Heide skrifaði:
Ich verstehe nicht, wie ich die Bindebänder anbringen muss.? Wenn ich beide Bänder direkt hinterm Icord anbringen können sich die Vorferteile nicht überlappen?
24.10.2026 - 15:08DROPS Design svaraði:
Liebe Heide, bei der rechten Seitennaht wird man 3 cm offen lassen, so kann das Bindeband dadurch geführt werden - siehe FERTIGSTELLEN. Viel Spaß beim Stricken!
26.10.2026 - 09:15
Juliane skrifaði:
Hallo :) kann ich auch die Ärmel direkt anstricken und dann einfach mit der Maschenanzahl (nach den Zunahmen) beginnen ? Sprich, ich würde 58 Maschen ( Größe XL) direkt am Armausschnitt anstricken und in Runden Stricken. Hat jemand Erfahrung damit ? Macht das Sinn oder ergibt das ein ganz anderes Strickergebnis ?
23.10.2026 - 21:32DROPS Design svaraði:
Liebe Juliane, hier wird man Maschen beidseitig zunehmen/anschlagen um die Armkugel zu bilden; wenn Sie direkt die Maschen am Armloch auffassen dann sollen Sie die Anleitung anpassen, vielleicht dann passende verkürzten Reihen stricken? Gerne kann Ihnen damit Ihr Wollladen - auch per E-Mail oder Telefon weiterhelfen. Viel Spaß beim Stricken!
26.10.2026 - 08:14
Theodora skrifaði:
Hi! I have a question about the front rib. Right front: I-cord, (k1, p1), garter, so a knit sits next to the I-cord. Left front: garter, (p1, k1), I-cord, so a purl sits next to it. Is this intentional? If it's so the rib continues across the side seam (the back has a knit at each edge), but that only works on the left side. On the right front and back both have a knit at the seam. Should the left front start with k1 to match? Thanks!
27.09.2026 - 10:16DROPS Design svaraði:
Dear Theodora, if the left front piece starts with 1 garter stitch and then continues with the p1, k1 rib then it will look like the reflection of the right front piece. It ends with k1 and then you work the I-cord over the last 2 stitches. The number of stitches in rib should be the same in both front pieces, so the k1 will also be next to the I-cord. Happy knitting!
28.09.2026 - 01:18
Pia skrifaði:
Beskrivningarna för Icord i det här mönstret är lätt obegripliga. Bättre att titta på youtubeklippen som finns! Ännu bättre att länka till dem härifrån. Annars enkel beskrivning som är lätt att följa.
16.09.2026 - 07:47
Christine skrifaði:
Bonjour, je suis bloquée au niveau de l'encolure dos, la question à déjà été posée mais je ne comprends toujours pas. Je fais la taille S donc je n'ai que 10 mailles centrales à relever, vous dites de 24 mailles mais j'aurai alors très peu de mailles pour coudre les 22 mailles de chaque devant. EXPLIQUEZ MOI SVP .
21.07.2026 - 15:27DROPS Design svaraði:
Bonjour Christine, vous avez effectivement 10 m rabattues pour l'encolure puis 1 m de chaque côté = 12 m au total et vous tricotez 3 cm au total après ces 10 m rabattues pour chacune des épaules, vous allez donc relever 6 m le long de ces 3 cm de chaque côté pour obtenir 24 mailles. Bon tricot!
04.08.2026 - 12:58
Birgit Urke skrifaði:
Vvordan skal jeg feste knyttebeltene?
07.11.2025 - 15:22DROPS Design svaraði:
Hi Birgit, Du syr knytebåndet til vrangen av hvert forstykke i overgangen mellom glattstrikk og I-cord, ca 10-10-11-11-12-12 cm opp fra oppleggskanten. Hilsen Drops team.
