Frida wrote:
Hej! Nu har jag försökt läsa diagrammet för hur man gör bladen, men jag förstår verkligen inte. Lyckas göra första halvan (den övre, om man ser i diagrammet) men förstår inte hur jag ska göra andra sidan. Hur gör jag vändningen? Som jag förstår ska man avsluta i motsatt ände som man börjar, men förstår inte hur det ska gå till. Virkar man inte runt löpmaskkedjan? Tack på förhand! Med vänliga hälsningar, Frida
29.12.2023 - 21:12DROPS Design answered:
Hej Frida, jo du virkar raden med luftm (i mitten), fortsætter med 7 dubbelstolpar (enligt diagrammet), 2 stolpar, 1 halvstolpe och 2 fastm, sedan 1 fm i enden, 2 fastm på andra sidan (mitt mot de førsta), sedan 1 halvstolpe, 2 stolpar, 5 dubbelstolpar, 3lm, 1 smygm i samma som dubbelstopen och sist 3 lm :)
05.01.2024 - 14:24
Sweet Lemon Hat |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Hekluð sítrónu húfa fyrir börn úr DROPS BabyMernio. Stykkið er heklað ofan frá og niður eins með stilk og blöðum. Stærð 0 - 4 ára.
DROPS Baby 45-12 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull/tvíbrugðinn stuðull. HEKLLEIÐBEININGAR-1: Fyrstu fastalykkju er skipt út fyrir 1 loftlykkju, umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. LITASKIPTI: Þegar skipta á um lit, heklið fram að þar til hekla á 1 keðjulykkju, skipti yfir í nýja litinn og heklið keðjulykkjuna með nýja litnum. HEKLLEIÐBEININGAR-2: Þegar heklað á í hring án þess að enda umferð er heklað þannig: Þegar síðasta fastalykkja í umferð hefur verið hekluð, heklið fyrstu fastalykkju í næstu umferð í fyrstu fastalykkju frá fyrri umferð. Notið prjónamerki eða merkiþráð til að auðvelda að sjá hvar umferðin byrjar / endar. Til að koma í veg fyrir að það myndist „hak“ neðst á húfunni, heklið við byrjun á síðustu umferð með 1 loftlykkju og umferðin endar með 1 keðjulykkju í þessa loftlykkju. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir hvernig blöðin eru hekluð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá stilki efst á húfu og niður. Það eru hekluð 2 laus blöð sem eru saumuð niður við stilkinn í lokin. HÚFA: Notið heklunál 3 og DROPS Baby Merino í litnum savlíugrænn. Heklið 5 LOFTLYKKJUR – sjá útskýringu að ofan og tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR-1. Heklið 10 fastalykkjur um hringinn. Haldið áfram að hekla 1 fastalykkju í hverja fastalykkju í hverri umferð þar til stykkið mælist ca 3-3-3-4 (4-4) cm. Lesið LITASKIPTI og skiptið yfir í litinn sítróna. Heklið síðan fastalykkjur jafnframt því sem aukið er út þannig – ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 1: Heklið * 1 fastalykkju í fyrstu / næstu lykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 15 fastalykkjur. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 3: Heklið * 1 fastalykkju í hvora af 2 fyrstu / næstu lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 20 fastalykkjur. UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 5: Heklið * 1 fastalykkju í hverja af 3 fyrstu / næstu lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 25 fastalykkjjur. UMFERÐ 6: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 7: Heklið * 1 fastalykkju í hverja af 4 fyrstu / næstu lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 30 fastalykkjur. UMFERÐ 8: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. Setjið eitt prjónamerki í þessa umferð – prjónamerkið er notað til að mæla frá. Nú breytist útaukningin og heklað er þannig: UMFERÐ 9: Heklið * 1 fastalykkju í hverja af 4 fyrstu / næstu lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 36 fastalykkjur. UMFERÐ 10: Heklið * 1 fastalykkju í hverja af 5 fyrstu / næstu lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 42 fastalykkjur. Haldið svona áfram með útaukningu – þ.e.a.s. það er hekluð 1 fastalykkja fleiri á milli í hvert skipti sem aukið er út í hverri umferð, þar til það eru alls 66-78-90-102 (108-102) lykkjur í umferð. Útaukningu er nú lokið í stærð 12/18 mánaða og 2 ára. STÆRÐ 0/1 - 1/3 - 6/9 mánaða og 3/4 ára: Heklið fastalykkjur og aukið út um 6 lykkjur alveg eins og áður, en í annarri hverri umferð alls 2-2-1 (2) sinnum. ALLAR STÆRÐIR: Það eru 78-90-96-102 (108-114) lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 4-5-5-5 (5-6) cm frá prjónamerki. Lestu HEKLLEIÐBEININGAR-2 og heklið síðan með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju þar til stykkið mælist ca 14-15-16-17 (17-18) cm frá prjónamerki. Nú er hekluð 1 umferð í lokin sem gerir það að kanturinn á húfunni rúllast aðeins upp, heklið þannig: * 1 fastalykkja í hverja af 12-14-15-16 (17-18) fyrstu / næstu fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn. Klippið þráðinn og festið. BLAÐ: Notið litinn salvíugrænn og heklunál 3, heklið 13 loftlykkjur – þessar loftlykkjur eru teiknaðar inn í mynsturteikningu A.1 – fylgið táknum og heklið blaðið eins og mynsturteikningin sýnir. Látið þráðarendann vera ca 15 cm til að hægt sé að nota hann þegar festa á blaðið á toppinn á húfunni. Heklið 1 blað til viðbótar á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið bæði blöðin á húfuna í skiptinguna á milli salvíugræna litnum og sítrónu litnum. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Frida wrote:
Frida här igen! Jag löste problemet som jag hade, vet inte om det är fel i mönstret, eller om jag bara tyckte det blev lättare såhär, men jag började inte där stjärnan är utmarkerad utan startade i motsatt ände (3 lm, två st i samma lm, 2 dubbelst, osv) och avslutade med ”två dubbelstolpar i samma lm, sm i samma m”. Och nu ser det ut som bilden och kändes mycket rimligare ☺️
29.12.2023 - 21:33