Carin Ehrs skrifaði:
Raglanökning: Hur ska jag sticka den ökade raglanmaskan från rätsidan? Ska maskan stickas rät från rätsidan och bli en del av fram- respektive bakstycket? mvh/Carin
10.12.2023 - 08:41DROPS Design svaraði:
Hei Carin. Öka 1 maska på varje sida av A.1/A.2 genom att göra 1 omslag om stickan efter/före A.1/A.2 som förklarat i beskrivningen. På nästa varv stickas omslagen vridna som förklarat nedan, sedan stickas de nya maskorna fortlöpande in i resår över varje axel och slätstickning på framstycket/bakstycket. mvh DROPS Design
11.12.2023 - 12:53
Van Doninck Margriet skrifaði:
Hoe brei ik verder na de halswarmer. Dus het patroon , raglan op de rondbreinaald.
12.11.2023 - 21:14DROPS Design svaraði:
Dag Margriet,
Je breit dan verder in patroon en meerdert tegelijkertijd voor de raglan. Daarom moet je beide paragrafen eerst goed doorlezen voordat je verder breit. Je breit dus in patroon en als A.1 klaar is in de hoogte, brei je A.2 boven A.1 en de schoudersteken brei je in boordsteek. Terwijl je dit patroon verder breit meerder je tegelijkertijd voor de RAGLAN, zoals beschreven staat onder de paragraaf RAGLAN.
15.11.2023 - 14:01
Barbara Schmale skrifaði:
Sorry, ich habe wieder aufgemacht. Wieder eine ihrer Anleitungen mit denen man nicht klar kommt. Das ist wirklich ärgerlich.
29.09.2023 - 22:02
Barbara Schmale skrifaði:
Nach den ersten 12cm ist dieAnleitung total unverständlich für mich. A1 und A2 sind nicht separat erklärt und ich verstehe das vorne und hinten nicht.
26.09.2023 - 19:40DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Schmale, nach den 12 cm sollen Sie Bündchen wie zuvor. + das Diagram A.1 stricken, so wird man für die Zöpfe in A.2 zunehmen; bei der 2. Reihe A.1 nehmen Sie für den Raglan zu; und dann stricken Sie A.2 anstatt A.1 für die Raglanlinien und stricken Sie weiter mit den Raglanzunehmen beidseitig von A.2. Viel Spaß beim stricken!
29.09.2023 - 07:43
Cheryl O'Bryan skrifaði:
Chestnut warmer
03.08.2023 - 22:00
Lydia skrifaði:
Shieldmaiden
03.08.2023 - 20:37
Inga Heafey skrifaði:
Wonderful and very heroic looking
03.08.2023 - 14:49
Thais Ribeiro skrifaði:
Armory vest
03.08.2023 - 13:07
Chestnut Love Neck Warmer#chestnutloveneckwarmer |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónað hálsskjól úr DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Fiesta. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og köðlum.
DROPS 242-32 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.1/A.2 með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir/undan A.1/A.2 eins og útskýrt er í uppskrift. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn eins og útskýrt er að neðan, síðan eru nýju lykkjurnar prjónaðar jafnóðum inn í stroffprjón yfir hvorri öxl og sléttprjóni á framstykki/bakstykki. Uppslátturinn er prjónaður frá réttu á undan og á eftir A.1/A.2 þannig: Á UNDAN A.1/A.2: Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, stingið inn vinstri prjóni í lykkjuna og setjið til baka yfir á vinstri prjón (uppslátturinn er snúinn), prjónið uppsláttinn slétt eða brugðið, það á ekki að myndast gat. Á EFTIR A.1/A.2: Prjónið uppsláttinn snúinn slétt eða snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Uppslátturinn er prjónaður frá röngu á undan og á eftir A.1/A.2 þannig: Á UNDAN A.1/A.2: Prjónið uppsláttinn snúinn brugðið eða snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Á EFTIR A.1/A.2: Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, stingið inn vinstri prjóni í lykkjuna og setjið til yfir á vinstri prjón (uppslátturinn er snúinn), prjónið uppsláttinn brugðið eða slétt, það á ekki að myndast gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við kaðlana til að forma berustykkið. Síðan eru axlalykkjurnar felldar af. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að loka máli. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 128-136-144 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Fiesta. Fyrsta umferð er prjónuð frá hægri öxl að aftan þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram með stroffprjón í 10-11-12 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð frá hægri öxl að aftan þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 5-6-7 sinnum, 2 lykkjur slétt, A.1, 22 lykkjur sléttprjón (mitt að framan), A.1 * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 5-6-7 sinnum, 2 lykkjur slétt, A.1, 22 lykkjur sléttprjón (mitt að aftan), A.1 = 166-176-186 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á aðra öxlina, þ.e.a.s. mitt í einingu í stroffprjóni. Prjónamerki er notað aðeins síðar til að mæla frá. Síðan er mynstur prjónað og aukið er út fyrir laskalínu eins og útskýrt er að neðan. Lestu báða kaflana áður en þú prjónar áfram. MYNSTUR: Haldið áfram með mynstur á sama hátt og útskýrt er að ofan, en þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.2 yfir lykkjur í A.1. A.2 er endurtekið á hæðina. Yfir axlalykkjurnar er prjónað stroff (í fyrstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat, síðan heldur stroffið áfram með 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! LASKALÍNA: Jafnframt í síðustu umferð í A.1 er aukið út fyrir LASKALÍNA á eftir/undan hverri mynstureiningu A.1 – lestu útskýringu að ofan (byrjaðu á að auka út í byrjun á umferð á eftir síðustu mynstureiningu A.1 í umferð – aukið er út um 8 lykkjur í hverri umferð). Haldið áfram með útaukningu hvoru megin við A.2 í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 15 sinnum í öllum stærðum (ásamt útaukningu hvoru megin við A.1) = 286-296-306 lykkjur. Endið eftir oddatölu í umferð A.2, þannig að snúningur á kaðli sé frá réttu þegar stykkið er núna prjónað fram og til baka. Klippið þráðinn. SKIPTING FYRIR FRAMSTYKKI OG BAKSTYKKI: Umferðin sem nú á að prjóna verður að vera á sléttri tölu í umferð í A.2. Lyftið yfir 3 fyrstu lykkjum í umferð (2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið) á hægri prjón án þess að prjóna lykkjurnar. Fellið aðeins laust af næstu 51-56-61 lykkjur yfir öxl, prjónið 1 lykkju í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, 2 lykkjur slétt, A.2, 52 lykkjur sléttprjón, A.2, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja í garðaprjóni, setjið síðan þessar 92 lykkjur á þráð eða á hjálparprjón fyrir bakstykki, fellið aðeins laust af næstu 51-56-61 lykkjur yfir öxl, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, A.2, 52 lykkjur sléttprjón, A.2, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja í garðaprjóni = 92 lykkjur í umferð í öllum stærðum fyrir framstykki. FRAMSTYKKI: = 92 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og útskýrt er að ofan. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er aukið út í stærð M/L og L/XL þannig: Aukið út um 1 lykkju eins og áður á eftir A.2 í byrjun á umferð frá réttu og á undan A.2 í lok umferðar frá réttu = 92-94-94 lykkjur. Endurtakið útaukningu í stærð L/XL þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir án útaukninga = 92-94-96 lykkjur. Þegar framstykkið mælist 29-31-33 cm frá prjónamerki á öxl og næsta umferð á að prjóna frá röngu, skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, 2 lykkjur brugðið, A.3, prjónið sléttprjón yfir næstu 52-54-56 lykkjur og aukið jafnframt út um 6-8-6 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið A.3, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja í garðaprjóni = 98-102-102 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, A.3, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 14-15-15 sinnum, 2 lykkjur slétt, A.3, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka. Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir í stroffprjóni, aukið út um 14-15-15 lykkjur á milli A.3 mitt að framan með því að auka út allar 2 lykkjur brugðið (séð frá réttu) til 3 lykkjur brugðið. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir hverjum 2 lykkjum brugðið. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð svo ekki myndist gat = 112-117-117 lykkjur. Haldið áfram með stroffprjón þar til stykkið mælist ca 34-36-38 cm frá prjónamerki á öxl (ca 5 cm stroffprjón). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. BAKSTYKKI: Setjið til baka 92 lykkjur af þræði/hjálparprjóni frá bakstykki á hringprjón 4. Prjónið á sama hátt og framstykki. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #chestnutloveneckwarmer eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 242-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.