12.11.2025 - 07:12
Torunn Tvedt Anderssen skrifaði:
Hei, jeg forstår ikke Økningen på begynnelsen av ermet.Det står nye masker legges opp på slutten av hver pinne. Jeg har lagt opp 24m, legger jeg opp slik jeg leser det, får jeg 44m, ikke50m. Opplever forklaringa som ikke god. Har fått andre ivrige strikkere til å se på det, skjønner det ikke de heller. Fint med oppklarende svar. Mvh.Torunn Tvedt Anderssen 😊
12.10.2025 - 21:05DROPS Design svaraði:
Hej Torunn. Legg opp 24 masker. Strikk glattstrikk frem og tilbake, samtidig legges det opp nye masker til ermetopp på slutten av hver pinne i hver side slik: Legg opp 3 masker 1 gang, 3 masker 1 gang, 1 maske 0 ganger, 2 masker 2 ganger og til slutt 3 masker 1 gang = 50 masker. 24+6+6+4+4+6=50 m. Mvh DROPS Design
13.10.2025 - 14:26
Rachele skrifaði:
Buongiorno, è possibile usare anche un solo filato? per esempio solo il Drops Air? Grazie mille!
21.07.2025 - 13:35DROPS Design svaraði:
Buonasera Rachele, se preferisce usare un solo filato deve lavorare un campione e adattare la lavorazione alle sue misure. Buon lavoro!
21.07.2025 - 23:05
Lydia skrifaði:
Kan dere oppdatere denne oppskriften å inkludere str. xxs og xs?🙏🏼 jeg finner iiingen oppskrifter på omslagsjakke til min lillesøster som er akkurat i overgangen mellom barn og voksen, der største størrelse til barn blir for lite, men minste størrelsen til voksen blir for stor.
03.07.2025 - 12:04DROPS Design svaraði:
Hej Lydia, det sætter vi på ønskelisten :)
03.07.2025 - 12:13
Julie skrifaði:
Hei! Jeg strikker høyre forstykke og har strikket 10 cm. Det står i oppskriften at jeg skal gjøre fellinger mellom Icord maskene. Gjelder det i hver side?
01.07.2025 - 21:34DROPS Design svaraði:
Hei Julie, Du feller til omslag etter de I-cord maskene slik at de ikke endres (fell som beskrevet i Felletips-2. På andre siden av forstykket er det ikke I-cord men 1 maske rille. Her skal du etterhvert felle av til ermehull og rillemasken blir også felt av (når du har strikket til riktig mål). Deretter feller du videre til ermehull som beskrevet i Felletips-1. Håper dette hjelper. Hilsen Drops Team.
03.07.2025 - 07:37
Ballerina's Dream#ballerinasdreamcardigan |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð vafningspeysa / peysa úr DROPS Air og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með vafningi, I-cord, ísettum ermum og bandi um mittið. Stærð S - XXXL.
DROPS 248-2 |
||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. I-CORD (kantur að framan): FYRSTU 2 LYKKJUR: Prjónið í hverri umferð þannig: Lyftið 1 lykkju af þræði eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. SÍÐUSTU 2 LYKKJUR: Prjónið í hverri umferð þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. I-CORD AFFELLING (ermi): Í lok umferðar og eftir að síðasta lykkjan í umferð hefur verið prjónuð: Fitjið upp 4 nýjar lykkjur á hægri prjón frá réttu, með 1 þræði í hvorri tegund. Lyftið 4 nýju lykkjunum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sem prjóna á með sitji 4 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn á stykkinu, þannig að það myndist lítill hólkur). UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. UMFERÐ 2 (rétta): Lyftið til baka 4 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið UMFERÐ 2 þar til 4 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Lyftið til baka 4 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af. Saumið lítið spor sem bindur saman byrjun og lok á I-cord. I-CORD AFFELLING (kantur í hálsmáli): Fitjið upp 3 nýjar lykkjur á hægri prjón frá réttu, með 1 þræði í hvorri tegund. Lyftið 3 nýju lykkjunum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sem prjóna á með sitji 3 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn á stykkinu, þannig að það myndist lítill hólkur). UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. UMFERÐ 2 (rétta): Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið UMFERÐ 2 þar til 3 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af. I-CORD (band í mitti) Lyftið 6 lykkjunum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sem prjóna á með sitji 6 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn á stykkinu, þannig að það myndist lítill hólkur). UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 6 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (rétta): Lyftið til baka 6 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón, herðið á þræði, prjónið 6 lykkjur slétt. Endurtakið UMFERÐ 2 að réttu máli. Fellið af. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 4 ystu lykkjur í umferð. Í næstu umferð eru uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA-1 (handvegur og hálsmál aftan í hnakka): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 3 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur slétt (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-2 (úrtaka í vafningsstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 2 lykkjur I-cord eins og áður, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur I-cord eins og áður (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-3 (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 4 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Framstykkin og bakstykkið er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig og prjónað er neðan frá og upp. Ermar eru fyrst prjónaðar fram og til baka, síðan í hring og prjónað er ofan frá og niður. Stykkin eru saumuð saman. Lykkjur eru prjónaðar upp meðfram hálsmáli aftan í hnakka, síðan er prjónaður kantur í hálsmáli í I-cord. Í lokin eru prjónuð 2 bönd með I-cord sem saumuð eru við fram- og bakstykki. Öll mál á lengdina eru tekin frá uppfitjunarkanti. BAKSTYKKI: Fitjið upp 65-69-77-83-93-101 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Air og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, jafnframt því sem fækkað er um 7-7-9-9-11-11 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 58-62-68-74-82-90 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10 cm, er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 20 cm = 62-66-72-78-86-94 lykkjur. Þegar stykkið mælist 27-28-29-30-31-32 cm, fellið af 3-3-3-4-5-6 lykkjur fyrir handveg í byrjun næstu 2 umferða = 56-60-66-70-76-82 lykkjur. Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir á eftir úrtöku fyrir handveg og næsta umferð er prjónuð frá réttu, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – lesið ÚRTAKA-1. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 2-3-4-5-7-8 sinnum í hvorri hlið = 52-54-58-60-62-66 lykkjur. Þegar stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm, fellið af miðju 10-12-12-12-14-14 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið síðan og fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu – lesið ÚRTAKA-1 = 20-20-22-23-23-25 lykkjur á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 48-50-56-62-66-74 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Air og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 2 lykkjur I-CORD – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið), þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið sléttprjón með 2 lykkjur I-cord við miðju að framan og 1 lykkju í garðaprjóni að hlið jafnframt því sem fækkað er um 6-6-6-8-8-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 42-44-50-54-58-64 lykkjur (lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur). YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Síðan er lykkjum fækkað í vafningsstykki, aukið út í hliðum og fellt af í handvegi. Lestu því kaflann ÚRTAKA Í VAFNINGSSTYKKI, ÚTAUKNING Í HLIÐ og HANDVEGUR áður en þú prjónar áfram. ÚRTAKA Í VAFNINGSSTYKKI: Þegar stykkið mælist 10-10-11-11-12-12 cm, fækkið um 1 lykkju innan við I-cord lykkjur – lesið ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 7-8-13-14-15-17 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 10-10-8-8-8-8 sinnum (= 17-18-21-22-23-25 lykkjur færri). ÚTAUKNING Í HLIÐ: Jafnframt þegar stykkið mælist 10 cm, aukið út um 1 lykkju í hlið – munið eftir ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 20 cm (= 2 lykkjur fleiri). HANDVEGUR: Jafnframt þegar stykkið mælist 27-28-29-30-31-32 cm, fellið af 3-3-3-4-5-6 lykkjur fyrir handveg í byrjun fyrstu umferðar frá röngu. Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir á eftir úrtöku og næsta umferð er prjónuð frá réttu, fækkið um 1 lykkju fyrir handveg – munið eftir ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 2-3-4-5-7-8 sinnum. Eftir alla úrtöku og útaukningu eru 22-22-24-25-25-27 lykkjur í umferð (= 2 lykkjur fleiri en á öxl á bakstykki). Prjónið síðan þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 48-50-56-62-66-74 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Air og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt), þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni að hlið og 2 lykkjur I-cord við miðju að framan jafnframt því sem fækkað er um 6-6-6-8-8-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 42-44-50-54-58-64 lykkjur (lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur). YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Síðan er lykkjum fækkað í vafningsstykki, aukið út í hliðum og fellt af í handvegi. Lestu því kaflann ÚRTAKA Í VAFNINGSSTYKKI, ÚTAUKNING Í HLIÐ og HANDVEGUR áður en þú prjónar áfram. ÚRTAKA Í VAFNINGSSTYKKI: Þegar stykkið mælist 10-10-11-11-12-12 cm, fækkið um 1 lykkju innan við I-cord lykkjur – lesið ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 7-8-13-14-15-17 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 10-10-8-8-8-8 sinnum (= 17-18-21-22-23-25 lykkjur færri). ÚTAUKNING Í HLIÐ: Jafnframt þegar stykkið mælist 10 cm, aukið út um 1 lykkju í hlið – munið eftir ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 20 cm (= 2 lykkjur fleiri). HANDVEGUR: Jafnframt þegar stykkið mælist 27-28-29-30-31-32 cm, fellið af 3-3-3-4-5-6 lykkjur fyrir handveg í byrjun fyrstu umferðar frá réttu. Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir úrtöku og næsta umferð er prjónuð frá réttu, fækkið um 1 lykkju fyrir handveg – munið eftir ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 2-3-4-5-7-8 sinnum. Eftir alla úrtöku og útaukningu eru 22-22-24-25-25-27 lykkjur í umferð (= 2 lykkjur fleiri en á öxl á bakstykki). Prjónið síðan þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Fellið af. ERMAR: Fitjið upp 24-26-26-24-24-22 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið sléttprjón fram og til baka, jafnframt því sem fitjaðar eru upp nýjar lykkjur fyrir ermakúpu í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3-3-3-4-5-6 lykkjur 1 sinni, 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni, 1 lykkja 0-0-0-1-2-3 sinnum, 2 lykkjur 2-2-3-3-3-3 sinnum og í lokin 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni = 50-52-56-58-62-64 lykkjur. Ermin mælist ca 7-7-8-9-11-12 cm frá uppfitjunarkanti. Nú er stykkið sett saman og ermin er síðan prjónuð í hring í sléttprjóni. Setjið 1 merkiþráði í byrjun umferðar (= mitt undir ermi), merkiþráðurinn er notaður þegar fækka á lykkjum undir ermi. Þegar ermin mælist 9-9-10-11-13-14 cm frá uppfitjunarkanti, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA-3. Endurtakið úrtöku þegar ermin mælist 11-11-12-13-15-16 cm = 46-48-52-54-58-60 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 51 cm frá uppfitjunarkanti í öllum stærðum og fækkið jafnframt um 6-6-8-8-8-8 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð = 40-42-44-46-50-52 lykkjur. Fellið af með I-CORD – lesið útskýringu að ofan. KANTUR Í HÁLSMÁLI AÐ AFTAN: Notið hringprjón 7 og prjónið upp frá réttu ca 24-26-26-26-28-28 lykkjur meðfram hálsmáli á bakstykki. Klippið þráðinn. Fellið síðan af með I-CORD – lesið útskýringu að ofan. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn, byrjið sauminn yst við handveg og saumið lykkju í lykkju inn við hálsmál, í lokin eru saumaðar 2 síðustu lykkjur frá framstykki við I-cord kanta frá bakstykki. Saumið hliðarsaum, saumið innan við 1 lykkju í garðaprjóni, en skiljið eftir op ca 3 cm til að þræða band til að hnýta stykkið saman í gegnum hægri hlið á stykki, ca 10-10-11-11-12-12 cm upp frá uppfitjunarkanti. Saumið ermar í innan við 1 lykkju í garðaprjóni meðfram handvegi. BAND: Fitjið upp 6 lykkjur á prjón 5,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið I-CORD – lesið útskýringu að ofan í 100-110-120-130-140-150 cm – eða óskaðri lengd. Fellið af. Prjónið annað band á sama hátt. Saumið hvort bandið í röngu á hvoru framstykki í skiptinguna á milli sléttprjóns og I-cord, ca 10-10-11-11-12-12 cm upp frá uppfitjunarkanti. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #ballerinasdreamcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 248-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.