Stephanie skrifaði:
Goedendag, Klopt de beschrijving van de mouwen wel? Met deze beschrijving worden de mouwen breder dan de broekspijpen toch (muv de boord)? Groet, Stephanie
08.08.2024 - 15:10
Jannicke Røseng skrifaði:
På vrangborden til ermet (str 1/3mnd, 50 masker) er det forklart slik: 1 maske i RILLE – les forklaring over, * 2 rett, 2 vrang *, strikk fra *-* til det gjenstår 3 masker, strikk 2 rett og 1 kantmaske i rille. Når jeg følger dette ender jeg med 2 rett som siste masker når 3 gjenstår, og får dermed 4 rett og en kantmaske (r) som siste 5 masker. Dette ser ikke helt rett ut, vrangborden flyter ut i riller på begge ender (3 første og siste masker blir riller). Hva gjør jeg feil?
23.03.2024 - 13:03DROPS Design svaraði:
Hej Jannicke, det stemmer, det skal kun være 1 kantmaske tilbage, vi skal få det lagt ud i opskriften, tak for info :)
03.04.2024 - 14:33
Karina Rejnhold Sørensen skrifaði:
Kan det passe at ærmet er bredere end buksebenet?
28.02.2024 - 19:47DROPS Design svaraði:
Hei Karina. Vrangborden på beina er større / flere masker enn vrangborden på ermene (i nesten alle str). Men når det strikkes riller er det flere masker på ermet enn beina. mvh DROPS Design
04.03.2024 - 14:27
Vigdis skrifaði:
Hei! Skal det strikkes rundt på rundpinne, eller er der frem og tilbake hele tiden?
30.01.2024 - 11:34DROPS Design svaraði:
Hei Vigdis, Alle delene er strikket fram og tilbake, først beina som er deretter sydd sammen, og overdelen fram og tilbake. Ermene er strikket fram og tilbake og sydd inn til slutt. God fornøyelse!
31.01.2024 - 06:35
Marlies Van Dijk skrifaði:
Dan is de beschrijving niet helemaal goed : Dit staat er beschreven ; Brei 1 ribbelsteek, * 2 recht, 2 averecht *, brei van *-* tot er 3 steken over zijn, 2 recht en 1 ribbelsteek.
18.01.2024 - 23:03
Marlies Van Dijk skrifaði:
Klopt de beschrijving van de boordjes mouwen wel? Ik eindig met 2 averecht en 1 kantsteek, en niet met 2 rechte steken en 1 kantsteek. Ik maak de maat 1/3 maanden.
17.01.2024 - 18:43DROPS Design svaraði:
Dag Marlies,
Dat klopt, als je met 1 kantsteek en daarna 2 recht begint, dan eindig je met 2 averecht en daarna nog 1 kantsteek. Wanneer je de mouwnaden dicht naait, dan loopt de boordsteek mooi door met steeds 2 recht, 2 averecht.
18.01.2024 - 19:44
Winter Ready#winterreadyoverall |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónaður galli fyrir börn úr DROPS Lima eða DROPS Fiesta. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í garðaprjóni. Stærð 0 – 4 ára.
DROPS Baby 45-9 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti brugðið saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar kantur að framan mælist: 0/1 mánaða: 3, 8, 13, 18 og 23 cm 1/3 mánaða: 3, 9, 16, 23 og 30 cm 6/9 mánaða: 3, 10, 14, 21, 30 og 37 cm 12/18 mánaða: 3, 11, 19, 27, 35 og 43 cm 2 ára: 3, 11, 19, 27, 35 og 44 cm 3/4 ára: 3, 11, 19, 27, 35 og 44 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Allur gallinn er prjónaður neðan frá og upp. Hvor skálm er prjónuð fram og til baka, neðan frá og upp, hvor fyrir sig áður en þær eru settar saman, lykkjur eru fitjaðar upp fyrir skrefbót og stykkið er síðan prjónað fram og til baka á hringprjóna upp að öxlum. Ermar eru prjónaðar fram og til baka og saumaðar í. Í lokin er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli. Stroffið neðst á skálmum og á ermum er brotið inn, þannig að það verði tvöfalt. SKÁLM: Fitjið upp 50-54-58-62 (66-70) lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Lima eða DROPS Fiesta. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað stroff þannig – frá réttu: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4. Stykkið er nú mælt héðan! Síðan er prjónað garðaprjón yfir allar lykkjur, jafnframt í fyrstu umferð (rétta), á að fækka um 8-8-10-10 (10-10) lykkjur jafnt yfir = 42-46-48-52 (56-60) lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist 13-14-17-20 (25-34) cm, mælt eftir stroff. Klippið þráðinn. Prjónið hina skálmina á sama hátt. GALLI: Nú eru báðar skálmarnar settar saman og prjónað er áfram fram og til baka á hringprjón 4 þannig: Fitjið upp 7-7-8-9 (9-9) lykkjur, prjónið yfir lykkjur frá annarri skálminni, fitjið upp 8-8-10-12 (12-12) lykkjur og prjónið yfir lykkjur frá hinni skálminni, fitjið upp 7-7-8-9 (9-9) lykkjur = 106-114-122-134 (142-150) lykkjur. Prjónið síðan í garðaprjóni eins og áður, en ystu 6 lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar brugðið frá réttu og brugðið frá röngu (kantur að framan). Fellt er af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan, lesið útskýringu að ofan. