Kathryn Dickson skrifaði:
I am wondering if there is a misprint in the pattern? When knitting the Body, the pattern says to "continue stockinette stitch in the round for a further 6 3/4 " for the largest size. Should it be 9 3/4"? Otherwise it seems very short. (Shorter than the smaller sizes). Also, can the sleeves be worked in the round, rather than back and forth? Thanks for your help!
14.03.2025 - 15:53DROPS Design svaraði:
Dear Kathryn, the pattern is correct; the yoke is much longer in the largest size than the other sizes (5cm longer than the previous size) so, when you need to work the body in stocking stitch until the bottom rib, the number of necessary cm for the full length is shorter than in other sizes (3cm less than the previous size, but it's still 2 cm longer overall). You can check that the total measurements are correct and match the size schematic. The sleeve can be worked in the round; it's worked back and forth for confort, since the needles and yarn used are large, but you can perfectly work it in the round if you prefer that. Happy knitting!
16.03.2025 - 18:45
Sylvie McDuff skrifaði:
Bonjour, je commence à tricoter, j'aimerais faire le pull Red Embers Sweater, j'aimerais avoir une petite idée de la grandeur qu je dois prendre comme je suis débutante ça m,aiderait beaucoup.
20.02.2025 - 23:05DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme McDuff, mesurez un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la forme et comparez ces mesures à celles du schéma en bas de page, c'est la méthode la plus simple pour trouver la taille correspondante. Retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!
21.02.2025 - 08:46
Monica Johansson skrifaði:
Förstår inte minskningen på ärmen, kan ni förtydliga det för mig?
27.01.2025 - 11:08DROPS Design svaraði:
Hej Monica. Du börjar minskningen när arbetet mäter det antal cm som står i beskrivningen för din storlek. Första minskningen görs på höger sida av arbetet genom att sticka 2 rm tillsammans, nästa minskning görs sedan på vänster sida av arbetet och så fortsätter du göra minskningen så växelvis på höger och vänster sida enligt beskrivningen. Mvh DROPS Design
28.01.2025 - 08:30
Pernille skrifaði:
Hej, jeg har købt air drops til denne opskrift og bruger også rundpin nr 15, men halsen virker så løs? hvordan løser jeg dette problem
01.10.2024 - 10:36DROPS Design svaraði:
Hei Pernille, Du kan begynne med å legge opp færre masker og strikke halsen, før du øker til bærestykke, eller bruke en størrelse mindre rundpinne til halsen. God fornøyelse!
24.10.2024 - 10:33
Bernie Courtney skrifaði:
It says size 15 needles, does that mean 15mm or is it referring to US sizing or something else?
09.05.2024 - 10:12DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Courtney, you need here needle size 15 mm - read more about tension here. Happy knitting!
10.05.2024 - 08:35
Red Embers Sweater#redemberssweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Polaris eða 4 þráðum DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 245-30 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- SKIPT UM ÞRÁÐ (á við um þegar prjónað er með Polaris): Þegar skipt er um dokku af Polaris þá er endanum skipt í tvo hluta á garninu sem er að ljúka ca 15 cm - klippið af annan endann, það sama er gert við nýja þráðinn. Leggið fyrri og síðustu 15 cm yfir hvorn annan þannig að grófleikinn verði eðlilegur á garninu og prjónið áfram - með þessu er komið í veg fyrir að samskeytin sjáist. ÚRTAKA-1 (á við um berustykki): Á eftir merkiþræði: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Á undan merkiþræði: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um ermar): ATH: Til að útaukningar komi til skiptis í hægri og vinstri hlið á stykki er lykkjum fækkað til skiptis í byrjun og í lok umferðar sem fækka á lykkjum í. Fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman frá réttu eða 2 lykkjur brugðið saman frá röngu. MAGIC LOOP / GALDRALYKKJA: Ef prjónað er í hring á hringprjón sem er of langur fyrir lykkjufjöldann er hægt að gera það þannig: Hringprjóninn á að vera langur og hafa sveigjanlega snúru. Færið lykkjurnar að miðju á snúrunni. Deilið lykkjunum í tvennt og dragið snúruna út á milli lykkja fyrir miðju. Færið lykkjurnar að prjónaendanum í hvorri hlið, passið uppá að lykkjurnar verði ekki snúnar. Þráðurinn sem prjóna á með er á aftari prjóni og þú byrjar á að prjóna með fremri prjóni. Dragið út aftari prjóninn til að prjóna lykkjurnar á þeim fremri. Þegar lykkjur á fremri prjóni hafa verið prjónaðar, snúið við og færið lykkjurnar til baka á auða prjóninn og prjónið hina hliðina alveg eins. Haldið svona áfram hringinn, passið uppá að draga alltaf út prjóninn í þeirri hlið þar sem þú hefur þráðinn. LASKALÍNA: Aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við hvern merkiþráð (8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út þannig, byrjið 1 lykkju á undan merkiþræði: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (merkiþráður situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn þannig: Á UNDAN MERKIÞRÆÐI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það á ekki að myndast gat. Á EFTIR MERKIÞRÆÐI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það á ekki að myndast gat. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá vinstri öxl að aftan, ofan frá og niður. Stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar, fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna niður að klauf og síðan fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna. Lesið SKIPT UM ÞRÁÐ (á við um þegar prjónað er með Polaris). KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 40-40-44-44-48-52 lykkjur á hringprjón 15 með 1 þræði DROPS Polaris eða 4 þráðum DROPS Air. Lesið MAGIC LOOP / GALDRALYKKJA í útskýringu að ofan. Prjónið hringinn í stroffprjóni (1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) þar til kantur í hálsmáli mælist 9 cm. Setjið eitt prjónamerki hér, héðan er nú berustykkið mælt. BERUSTYKKI: Setjið 4 merkiþræði í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar þannig: Fyrsti merkiþráðurinn er í byrjun umferðar, annar merkiþráðurinn er eftir 14-14-16-16-18-20 lykkjur (bakstykki), þriðji merkiþráðurinn er eftir 6 nýjar lykkjur (ermi), fjórði merkiþráðurinn er eftir 14-14-16-16-18-20 nýjar lykkjur (framstykki), nú eru eftir 6 lykkjur fram að fyrsta merkiþræði (ermi). Prjónið 1 umferð slétt, þar sem fækkað er um 1 lykkju hvoru megin við hvern merkiþráð – lesið ÚRTAKA-1 = 32-32-36-36-40-44 lykkjur. Prjónið sléttprjón, JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð 8-10-10-11-12-14 sinnum = 96-112-116-124-136-156 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Útaukning fyrir laskalínu í stærð M, L, XXL og XXXL er nú lokkið. Í stærð S og XL er aukið út fyrir laskalínu á fram- og bakstykki 1 sinni til viðbótar (ekki er aukið út á ermum) = 4 lykkjur fleiri. Það eru 100-112-116-128-136-156 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni án þess að auka út þar til berustykkið mælist ca 25-25-28-30-30-35 cm frá prjónamerki eftir kanti í hálsmáli. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 30-32-34-38-40-46 lykkjur sléttprjón (bakstykki), setjið næstu 20-24-24-26-28-32 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-4-6-6 lykkjur í hlið undir ermi, prjónið 30-32-34-38-40-46 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 20-24-24-26-28-32 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-4-6-6 lykkjur í hlið undir ermi. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Stykkið er nú mælt héðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 68-72-76-84-92-104 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið, mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp (2-2-2-2-3-3 nýjar lykkjur hvoru megin við merkiþráð), það eru 34-36-38-42-46-52 lykkjur á milli merkiþráða fyrir bakstykki og framstykki. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 17-19-18-18-20-17 cm, skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki við annan merkiþráðinn. Prjónið yfir lykkjur frá bakstykki og setjið þessar 34-36-38-42-46-52 lykkjur á þráð. FRAMSTYKKI: Nú á að prjóna stroff fram og til baka yfir 34-36-38-42-46-52 lykkjur á framstykki. Prjónið frá réttu þannig: 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* JAFNFRAMT sem aukið er út um 1 lykkju í umferð, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúið slétt og 2 lykkjur í garðaprjóni. Prjónið frá röngu þannig: 2 lykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja snúið brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúið brugðið og 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 6 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl á framstykki. BAKSTYKKI: Setjið til baka lykkjur frá bakstykki á prjóninn. Prjónið stroff og aukið út á sama hátt og á framstykki. Prjónið þar til stroffið mælist 8 cm. Klaufin á framstykki er 6 cm að lengd, klaufin á bakstykki er 8 cm að lengd. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl á bakstykki. ERMI: Ermarnar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna og saumaðar saman í lokin. Setjið til baka 20-24-24-26-28-32 lykkjur af þræði á hringprjón 15 og fitjið upp 2-2-2-2-3-3 nýjar lykkjur í hvorir hlið = 24-28-28-30-34-38 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 4-4-2-4-4-2 cm, fækkið um 1 lykkju í hægri hlið á stykki – lesið ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum til skiptis vinstra og hægra megin á stykki í 12.-6.-12.-12.-4.-2. hverri umferð 2-4-2-2-4-6 sinnum (= 1-2-1-1-2-3 sinnum í hvorri hlið) = 22-24-26-28-30-32 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 33-34-31-30-29-24 cm. Nú er prjónað stroff þannig: Frá réttu: * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja snúið slétt *, prjónið frá *-* út umferðina. Frá röngu: * 1 lykkja snúið brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* út umferðina. Prjónið svona þar til stroffið mælist 6 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist 39-40-37-36-35-30 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saum undir ermum í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði ekki þykkur. Saumið saman op undir ermum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #redemberssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 245-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.