Patricia skrifaði:
Bonjour, je suis assez "fachée" avec les aiguilles double pointe,donc est il possible de réaliser les manches avec deux aiguilles "normales" Pouvez vous me dire comment faire? merci
21.05.2025 - 14:24DROPS Design svaraði:
Bonjour Patricia, vous trouverez ici quelques infos pour vous aider à ajuster les explications tricotées en rond (sur aiguilles doubles pointes ou sur aiguille circulaire) en allers et retours. Si vous êtes fâchée seulement avec les aiguilles doubles pointes mais pas avec le tricot en rond,, vous pouvez alors tricoter les manches en rond, sur aiguille circulaire, en en magic loop. Bon tricot!
21.05.2025 - 15:42
Maja Karlsson skrifaði:
Hej! Jag håller på med det här mönstret just nu och har kommit till slutet på vänster framstycke. Med att minska av de 20 första maskorna betyder det att maska av? OCH Vad betyder det att sticka över framkantmaskorna i X antal cm? Hoppas ni kan förtydliga för mig!
26.09.2024 - 13:21
Angus Ross skrifaði:
Cant use circular needles need pattern for normal needle
03.07.2024 - 19:28DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Ross, body is worked back and forth on circular needle, you can then just use straight needle instead, for sleeves, this lesson should help you adapting pattern. Happy knitting!
04.07.2024 - 08:23
Sarah Axelsson skrifaði:
Hej, hur menar ni i bakstyckedelen. Jag gör i storlek S. Man börjar med 70 maskor, maskar av 2 maskor 1 gång, sedan 1 maskor 1 gång = 64 maskor. Jag får det till att det minskats 3 maskor. Enligt beskrivningen ska det ha minskats 6 maskor.
27.04.2024 - 21:28DROPS Design svaraði:
Hei Sarah. Du feller av i HVER side, altså 2 masker 1 gang = 2 masker i hver side = 4 masker. Så 1 maske 1 gang = 1 maske i hver side = 2 masker. Du feller av 3 masker i hver side = 6 masker tilsammen. 70 masker - 6 felte masker = 64 masker. mvh DROPS Design
29.04.2024 - 10:59
Eveli skrifaði:
In the clouds. Cloud cardigan.
21.01.2024 - 14:29
Marlies Van Dijk skrifaði:
Pittig en warm
18.01.2024 - 22:21
Anna skrifaði:
Melody Blues
18.01.2024 - 19:43
Dominika skrifaði:
Sky is the limit
18.01.2024 - 18:22
Painted Sky Cardigan#paintedskycardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með V-hálsmáli, ¾ langar ermar og I-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 250-38 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 4 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. V-HÁLSMÁL: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum fyrir V-hálsmáli innan við 6 kantlykkjur að framan og 1 lykkju í sléttprjóni á báðum framstykkjum. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið kant að framan eins og áður. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prónuð. ÚTAUKNING (á við um ermar): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið fjórðu og fimmtu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, þannig að það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 6, 18, og 30 cm M: 6, 15, 23 og 31 cm L: 6, 15, 23 og 31 cm XL: 6, 15, 24 og 32 cm XXL: 6, 15, 24 og 33 cm XXXL: 6, 16, 25 og 34 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka upp að handvegi með kant að framan í hvorri hlið. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvert stykki er prjónað til loka fyrir sig, fram og til baka. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp. Prjónað er í hring upp að handvegi, síðan er ermin prjónuð til loka fram og til baka. Stykkin eru saumuð saman. Í lokin eru kantur að framan saumaður við hálsmál aftan í hnakka. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp194-214-226-238-258-282 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Melody. Prjónið stroff og kant að framan með byrjun frá réttu þannig: Prjónið 6 lykkjur KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan, prjónið * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 6 lykkjur í kanti að framan með I-cord. Prjónið fram og til baka með stroffi og kanti að framan í hvorri hlið þar til stykkið mælist 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið sléttprjón með kanta að framan eins og áður í hvorri hlið jafnframt því sem fækkað er um 30-38-38-38-42-50 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð (lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan) = 164-176-188-200-216-232 lykkjur. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – lesið útskýringu að ofan. Prjónið sléttprjón með kanta að framan í hvorri hlið þar til stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm frá uppfitjunarkanti. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! SKIPTING FYRIR HANDVEG: Í næstu umferð frá réttu skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki þannig: Prjónið fyrstu 41-43-45-47-50-53 lykkjur eins og áður (hægra framstykki), fellið af næstu 6-8-10-12-14-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið 70-74-78-82-88-94 lykkjur (bakstykki), fellið af næstu 6-8-10-12-14-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið þær 41-43-45-47-50-53 lykkjur eins og áður (vinstra framstykki). Nú eru framstykkin og bakstykkið prjónað til loka hvert fyrir sig fram og til baka. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 41-43-45-47-50-53 lykkjur. Framstykkið er prjónað fram og til baka í sléttprjóni og með kanti að framan eins og áður. Prjónið umferð 1 frá röngu. Fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umferðar frá hlið: 2 lykkjur, 1 sinni og 1 lykkju 1-1-2-2-4-6 sinnum, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 31-32-32-33-34-35 cm á að fækka fyrir V-HÁLSMÁL – lesið útskýringu að ofan. Lykkjum er fækkað í hverri umferð frá réttu innan við kant að framan og 1 lykkju sléttprjón alls 14-14-15-15-16-16 sinnum. Þegar úrtaka fyrir V-hálsmáli og handveg er lokið, eru 24-26-26-28-28-29 lykkjur á framstykki. Prjónið eins og áður þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti. Í byrjun næstu umferðar frá handveg, fellið af 18-20-20-22-22-23 fyrstu lykkjur þannig að einungis kantur að framan er eftir. Prjónið síðan yfir kantlykkjur að framan í 11-11-11½-11½-12½-12½ cm. Fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 41-43-45-47-50-53 lykkjur. Framstykkið er prjónað fram og til baka í sléttprjóni og með kanti að framan eins og áður á sama hátt og vinstra framstykki. BAKSTYKKI: = 70-74-78-82-88-94 lykkjur. Bakstykkið er prjónað í sléttprjóni fram og til baka. Í byrjun hverrar umferðar er fellt af fyrir handveg í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 1-1-2-2-4-6 sinnum = 64-68-70-74-76-78 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm frá uppfitjunarkanti. Setjið miðju 26-26-28-28-30-30 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og prjónið hvora öxl fyrir sig. Haldið áfram í sléttprjóni og fellið 1 lykkju fyrir hálsmáli í byrjun næstu umferðar frá hálsmáli = 18-20-20-22-22-23 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMAR: Fitjið upp 52-52-56-60-64-68 lykkjur á sokkaprjóna 4,5 með DROPS Melody. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) hringinn þar til stykkið mælist 6 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6, prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 10-8-8-10-12-12 lykkjur jafnt yfir = 42-44-48-50-52-56 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar og látið merkiþráðinn síðan fylgja með í stykkinu. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar ermin mælist 9-9-8-8-8-9 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út í hverjum 2½-2½-2½-2½-2-1½ cm alls 8-8-8-8-9-9 sinnum = 58-60-64-66-70-74 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 30-29-28-28-26-24 cm. Í næstu umferð eru lykkjur felldar af mitt undir ermi þannig: Byrjið 3-4-5-6-7-8 lykkjum á undan merkiþræði í byrjun umferðar, fellið af næstu 6-8-10-12-14-16 lykkjur = 52-52-54-54-56-58 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka í umferð, jafnframt er fellt af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 4-3-2-2-3-3 sinnum, síðan eru felldar af 2-2-2-2-1-1 lykkjur í byrjun hverrar umferðar þar til ermin mælist 36 cm í öllum stærðum. Fellið af 3 lykkjur í byrjun næstu 2 umferða. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 37 cm í öllum stærðum. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermi við handveg. Saumið tölur í vinstra framstykki. Saumið kanta að framan mitt að aftan og saumið við hálsmál aftan í hnakka. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #paintedskycardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 250-38
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.