - 13:32
Irene skrifaði:
Violetta
19.01.2024 - 14:10
AndreaW skrifaði:
"Lavender Fields"
19.01.2024 - 09:17
Edina skrifaði:
Levand
18.01.2024 - 19:27
Heike skrifaði:
Fliederstrauß
18.01.2024 - 17:40
Orchid Tea#orchidteasweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 250-3 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.3 og A.4). ÚTAUKNING – prjónað í hring: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn og í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn – svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 2 lykkjur í umferð með því að fækka lykkjum hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað ofan frá og niður og allt stykkið er prjónað í hring. Þegar kantur í hálsmáli og berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Ermar eru síðan prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 116-120-124-128-132-140 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Muskat. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Setjið 1 merki í þessa umferð, berustykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í sléttar lykkjur frá stroffi. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 27-27-27-29-29-29 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 29-31-33-33-35-39 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 27-27-27-29-29-29 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru 29-31-33-33-35-39 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Nú á að auka út fyrir laskalínu í MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið fyrstu umferð frá hægri öxl að aftan þannig: Prjónið A.1 yfir lykkju með 1. merki, prjónið 27-27-27-29-29-29 lykkjur sléttprjón (= ermi), prjónið A.2 yfir lykkju með 2. merki, prjónið 29-31-33-33-35-39 lykkjur sléttprjón (= framstykki), prjónið A.1 yfir lykkju með 3. merki, prjónið 27-27-27-29-29-29 lykkjur sléttprjón (= ermi), prjónið A.2 yfir lykkju með 4. merki, prjónið 29-31-33-33-35-39 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina er mynsturteikning endurtekin yfir lykkjur með merki í á sama hátt, mismunandi er aukið út í hvorri hlið á mynsturteikningu þannig að það er mikilvægt að merkið fylgi með í sömu lykkju allan tímann. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið svona þar til mynsturteikning hefur verið prjónuð alls 5-5-6-7-7-8 sinnum á hæðina = 256-260-292-324-328-364 lykkjur. Nú er prjónuð mynsturteikning A.3 yfir A.1 og A.4 yfir A.2. Þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð til loka eru 280-296-320-344-368-404 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 17-18-20-22-24-27 cm frá merki eftir kanti í hálsmáli. Það eru 63-65-69-75-79-85 lykkjur á milli 1. og 2. merkis og á milli 3. og 4. merkis, 75-81-89-95-103-115 lykkjur á milli 2. og 3. merkis og á milli 2. og 3. merkis og á milli 4. og 1. merkis og það eru 4 lykkjur með merki í. Prjónið síðan í sléttprjóni án þess að auka út þar til stykkið mælist 17-19-21-22-24-27 cm frá merki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR. Stykkið skiptist þannig: Prjónið sléttprjón þar til prjónaðar hafa verið 3-3-2-3-5-4 lykkjur fram hjá lykkju með 1. merki (= tilheyrir bakstykki), setjið næstu 57-59-65-69-69-77 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 14-16-18-20-22-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi), prjónið 83-89-95-103-115-125 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 57-59-65-69-69-77 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 14-16-18-20-22-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi) og prjónið sléttprjón út umferðina (= 83-89-95-103-115-125 lykkjur fyrir bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 194-210-226-246-274-298 lykkjur. Setjið 1 merki í þessa hlið á stykki (= mitt í 14-16-18-20-22-24 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 22-22-22-22-22-21 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) jafnframt því sem aukið er út um 28-32-34-40-40-46 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið ÚTAUKNING = 222-242-260-286-314-344 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3 cm er fellt af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 57-59-65-69-69-77 lykkjur fyrir ermar af öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 14-16-18-20-22-24 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 71-75-83-89-91-101 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 14-16-18-20-22-24 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3-3-3-4-4-3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 2-1½-1-1-2-1 cm alls 6-7-8-7-4-5 sinnum = 59-61-67-75-83-91 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 16-15-13-14-13-10 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 9-9-9-11-13-15 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 68-70-76-86-96-106 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3 cm er fellt aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 19-18-16-17-16-13 cm frá skiptingunni. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #orchidteasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 250-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.