Germana skrifaði:
Buongiorno, sto realizzando il modello nella taglia 1-3 mesi. Sto lavorando lo sprone e ho quasi finito il numero di aumenti previsto, ma mi mancano ancora almeno 3-4 centimetri per finire lo sprone. Devo continuare con gli aumenti della raglan o no? Grazie
18.09.2024 - 14:19DROPS Design svaraði:
Buonasera Germana, nelle spiegazioni viene indicato di continuare fino alla lunghezza indicata, alla fine degli aumenti. Buon lavoro!
18.09.2024 - 16:29
Germana skrifaði:
Sto facendo il modello, ma ho un dubbio: nelle istruzioni si dice che dopo la serie di aumenti si procede con lo sprone senza più aumentare, mentre nella foto sembra che gli aumenti della raglan proseguano per tutto lo sprone. Come devo regolarmi? Grazie
16.09.2024 - 12:16DROPS Design svaraði:
Buonasera Germana, ci può indicare il punto esatto che sta lavorando? Buon lavoro!
17.09.2024 - 21:08
Germana skrifaði:
Sto facendo il modello, ma ho un dubbio: nelle istruzioni si dice che dopo la serie di aumenti si procede con lo sprone senza più aumentare, mentre nella foto sembra che gli aumenti della raglan proseguano per tutto lo sprone. Come devo regolarmi? Grazie
16.09.2024 - 12:09DROPS Design svaraði:
Buonasera Germana, ci può indicare il punto esatto che sta lavorando? Buon lavoro!
17.09.2024 - 21:08
Angelika skrifaði:
Wo kommen denn die Knopflöcher hin?
21.04.2024 - 12:02DROPS Design svaraði:
Liebe Angelika, die Knopflöcher werden an der rechten Blende (= am Ende einer Hin-Reihe da, man von oben nach unten strickt) eingearbeitet, wie unter KNOPFLÖCHER am Anfang der schriftlichen Anleitung erklärt. Viel Spaß beim Stricken!
22.04.2024 - 08:36
Colleen skrifaði:
What a darling pattern. I cant wait to make one. Thanks
20.03.2024 - 01:50
Elyse A Coleman skrifaði:
This pattern is for a hat but photo and diagram show a sweater.
10.03.2024 - 21:01DROPS Design svaraði:
Thanks for noticing, the right pattern is now online. Happy knitting!
11.03.2024 - 14:24
Blue Song#bluesongcardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað með laskalínu og vösum, ofan frá og niður. Stærð 0 – 2 ára.
DROPS Baby 45-21 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn þannig: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Uppslátturinn er prjónaður snúinn í aftari lykkjubogann á uppslætti (nýja lykkjan verður snúin til hægri, séða frá réttu). Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón (þ.e.a.s. uppslátturinn er snúinn) og prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann (nýja lykkjan verður snúin til vinstri, séð frá réttu). Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4-4-4 (5) næstu hnappagötum með ca 5-6-6½-7 (6½) cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 64-68-72-76 (80) lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Síðan er stroff prjónað þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Fækkið lykkjum fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist 2 cm, skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun umferðar mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið, án þess að prjóna lykkjurnar þannig (hvert prjónamerki er sett á milli 2 lykkja). Teljið 14-15-16-17 (18) lykkjur (framstykki), setjið 1 prjónamerki, teljið 8 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki, teljið 20-22-24-26 (28) lykkjur (bakstykki), setjið 1 prjónamerki, teljið 8 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki. Nú eru 14-15-16-17 (18) lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 2 lykkjur við hvert prjónamerki – lesið LASKALÍNA. Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 11-13-14-15 (17) sinnum = 152-172-184-196 (216) lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar útaukningu er lokið, prjónið stykkið í sléttprjóni með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 9-10-11-12 (13) cm frá prjónamerki í hálsmáli, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 19-22-24-26 (29) lykkjur sléttprjón, setjið næstu 32-36-38-40 (44) lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8 (6) lykkjur, undir ermi, prjónið 40-46-50-54 (60) lykkjur sléttprjón, setjið næstu 32-36-38-40 (44) lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8 (6) lykkjur undir ermi, prjónið 19-22-24-26 (29) lykkjur sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 100-112-124-132 (140) lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 10-13-14-16 (18) cm frá skiptingu, aukið út um 12-12-16-16 (16) lykkjur jafnt yfir í næstu umferð frá réttu (lykkjum er ekki aukið út yfir kantlykkjur að framan) = 112-124-140-148 (156) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Síðan er prjónað stroff með byrjun frá röngu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Fellið af þegar stroffið mælist 3 cm. Peysan mælist ca 24-28-30-33 (36) cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 32-36-38-40 (44) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8 (6) lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 38-42-46-48 (50) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja og byrjið umferð við prjónamerki (= mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona í 3.-3.-2.-2. (3.) hverjum cm alls 2-3-5-5 (5) sinnum = 34-36-36-38 (40) lykkjur. Þegar stykkið mælist 8-11-12-15 (18) cm frá skiptingu, aukið út um 2-4-4-6 (4) lykkjur jafnt yfir = 36-40-40-44 (44) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af þegar stykkið mælist 2 cm. Ermin mælist ca 10-13-14-17 (20) cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. VASI: Prjónið 2 lausa vasa þannig: Fitjið upp 10-14-14-18 (18) lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Merino Extra Fine. Prjónið * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt. Prjónið stroff í 2 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 5-5-5-5 (6 cm). Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið vasana á framstykkið ca 3 til 4 cm inn frá kanti að framan og 2 til 3 cm upp frá stroffi á fram- og bakstykki. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bluesongcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 45-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.