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 17-23-29-35 (35-34) cm frá þar sem skálmar voru settar saman. Nú á að fækka lykkjum fyrir handveg, næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið fyrstu 24-26-28-30-31-33 lykkjur eins og áður, fellið af 8-8-8-10 (12-12) lykkjur fyrir ermi, prjónið næstu 42-46-50-54 (56-60) lykkjur eins og áður, fellið af 8-8-8-10 (12-12) lykkjur fyrir ermi, prjónið síðustu 24-26-28-30 (31-33) lykkjur eins og áður. Hver hluti er nú prjónað til loka fyrir sig. Setjið fyrstu og síðustu 24-26-28-30 (31-33) lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið síðan yfir 42-46-50-54 (56-60) lykkjur frá bakstykki eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: Haldið áfram í garðaprjóni yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 26-33-40-47-48-48 cm frá þar sem skálmar voru settar saman, fækkið um miðju 18-20-20-22 (22-24) lykkjur fyrir hálsmáli og axlir eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. Síðan er felld af 1 lykkja í næstu umferð við hálsmál = 11-12-14-15 (16-17) lykkjur á öxl. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 28-35-42-49 (50-50) cm frá þar sem skálmar voru settar saman (11-12-13-14 (15-16) cm frá skiptingu fyrir handveg), fellið af. Prjónið hina öxlina á saman hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka fyrstu 24-26-28-30 (31-33) lykkjur á hringprjón 4. Haldið áfram í garðaprjóni og prjónið brugðið í öllum umferðum yfir kant að framan eins og áður. Þegar stykkið mælist 24-31-38-44 (45-45) cm frá þar sem skálmar voru settar saman, setjið ystu 9-10-10-11 (11-12) lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Síðan eru lykkjur felldar af í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 11-12-14-15 (16-17) lykkjur á öxl. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 28-35-42-49 (50-50) cm frá þar sem skálmar voru settar saman (11-12-13-14 (15-16) cm frá skiptingu fyrir handveg), fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka síðustu 24-26-28-30 (31-33) lykkjur á hringprjón 4. Haldið áfram í garðaprjóni og prjónið brugðið í öllum umferðum yfir kant að framan eins og áður. Þegar stykkið mælist 24-31-38-44 (45-45) cm frá þar sem skálmar voru settar saman, setjið ystu 9-10-10-11 (11-12) lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Síðan eru lykkjur felldar af í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 11-12-14-15 (16-17) lykkjur á öxl. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 28-35-42-49 (50-50) cm frá þar sem skálmar voru settar saman (11-12-13-14 (15-16) cm frá skiptingu fyrir handveg), fellið af. ERMAR: Fitjið upp 46-50-54-58 (66-70) lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Lima eða DROPS Fiesta. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað þannig – frá réttu: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4. Stykkið er nú mælt héðan! Prjónið síðan í garðaprjón yfir allar lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 11-14-16-19 (23-28) cm, mælt frá eftir stroff, fellið af. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á ermi, 2-2-2-2 (3-3) cm niður frá affellingarkanti, merkiþræðirnir eru notaðir við frágang á ermi. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermakúpu við handveg. Saumið síðan efstu 2-2-2-2 (3-3) cm á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið sauma undir ermum í ysta lykkjuboga á ystu lykkju, þannig að saumurinn verði flatur. Saumið opið saman á milli skálma (kantur að framan er lagður saman tvöfaldur, þannig að yfir kantlykkjur að framan er saumað í gegnum 3 lög). Saumið sauminn innan á hvorri skálm, saumið í ysta lykkjuboga í ystu lykkju, þannig að saumurinn verði flatur. Brjótið stroffið inn á ermum og skálmum að innanverðu á stykki, þannig að það verði tvöfalt, festið með smáu spori í hvora hlið. Saumið tölur í vinstra framstykki. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið mitt að framan og frá réttu og prjónið upp ca 62 til 78 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þráðum, lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4 + 2) í kringum hálsmál (ásamt lykkjum af þráðum) á hringprjón 3,5. Prjónið stroff þannig – fyrsta umferð er prjónuð frá röngu: 6 kantlykkjur að framan brugðið eins og áður, 2 lykkjur brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 6 kantlykkjur að framan brugðið eins og áður. Prjónið stroff í 3 cm. Fellið af ystu 5 lykkjur í hvorri hlið og haldið áfram með stroff eins og áður með 1 lykkju brugðið í hvorri hlið. Prjónið þar til kantur í hálsmáli mælist 6 cm alls. Fellið laust af. Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Saumið opið saman mitt að framan í kanti að framan með smáu spori. Til að koma í veg fyrir að kanturinn í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterreadyoverall eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 45-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.