Giulia skrifaði:
Quando metto in sospeso le maglie della manica, le 2 maglie della linea raglan, quelle dentro ai marcapunti, come le considero? Mi spiego meglio: sono parte della manica e quindi le metto in sospeso, oppure fanno parte del corpo?
10.05.2024 - 21:44DROPS Design svaraði:
Buonasera Giulia, deve seguire i numeri indicati per la sua taglia per la divisione del corpo e delle maniche. Buon lavoro!
16.06.2024 - 22:13
Charlotte skrifaði:
Kan man strikke denne I garnet Vienna ? Og hvilke pinde ? ?
16.03.2024 - 15:18DROPS Design svaraði:
Hej Charlotte, DROPS Vienne findes ikke mere, men du kan strikke den i 1 tråd DROPS Melody på samme pind, men sørg for at overholde strikkefastheden i opskriften :)
18.03.2024 - 14:57
Helle skrifaði:
Hejsa Jeg kan ikke finde farven stillehavsblå. Er det en ny farve? Bedste hilsner Helle
26.02.2024 - 12:36DROPS Design svaraði:
Hej Helle. Nej den är inte så ny, du kan beställa den t.ex. hos lindehobby.no. Mvh DROPS Design
27.02.2024 - 12:28
Ost Betty skrifaði:
Mooie modelen
23.02.2024 - 14:07
Suzy skrifaði:
Bonjour, je désire faire ce modèle, le problème de cette laine laisse beaucoup de poils partout, j’ai déjà fait un modèle avec cette laine. Y’a t’il une solution pour éviter cela . Merci
17.02.2024 - 11:48DROPS Design svaraði:
Bonjour Suzy, vous pouvez utiliser notre convertisseur pour voir les alternatives possibles et les quantités correspondantes, retrouvez plus d'infos sur les alternatives/possibilités ici, votre magasin pourra vous aider et vous conseiller, même par mail ou téléphone si vous avez besoin. Bon tricot!
19.02.2024 - 08:50
Aurore skrifaði:
Océan
20.01.2024 - 14:54
Irene skrifaði:
Celeste
19.01.2024 - 14:12
Caren Veraart skrifaði:
Zeebries
18.01.2024 - 18:06
Kari Ann Lyche skrifaði:
Sjøbris
18.01.2024 - 17:59
Raisa skrifaði:
Lake view
18.01.2024 - 14:21
Blue Reflection#bluereflectionsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 250-25 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir 2 lykkjur í sléttprjóni í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma. Þessar 2 lykkjur eru nú kallaðar laskalína. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. RENDUR: Prjónaðar eru rendur þannig, prjónið alltaf með 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk: 17-18-19-20-21-22 cm (meðtaldir 4 cm kantur í hálsmáli) með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum sjávarblár 4 cm með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum kobalblár 13 cm með 1 þræði í litnum kobaltblár og 1 þræði í litnum sjávarblár 5 cm með 1 þræði í litnum kobaltblár og 1 þræði í litnum natur 7 cm með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum sjávarblár Prjónið með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum kobaltblár fram þar til stroffið er eftir á fram- og bakstykki og ermum. Stroffið neðst á fram- og bakstykki og ermum er prjónað með 1 þræði í litnum sjávarblár og 1 þræði í litnum kobalblár ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Hálsmál og berustykki er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Ermar eru síðan prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 64-68-68-76-76-80 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum sjávarblár í DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 7. Nú er sett 1 merki mitt að aftan, berustykkið er mælt frá þessu merki. Síðan er berustykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan – prjónaðar eru RENDUR – lesið útskýringu að ofan. BERUSTYKKI: Fyrsta umferð er prjónuð þannig: 10-10-10-12-12-14 lykkjur sléttprjón (ca hálft bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur í næstu lykkju (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 11-11-11-11-11-11 lykkjur sléttprjón (ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur í næstu lykkju (laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 19-21-21-25-25-27 lykkjur sléttprjón (framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur í næstu lykkju (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 11-11-11-11-11-11 lykkjur sléttprjón (ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur í næstu lykkju (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 9-11-11-13-13-13 lykkjur sléttprjón (ca hálft bakstykki). Fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, er nú lokið (= 8 lykkjur fleiri) og það hefur verið aukið út um 1 lykkju í hverri laskalínu (= 4 lykkjur fleiri) = 76-80-80-88-88-92 lykkjur. Prjónið sléttprjón jafnframt því sem aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalínulykkjur í annarri hverri umferð alls 14-14-18-18-16-17 sinnum = 180-184-216-224-208-220 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Síðan heldur útaukningin áfram þannig: Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð á framstykki og bakstykki, en á ermum er einungis aukið út í 4. hverri umferð (= til skiptis 4 og 8 lykkjur fleiri í hverri útauknings umferð), endurtakið þessa útaukningu 2-4-2-2-8-8 sinnum á fram- og bakstykki (1-2-1-1-4-4 sinnum á ermum). Það hefur verið aukið út alls 16-18-20-20-24-25 sinnum á fram- og bakstykki og 15-16-19-19-20-21 sinnum á ermum. Eftir síðustu útaukningu eru 192-208-228-236-256-268 lykkjur í umferð. Prjónið síðan án útaukningar þar til stykkið mælist 20-23-25-26-30-31 cm frá merki. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Prjónið 28-30-32-34-38-41 lykkjur sléttprjón (= ca hálft bakstykki), setjið næstu 41-43-49-49-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 55-61-65-69-77-81 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 41-43-49-49-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 27-31-33-35-39-40 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ca hálft bakstykki). Stykkið er mælt héðan! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 122-134-142-154-170-182 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og röndum þar til stykkið mælist 29-28-28-29-27-28 cm. Prjónið síðan með hringprjón 5,5, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), JAFNFRAMT er aukið út um 14-18-22-26-22-24 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 136-152-164-180-192-206 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3 cm, fellið af. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMAR: Setjið 41-43-49-49-51-53 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón, prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 47-49-55-57-59-63 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-6-6-8-8-10 lykkjur undir ermi og byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón og rendur hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Haldið áfram með úrtöku í hverjum 6-5-3½-3-2½-2 cm alls 6-7-9-10-10-12 sinnum = 35-35-37-37-39-39 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 40-38-37-35-32-31 cm frá skiptingunni. Prjónið síðan með hringprjón 5,5, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), JAFNFRAMT því sem aukið er út um 5-5-5-5-7-7 lykkjur jafnt yfir = 40-40-42-42-46-46 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5 cm, felliðaf. Ermin mælist alls 45-43-42-40-37-36 cm. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bluereflectionsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 250-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.