Anette Brandt Schmidt skrifaði:
Hej Flot sweater. Kan I foreslå farvevalg, hvis jeg gerne vil have den i grønlige / skov farve?
06.01.2025 - 09:58DROPS Design svaraði:
Hei Anette. Fargevalg er ganske personlig, så jeg anbefaler deg heller til å se på fargene vi har i Nepal og sett de sammen selv. Bruk gjerne hovefargen er som er på bilde, men bytt de andre fargene du ønsker, f,eks lys mot lys grønn, mørk mot mørk grønn. mvh DROPS Design
07.01.2025 - 16:03
Sarah skrifaði:
Hi together, I'd like to knit the "autumn reflections sweater" for a man "sized xs - xxs". Would you mind telling me how to adopt the size chart? Thanks in advance, looking forward to your answer!
16.12.2024 - 10:46DROPS Design svaraði:
Dear Sarah, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request, but you will find all nordic jumpers for children size 13/14 here. One of them might inspire you. Happy knitting!
20.12.2024 - 08:35
Marita Halstensen skrifaði:
Hej. Stickar Autumn Reflections Sweater men undrar från när mäter jag 24 cm på OK’et. Har stickat A1 och A2?
28.10.2024 - 09:39DROPS Design svaraði:
Hej Marita. När du stickat klart A.2 så fortsätter du att sticka i beige tills oket mäter 24 cm. Mvh DROPS Design
29.10.2024 - 10:37
Marita Sainio skrifaði:
On siis kysymys XL-koosta. Ohjeesta puuttuu väli 140-280 silmukkaa.
25.10.2024 - 11:03
Marita Sainio skrifaði:
Miten lisätään kaarrokkeessa lisää silmukoita, kun kaarrokkeessa lukee esim. 140 ja sitten seuraavassa kohdassa lukee piirroksen A.1 lisätään 7 silmukkaa, niin mistä saan ne 140 muuta silmukkaa? Jotain ohjeesta puuttuu.
25.10.2024 - 10:11DROPS Design svaraði:
Hei, piirroksen A.1 mallineuleen aikana tehdään lisäyksiä. Piirroksen jokaiseen mallikertaan lisätään yhteensä 4 silmukkaa, eli silmukkaluku tuplaantuu mallineuleen aikana.
25.10.2024 - 17:46
Eileen Powell skrifaði:
I am about to knit this in Drops Alaska, but want to add a back neck rise for a better fit. Can you direct me to a similar pattern in yarn group C which I could compare in order to adapt? Or is there a tutorial to explain how to adapt ?
25.09.2024 - 12:35DROPS Design svaraði:
Hi Eileen, Here is a link to our video on how to work an elevation mid-back. https://www.garnstudio.com/video.php?id=894&lang=en Happy knitting!
26.09.2024 - 06:41
Kerstin Faming skrifaði:
Mönster A1: hur stickar jag varv 5,6,7 och 8
18.09.2024 - 10:54DROPS Design svaraði:
Hej Kerstin. Varv 5: 1 rm valnöt, 1 rm skog, 1 rm valnöt, 1 rm skog. Varv 6: 3 rm skog, 1 rm beige. Varv 7: 1 rm beige, 1 rm skog, 2 rm beige, 1 omslag. Varv 8: 5 rm beige. Mvh DROPS Design
18.09.2024 - 13:19
Val Porter skrifaði:
Hello, me again. Knitting the A1 chart. On the 4th row are the increases between every 7th stitch? If so, on the following row, the extra stitches aren't shown, there has to be 4 stitches in light beige to keep the pattern correct. Thank you
04.02.2024 - 22:01DROPS Design svaraði:
Dear Val, on the 4th row of A.1 you still have 4 stitches; remember that charts are read from the bottom up. You can check this out in the following lesson: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=68&cid=19. On the 7th round you have an increase from 4 stitches to five and, as you can see, the next round of the chart (which is on top of it) has 5 stitches. Happy knitting!
05.02.2024 - 00:02
Els skrifaði:
Bij de pas staat: als het werk x cm is, verdeel dan over lijf en mouwen. Vanaf waar is die x cm te meten? Vanaf de tricotsteek die volgt na de boordsteek van de dubbele halsrand, of telt die halsrand ook mee in de x cm? Bedankt!
24.01.2024 - 07:16DROPS Design svaraði:
Dag Els,
Dit is inderdaad vanaf de tricotsteek die volgt na de boordsteek.
28.01.2024 - 19:29
Val Porter skrifaði:
I wish to knit the Autumn Reflections jumper for a man whose chest size is 43 inches (109 cm). I cannot work out whether this is a medium or large size . Please can you help?
26.12.2023 - 22:33DROPS Design svaraði:
Dear Val, the size chart at the bottom of the pattern has the measurements of the finished garment in cm. Since size M is for a chest of 106cm it won't fit a chest of 109 cm. Size L would give you a chest of 112cm, so you should work that one. Happy knitting!
28.12.2023 - 23:46
Autumn Reflections Sweater#autumnreflectionssweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og marglitu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 246-4 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi út lykkjum jafnt yfir, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d.14) = 6. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þegar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84-88-92-96-100-104 lykkjur með litnum kamel DROPS Nepal yfir stuttan hringprjón 4 og stuttan hringprjón 5 sem haldið er saman. Dragið út hringprjón 5 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 4 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 10 cm, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-16-18-22-24-26 lykkjur lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 96-104-110-118-124-130 lykkjur. Kantur í hálsmáli er síðar brotinn niður og saumaður niður, þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á stuttan hringprjón 5. Prjónið sléttprjón með litnum kamel í 4 cm, í næstu umferð er aukið út um 12-16-18-22-24-26 lykkjur jafnt yfir = 108-120-128-140-148-156 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Lesið LEIÐBEININGAR og prjónið A.1 yfir allar lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í síðustu umferð í A.1 er aukið út um 1-5-3-7-5-3 lykkjur jafnt yfir = 217-245-259-287-301-315 lykkjur. Prjónið A.2 yfir allar lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 248-280-296-328-344-360 lykkjur í umferð. Stykkið er síðan prjónað í sléttprjóni í litnum beige. Þegar stykkið mælist 24-24-25-26-28-30 cm, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 38-42-44-50-54-57 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki), setjið næstu 48-56-60-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 76-84-88-100-108-114 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 48-56-60-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið þær 38-42-44-50-54-57 lykkjur sem eftir eru eins og áður (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 164-180-192-216-236-252 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum beige þar til stykkið mælist 34-36-37-38-38-38 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24-24-24-28-32-32 lykkjur jafnt yfir = 188-204-216-244-268-284 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 68-70-72-74-76-78 cm frá öxl. ERMI: Setjið 48-56-60-64-64-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-62-68-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi – mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn með litnum beige. Þegar stykkið mælist 3 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-4-3½-3-3-2½ cm millibili alls 7-9-10-12-11-13 sinnum = 40-44-48-48-52-52 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 40-40-40-39-38-36 cm frá skiptingu. Nú eru eftir 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-8-8-8-8-8 lykkjur jafnt yfir = 48-52-56-56-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 46-46-46-45-44-42 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #autumnreflectionssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 246-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.