Ann Behan skrifaði:
Hello, Any chance of getting written instructions for this pattern? I ordered the yarn and tried to make a start, without success. I am an experienced crocheter but I simply couldn't make sense of instructions. Best wishes, Ann Behan
01.05.2024 - 19:09DROPS Design svaraði:
Hi Ann, Sadly, we do not have written instructions for this bag. Regards, Drops Team.
02.05.2024 - 06:32
Yveline Baudouin skrifaði:
Bonjour, y aurait-il une erreur dans les explications pour la bande ? Pourquoi 12 m (br) deviendraient-elles 6 m en pliant la bande dans le sens de la longueur ? Et si il faut en fait la plier dans le sens de la largeur, pourquoi demanderait-on de la plier lors de l'assemblage de façon à n'avoir plus que 6 m alors qu'on n'en a déjà plus que 6 ?! Ou alors faut-il coudre que la moitié de la bande et continuer sur 6 br ? Un petit schéma aurait été bien :) Merci pour votre aide
20.04.2024 - 17:58DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Baudouin, la bande se crochète sur 12 brides, on la plie ensuite en double = elle ne représente donc plus que 6 brides en largeur soit la moitié. Cette bande doublée est ensuite cousue tout autour du sac, la partie restante de la bande n'est pas doublé et fait donc toujours 12 brides, mais si vous le souhaitez, vous pouvez la doubler aussi pour la bandoulière, au choix. Bon crochet!
22.04.2024 - 07:56
Lotta skrifaði:
Hej! Jag förstår inte virkbeskrivningen. Vad betyder ”sedan virkas det runt efter diagram A1 totalt 12 gånger på varvet” vadå på varvet? Är det 12 varv? Det är väldigt otydligt förklarat, går det att förtydliga? Tacksam för hjälp!
30.03.2024 - 21:06DROPS Design svaraði:
Hej Lotta, du upprepar A.1 12 ggr på varje varv :)
05.04.2024 - 12:09
Lotta skrifaði:
Hej! Jag är nybörjare på virkning. Vad är en kedjemaska? Tack på förhand! /Lotta
21.03.2024 - 09:04DROPS Design svaraði:
Hej Lotta. Det var ett misstag i översättningen, det ska vara smygmaska. Detta är nu rättat. Mvh DROPS Design
22.03.2024 - 08:04
Eveli skrifaði:
Holiday in Provence
21.01.2024 - 14:27
Maria Roshed Sandström skrifaði:
Spring roll
21.01.2024 - 08:55
Fernanda Kazic skrifaði:
Snäckan!
20.01.2024 - 22:16
Melanie skrifaði:
Light Breeze, Nougat, Beige Bliss
19.01.2024 - 09:31
Tortilla Bag#tortillabag |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Hekluð hringlaga taska úr DROPS Bomull-Lin.
DROPS 247-5 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun hverrar umferðar með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur, þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls, heldur sem viðbót. Þegar heklað er í hring, endar umferðin með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. Sjá mynsturteikningu A.2. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Það eru heklaðir 2 hringir frá miðju og út, síðan er hekluð ól/band bæði sem ól/band og hliðarstykki. Í lokin eru stykkin saumuð saman. HRINGUR: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 4,5 með DROPS Bomull-Lin og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Síðan er heklað í hring eftir mynsturteikningu A.1 alls 12 sinnum í umferð – mynsturteikning A.2 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðbót við A.1. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar öll mynsturteikning hefur verið hekluð, mælist stykkið ca 20 cm að þvermáli. Heklið síðan með 1 keðjulykkju í hvern af fyrstu 27 stuðla í umferð. Klippið og festið þráðinn. Heklið annan hring til viðbótar á sama hátt. ÓL / BAND: Heklið 15 loftlykkjur og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í hverja loftlykkju = 12 stuðlar. Heklið fram og til baka þar til ólin/bandið mælist 47 cm – lesið HEKLLEIÐBEININGAR. Síðan er ólin/bandið brotið tvöfalt á lengdina og skammhliðin er hekluð saman með 1 stuðul í hvern stuðul í gegnum bæði lögin = 6 stuðlar. Heklið 6 stuðla fram og til baka þar til ólin/bandið mælist alls 140 cm. FRÁGANGUR: Brjótið uppfitjunarkantinn á ól/bandi tvöfalt, þannig að öll ólin/bandið sé 6 lykkjur á breidd og saumið kantinn niður í gegnum bæði lögin. Tvöfalda ólin/bandið er nú saumað niður meðfram kanti á hring – fastalykkjur á hring sýna op á töskunni. Saumið saman þannig: Byrjið þar sem fastalykkjur enda, saumið aðra langhliðina á tvöföldu ólinni/bandinu við stuðla yst á hring (það á nú að vera lítill kantur), haldið áfram með sauminn meðfram kanti hringinn þar sem fastalykkjurnar byrjuðu – tvöfalda ólin/bandið endar einnig hér. Síðan er hin hliðin saumuð við tvöfalda ólina/bandið á hinum hringnum á sama hátt. Hinn hlutinn á ólinni/bandinu (sem ekki er tvöfalt) er ólin á töskunni. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #tortillabag eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 247-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.