Maria skrifaði:
I afsnittet “Bluse - kort oversigt over arbejdet” står at ryg- og forstykke strikkes frem og tilbage. Er det rigtigt? Skal det ikke strikkes rundt?
05.06.2025 - 09:01DROPS Design svaraði:
Hej Maria, det stemmer, du strikker ryg og forstykke rundt på rundpind :)
11.06.2025 - 12:18
Liisa skrifaði:
Miksi helmassa ennen resooria lisätään silmukoita, kuvassa malli näyttää suoralta ?
12.11.2024 - 04:42DROPS Design svaraði:
Silmukoita lisätään, jotta sileän neuleen ja joustinneuleen rajakohdasta tulisi siisti. Tällä tavoin joustinneuleesta tulee myös hieman leveämpi kuin muuten.
12.11.2024 - 17:47
Michelle Schneider skrifaði:
Jeg strikker jeres Little Cloud Blue sweater og der står at jeg skal starte med at slå 72 masker op. Når ribben er strikket skal jeg først slå 4 masker ud på første pind rundt i glatstrik og derefter skal jeg slå 2*2 masker ud i anden runde glatstrik. Det får jeg til at blive 80 masker, men der står i opskriften at jeg skal ende med 76 masker🙃 Gør jeg noget forkert?
05.11.2024 - 12:44DROPS Design svaraði:
Hej Michelle, du tager de 4 masker ud som forklaret i næste afsnit, det vil sige du tager kun de 4 masker ud en gang :)
07.11.2024 - 08:20
Heidi skrifaði:
Raglanökningen förstår jag inte, "sticka fram till 1 maska före 1:a markören och öka samtidigt 2 maskor jämnt fördelat över dessa (?) maskorna..." osv. Konstigt att öka 4 maskor på ett varv, brukar man inte öka 8 maskor?
07.12.2023 - 17:22DROPS Design svaraði:
Hej Heidi, Det er først når du har øget jævnt fordelt og har ret antal masker du starter på raglan. Du starter raglan der hvor vi skriver OK :)
08.12.2023 - 11:13
Nina Lohilahti skrifaði:
Ohjeessa sanotaan: Tee sitten raglanlisäykset joka 2.kerros kuten aiemmin, mutta jätä nyt joka toisella kerralla hihojen lisäykset tekemättä (työhön lisätään 4 silmukkaa). Eli tee etu-/takakappaleen lisäykset joka 2.kerros, ja tee hihojen lisäykset joka 4.kerros. Eli tuleeko "ensimmäinen" lisäys tehdä niin että teen lisäyksen ensimmäisen merkkilangan kohdalla vaiko toisen ja kolmannen langan kohdalla?
09.11.2023 - 18:35DROPS Design svaraði:
Hei, hihojen lisäykset tehdään 1. ja 3. merkkilangan jälkeen sekä ennen 2. ja 4. merkkilankaa.
05.12.2023 - 18:11
Tine Bieber Lunn skrifaði:
Hej Hvordan kan man starte med 64 masker og ved udtagninger (efter halsen) tage henholdstvist 8 , 1 , 4,og 3 masker ud - for så at ende på 72 masker i alt? Og i øvrigt have samme antal masker mellem hver markør som ved start? 16 og 20 masker. Jeg er ret forvirret og har vanskeligt ved at forstå jeres opskrifter. Måske kan I give en uddybende forklaring? Mange tak Vh Tine
05.08.2023 - 12:31DROPS Design svaraði:
Hej Tine, du tager kun de 8 masker ud en gang = 72 masker. Da vil du få 20 masker på for/bagstykke og 16 masker på hver ærme :)
10.08.2023 - 13:56
Little Cloud Blue Sweater#littlecloudbluesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með tvöföldum kanti í hálsmáli og laskalínu. Stærð 2 – 12 ára.
