Mina skrifaði:
Sweet lace
07.08.2023 - 10:02
Savita Khurana skrifaði:
Frilled border with classy knitting patterns
07.08.2023 - 02:50
Erika skrifaði:
Grandessa
06.08.2023 - 17:43
Flocaeymaex skrifaði:
Philomène
05.08.2023 - 16:57
Franziska skrifaði:
Wisteria
05.08.2023 - 04:53
Sveta skrifaði:
Lilac
04.08.2023 - 14:56
Corinne Sakura-san skrifaði:
Lavande
04.08.2023 - 11:37
Birgitte skrifaði:
Frilly light
04.08.2023 - 10:56
Nadja skrifaði:
Name for the object: Lily Lace
03.08.2023 - 19:23
Negin Ghasemii skrifaði:
Lavendar haze🤍
03.08.2023 - 12:45
Lavender Romance Sweater#lavenderromancesweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í garðaprjóni og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 243-15 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn er staðsettur mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna upp að handvegi. Fram- og bakstykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað áfram fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón upp að ermakúpu, síðan er afgangur af erminni prjónað fram og til baka. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 245-266-280-301-329-357 lykkjur á hringprjón 3,5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar, látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroffprjón eins og útskýrt er í A.1a yfir allar lykkjur. Þegar A.1a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina prjónið A.1b yfir allar lykkjur alls 2 sinnum á hæðina. Stykkið mælist ca 9 cm. Síðan er mynstrið prjónað þannig: Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið A.2 yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 57-66-68-73-81-89 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 188-200-212-228-248-268 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, mælist stykkið ca 18-18-18-19-19-19 cm frá uppfitjunarkanti. Endurtakið A.2. þegar stykkið mælist ca 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af fyrir handveg þannig: Fellið af 2-3-4-6-7-8 lykkjur, prjónið 90-94-98-102-110-118 lykkjur eins og áður, fellið af næstu 4-6-8-12-14-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið 90-94-98-102-110-118 lykkjur eins og áður og fellið af síðustu 2-3-4-6-7-8 lykkjur fyrir handveg. Klippið þráðinn. Prjónið síðan bakstykki og framstykki fram og til baka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 90-94-98-102-110-118 lykkjur. Haldið áfram með mynstrið eins og áður þar til A.2 hefur verið prjónað alls 4 sinnum á hæðina og stykkið mælist ca 46-46-46-50-50-50 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm frá skiptingu, prjónið skáhallandi öxl og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 32-34-35-37-39-43 lykkjur, fellið af næstu 26-26-28-28-32-32 lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið þar til 7-8-8-9-9-10 lykkjur eru eftir í umferð. Snúið og prjónið til baka. Hvor öxl er nú prjónuð til loka hvor fyrir sig. Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 7-8-8-9-9-10 lykkjur færri í lok hverrar umferðar frá hálsi alls 3 sinnum og fækkið JAFNFRAMT um 1 lykkju fyrir hálsmáli í byrjun á fyrstu umferð frá hálsi = 31-33-34-36-38-42 lykkjur. Prjónið 1 umferð sléttprjón yfir allar lykkjur frá öxl. Fellið af. Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm mælt frá innst við hálsmál og niður. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 90-94-98-102-110-118 lykkjur. Prjónið mynstur alveg eins og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 15-15-15-16-16-16 cm frá skiptingu, setjið miðju 20-20-22-22-26-26 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli (35-37-38-40-42-46 lykkjur eftir á hvorri öxl) og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig. Fellið af 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsmáli alls 4 sinnum = 31-33-34-36-38-42 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm frá skiptingu, prjónið skáhallandi öxl með byrjun í næstu umferð frá hálsmáli þannig: Prjónið þar til 7-8-8-9-9-10 lykkjur eru eftir, snúið og prjónið til baka. Haldið svona áfram og prjónið yfir 7-8-8-9-9-10 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við á öxl alls 3 sinnum. Prjónið 1 umferð sléttprjón yfir allar lykkjur frá öxl. Fellið af. Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm mælt frá innst við hálsmál og niður. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 63-70-70-77-77-77 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar, látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroffprjón eins og útskýrt er í A.1a yfir allar lykkjur. Þegar A.1a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.1b yfir allar lykkjur alls 4 sinnum á hæðina. Prjónið A.3 hringinn yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er fækkað um 17-20-20-23-23-19 lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 46-50-50-54-54-58 lykkjur. Stykkið mælist ca 15 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5. Prjónið sléttprjón að loka máli. Þegar stykkið mælist 17 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3-3-2½-2½-2-2 cm millibili alls 9-9-11-11-12-12 sinnum = 64-68-72-76-78-82 lykkjur. Þegar ermin mælist 46-45-44-44-42-41 cm, prjónið ermakúpuna fram og til baka (frá merkiþræði mitt undir ermi) á hringprjón að loka máli. Fellið af þegar ermin mælist ca 47-47-47-47-46-45 cm, þ.e.a.s. það er klauf 1-2-3-3-4-4 cm efst á ermi. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana innan við affellingarkantinn. Saumið ermakúpuna við handveg og saumið klauf efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp frá réttu ca 90 til 115 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði), á stuttan hringprjón 3,5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 5. Prjónið stroffprjón (3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það verður tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn í hálsmáli dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lavenderromancesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 243-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.