Annamarie skrifaði:
Hi, I have knitted the first 4 rows and have 16 stitches on my needle. Do I now follow those first 4 rows again continuing to increase all the way along, every third stich? Confused with the increase tip before and after markers, Is it only the nearest yo stitches to the markers ? Please help
15.06.2025 - 13:55DROPS Design svaraði:
Dear Annamarie, from now on you repeat rounds 3 and 4, working the increases into the rib, as in round 3. You will increase before/after the markers, regardless of how many stitches are in between the markers. So you should always work as: Work rib until 1 stitch is left before the marker, 1 yarn over, knit 1, marker, knit 1, yarn over, continue working. Happy knitting!
16.06.2025 - 00:44
Gina skrifaði:
Hi Garnstudio. I’ve just cast on for this pattern and worked the first row, but having read through the first 4 rows and beyond, it says to continue increasing every 2nd round. However from what I can see the increases are on rows 1 and 3. Please clarify.
05.06.2025 - 11:13DROPS Design svaraði:
Dear Gina, correct, just continue to increase on every other round as you made before on round 1 and round 3 - read also INCREASE TIP until you have increased the required number of times/stitches. Happy knitting!
05.06.2025 - 14:26
Carmen Arteaga skrifaði:
Muy lindo, podria hacer este modelo con cuello, tipo balaclava?como tendria que hacerlo muchas gracias
07.03.2025 - 17:15DROPS Design svaraði:
Hola Carmen, nosotros no hacemos patrones personalizados. Puedes ver este patrón como ejemplo de una balaclava similar como inspiración.
09.03.2025 - 19:32
Anna skrifaði:
Forstår ikke instruktionerne efter 4. Omgang, hvis der fortsættes med at tage ud brydes 2ret/2vrang mønsteret, instruktionen med at løbende strikke omslagene ind i ribben giver ingen mening eller bør forklares bedre
26.08.2024 - 13:38
Gitte Rasmussen skrifaði:
Det er forvirrende, at man ifølge opskriften skal løfte opslaget over på højre pind ved udtagning EFTER mærketråden, når man i instruktionsvideoen gør det FØR mærketråden. Hvad er det rigtige at gøre?
15.06.2024 - 12:07
Gail skrifaði:
This pattern makes no sense to me how do I continue the increases? What are the purpose of the 2 markers?
09.04.2024 - 22:29DROPS Design svaraði:
Dear Gail, just continue increasing as you did before, ie on either side of the K2 with the marker in-between. Happy knitting!
10.04.2024 - 07:54
Forest Pixie Hat#forestpixiehat |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð húfa fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í stroffprjóni. Stærð 0 til 4 ára.
DROPS Baby 45-4 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn inn í stroffprjón til að koma í veg fyrir gat. Á UNDAN MERKIÞRÆÐI: Uppslátturinn er prjónaður slétt/brugðið í aftari lykkjubogann á uppslætti (nýja lykkjan verður snúin til hægri). Á EFTIR MERKIÞRÆÐI: Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón (þ.e.a.s. uppslátturinn er snúinn) og prjónið uppsláttinn slétt / brugðið í fremri lykkjubogann (nýja lykkjan verður snúin til vinstri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður. Í lokin eru prjónuð upp 2 snúrubönd sem saumuð eru niður í hvorri hlið á húfunni. HÚFA: Fitjið upp 8 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með DROPS Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur. Setjið 2 merkiþræði í stykkið, 1. merkiþráðurinn er settur á eftir 2. lykkju og 2. merkiþráðurinn er settur á eftir 6. lykkju (það eru 4 lykkjur á milli merkiþráða). Prjónið hringinn jafnframt því sem aukið er út um 1 lykkju hvoru megin við hvorn merkiþráð – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, þ.e.a.s. fyrstu 4 umferðir eru prjónaðar þannig: UMFERÐ 1: 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 12 lykkjur. UMFERÐ 2: 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn), 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 3: 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt = 16 lykkjur. UMFERÐ 4: 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn), 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt. Haldið áfram með útaukningu í annarri hverri umferð, uppslátturinn er prjónaður jafnóðum inni í stroffprjón 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið. Aukið út alls 22-22-26-26 (30-30) sinnum = 96-96-112-112 (128-128) lykkjur. Haldið áfram í stroffprjóni (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist ca 16-17-18-19 (19-20) cm. Fellið af. SNÚRA: Fitjið upp 4 lykkjur á prjón 3,5 og prjónið þannig: * 1 lykkja slétt, leggið þráðinn framan við stykkið (að þér), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, leggið þráðinn aftur aftan við stykkið (frá þér) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, færið lykkjurnar að byrjun á prjóni og haldið svona áfram í öllum umferðum. Núna myndast hringlaga prjónuð snúra. Fellið af þegar snúran mælist ca 20-22-24 (26-28) cm. Prjónið aðra snúru til viðbótar á saman átt. Saumið 1 snúru í hvora hlið á húfunni, ca 4 til 8 lykkjur á eftir 2 lykkjum slétt með útaukningu í hvorri hlið (í átt að miðju að aftan). |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #forestpixiehat eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 45-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.