DROPS Children 47-4 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju á undan / á eftir 2 lykkjur sléttprjón í hverri skiptingu á milli framstykkis / bakstykkis og erma. Merkiþráður situr á milli þessa 2 lykkja. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður þannig: Á UNDAN MERKIÞRÆÐI: Lyftið uppslættinum á hægri prjóni eins og prjóna eigi slétt, setjið til baka yfir á vinstri prjón, þ.e.a.s. uppslátturinn snúinn, prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það á ekki að myndast gat. Á EFTIR MERKIÞRÆÐI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það á ekki að myndast gat. Prjónið síðan útauknar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 64-64-72-72-72-72 lykkjur með DROPS Air yfir stuttan hringprjón 3,5 og stuttan hringprjón 5 sem haldið er saman. Dragið út stutta hringprjón 5 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 3,5. (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 7-7-7-9-9-9 cm. Nú er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í stroffprjóni eins og áður jafnframt því sem 4. hver lykkja er prjónuð saman með 4. hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. Stykkið er nú mælt héðan. Setjið 4 merkiþræði í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). ATH: Hver merkiþráður er settur á milli 2 lykkja slétt og merkiþræðirnir merkja laskalínuna. Teljið 9 lykkjur (ca hálft bakstykki), setjið 1. merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 16 lykkjur (ermi), setjið 2. merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 16-16-20-20-20-20 lykkjur (framstykki), setjið 3. merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 16 lykkjur (ermi), setjið 4. merkiþráð á undan næstu lykkju. Það eru 7-7-11-11-11-11 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merkiþræði (ca hálft bakstykki). Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 8-8-0-4-4-4 lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan (í stærð 5/6 ára er prjónuð 1 umferð sléttprjón án þess að auka út lykkjur) – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Prjónið sléttprjón fram að 1 lykkju á undan 1. merkiþræði og aukið jafnframt út 1-1-0-2-2-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið sléttprjón án þess að auka út þar til prjónuð hefur verið 1 lykkja fram hjá 2. merkiþræði, prjónið sléttprjón yfir næstu 14-14-18-18-18-18 lykkjur og aukið jafnframt út um 4-4-0-2-2-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið sléttprjón án þess að auka út þar til prjónuð hefur verið 1 lykkja fram hjá 4. merkiþræði, prjónið sléttprjón yfir síðustu 6-6-10-10-10-10 lykkjur og aukið jafnframt út um 3-3-0-0-0-0 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 72-72-72-76-76-76 lykkjur. Það eru 20-20-20-22-22-22 lykkjur á milli merkiþráða á framstykki/bakstykki og 16 lykkjur á milli merkiþráða á hvorri ermi. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir laskalínu eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 merkiþræðina – sjá útskýringu að ofan, í annarri hverri umferð alls 5-5-4-5-5-5 sinnum = 112-112-104-116-116-116 lykkjur. Haldið áfram með útaukningu í annarri hverri umferð, en í annarri hverri umferð sem er aukið út, er einungis aukið út á framstykki/bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. Það er aukið út á framstykki/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 10-12-14-14-14-16 sinnum á framstykki/bakstykki (5-6-7-7-7-8 sinnum á ermum). Það hefur verið aukið út alls 15-17-18-19-19-21 sinnum á framstykki/bakstykki og 10-11-11-12-12-13 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 172-184-188-200-200-212 lykkjur í umferð (50-54-56-60-60-64 lykkjur á milli merkiþráða á framstykki/bakstykki og 36-38-38-40-40-42 lykkjur á milli merkiþráða á ermum) og stykkið mælist ca 14-15-16-17-17-19 cm á eftir stroffi mitt að framan. Prjónið e.t.v. sléttprjón án útaukninga að réttu máli. Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið sléttprjón þar til prjónuð hefur verið 1 lykkja fram hjá 1. merkiþræði (hálft bakstykki), setjið næstu 34-36-36-38-38-40 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 52-56-58-62-62-66 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 34-36-36-38-38-40 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið sléttprjón út umferðina (= 52-56-58-62-62-66 lykkjur á bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykki mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 120-128-136-144-148-156 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 11-14-17-20-22-22 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-24-24-24-28-28 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 140-152-160-168-176-184 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroffprjón hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið aðeins laust af. Peysan mælist ca 34-38-42-46-48-50 cm frá öxl. ERMI: Setjið 34-36-36-38-38-40 lykkjur af þræð í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi – mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur. Byrjið umferðina við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3-3-3-4-4-4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-3-4½-5-5½-5½ cm millibili alls 5-5-5-5-5-6 sinnum = 32-34-36-38-40-40 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 15-20-23-27-32-35 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 7 cm að loka máli. Mátið e.t.v. stykkið og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-10-12-10-12-12 lykkjur jafnt yfir = 40-44-48-48-52-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 7 cm. Fellið aðeins laust af. Stykkið mælist ca 22-27-30-34-39-42 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #littlecloudbluesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 47-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.