DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4092.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Little Cloud Blue Cardigan

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með háum kanti í hálsmáli og laskalínu. Stærð 2 – 12 ára.

DROPS Children 47-3
DROPS Design: Mynstur ai-046-bn
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152

GARN:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-200-200-250-250-300 g litur 36, ljós blár

TÖLUR:
DROPS TALA NR 612: 5-5-6-6-6-6 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4092.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

KANTLYKKJUR:
Í BYRJUN UMFERÐAR ERU PRJÓNAÐAR 2 KANTLYKKJUR ÞANNIG:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið næstu lykkju slétt.
Í LOK UMFERÐAR ERU PRJÓNAÐAR 2 KANTLYKKJUR ÞANNIG:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið næstu lykkju slétt.
Endurtakið þetta í byrjun / lok hverrar umferðar þegar prjóna á 2 kantlykkjur.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju á undan / á eftir 2 lykkjur sléttprjón í hverri skiptingu á milli framstykkis / bakstykkis og erma. Merkiþráður situr á milli þessa 2 lykkja.
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður þannig:
Á UNDAN MERKIÞRÆÐI:
Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat.
Á EFTIR MERKIÞRÆÐI:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan í lykkjubogann þegar lykkjan er sett til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat.
Prjónið síðan útauknar lykkjur í sléttprjóni.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 kantlykkjur eins og áður. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu á eftir hálsmáli. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 6-7-6-7-8-8 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst er prjónaður hár kantur í hálsmáli fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Síðan er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum fram og til baka á hringprjóna. Þegar hálsmálið hefur verið prjónað til loka, prjónið afgang af berustykkið fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.
Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

HÁR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 90-90-90-94-94-102 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Air. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 KANTLYKKJUR og 4 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan (6 kantlykkjur að framan), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur í garðaprjóni og 2 kantlykkjur (6 kantlykkjur að framan) – munið eftir útskýringu að ofan.
Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til kanturinn í hálsmáli mælist 6-6-7-7-8-8 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu.
Setjið 4 merkiþræðir í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar).
ATH: Hver merkiþráður er settur á milli 2 lykkja slétt og merkiþræðirnir merkja laskalínu.

Teljið 15-15-15-19-19-19 lykkjur (framstykki), setjið 1. merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 20-20-20-16-16-20 lykkjur (ermi), setjið 2. merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 20-20-20-24-24-24 lykkjur (bakstykki), setjið 3. merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 20-20-20-16-16-20 lykkjur (ermi), setjið 4. merkiþráð á undan næstu lykkju. Það eru 15-15-15-19-19-19 lykkjur á eftir síðasta merkiþræði (framstykki).

Prjónið 1 umferð brugðið frá réttu þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út eins og útskýrt er að neðan:

STÆRÐ 2 - 3/4 - 5/6 ÁRA:
Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið sléttprjón fram að 1. merkiþræði og aukið jafnframt út 1 lykkju yfir þessar lykkjur (ekki auka út/fækka lykkjum yfir 2 lykkjur slétt í laskalínuninn – þetta á við um alla merkiþræðina), prjónið sléttprjón fram að 2. merkiþræði og fækkið jafnframt 4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið sléttprjón fram að 3. merkiþræði án þess að fækka lykkjum, prjónið sléttprjón fram að 4. merkiþræði og fækkið jafnframt 4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið sléttprjón fram að 6 kantlykkjum að framan og aukið jafnframt út 1 lykkju yfir þessar lykkjur, endið með 6 kantlykkjur að framan eins og áður = 84 lykkjur í öllum stærðum.

STÆRÐ 7/8 - 9/10 ÁRA:
Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið sléttprjón fram að 1. merkiþræði og fækkið jafnframt 2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (ekki fækka lykkjum yfir 2 lykkjur slétt í laskalínunni – þetta á við um alla merkiþræðina), prjónið sléttprjón fram að 2. merkiþræði án þess að fækka lykkjum, prjónið sléttprjón fram að 3. merkiþræði og fækkið jafnframt 2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið sléttprjón fram að 4. merkiþræði án þess að fækka lykkjum, prjónið sléttprjón fram að 6 kantlykkjum að framan og fækkið jafnframt 2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, endið með 6 kantlykkjur að framan eins og áður = 88 lykkjur í báðum stærðum.

STÆRÐ 11/12 ÁRA:
Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið sléttprjón fram að 1. merkiþræði og fækkið jafnframt 2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (ekki fækka lykkjum yfir 2 lykkjur slétt í laskalínunni – þetta á við um alla merkiþræðina), prjónið sléttprjón fram að 2. merkiþræði og fækkið jafnframt 4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið sléttprjón fram að 3. merkiþræði og fækkið jafnframt 2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið sléttprjón fram að 4. merkiþræði og fækkið jafnframt 4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið sléttprjón fram að 6 kantlykkjum að framan og fækkið jafnframt 2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, endið með 6 kantlykkjur að framan eins og áður = 88 lykkjur.

ALLAR STÆRÐIR:
= 84-84-84-88-88-88 lykkjur (16-16-16-17-17-17 lykkjur á hvoru framstykki fram að merkiþræði, 16 lykkjur á hvorri ermi á milli merkiþráða og 20-20-20-22-22-22 lykkjur á bakstykki á milli merkiþráða).

HÁLSMÁL:
Skiptið yfir á hringprjón 5. Nú er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum JAFNFRAMT því sem aukið er út fyrir laskalínu eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið brugðið þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá 1. merkiþræði (þ.e.a.s. í vinstri hlið á hálsmáli að framan, séð þegar flíkin er mátuð), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 merkiþræðina – sjá útskýringu að ofan, þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá 4. merkiþræði (þ.e.a.s. í hægri hlið á hálsmáli, séð þegar flíkin er mátuð = 8 lykkjur fleiri), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 3 (ranga): Prjónið brugðið þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem síðast var snúið við 1. merkiþráð (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 4 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 merkiþræðina, þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem síðasta var snúið við 4. merkiþráð (= 8 lykkjur fleiri), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 5 (ranga): Prjónið brugðið þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem síðast var snúið við 1. merkiþráð, snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 6 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 merkiþræðina, þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem síðast var snúið við 4. merkiþráð (= 8 lykkjur fleiri), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 7 (ranga): Prjónið brugðið þar til 6 kantlykkjur eru eftir í umferð, prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður.

Nú hafa stuttar umferðir verið prjónaðar til loka og aukið hefur verið út 3 sinnum fyrir laskalínu hvoru megin við 4 merkiþræðina = 108-108-108-112-112-112 lykkjur.
Síðan er berustykkið prjónað fram og til baka yfir allar lykkjur frá miðju að framan eins og útskýrt er að neðan. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.

BERUSTYKKI:
Prjónið sléttprjón með 6 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu þannig: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 merkiþræðina í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 2-2-1-2-2-2 sinnum (5-5-4-5-5-5 sinnum ásamt útaukningu í hálsmáli) = 124-124-116-128-128-128 lykkjur.
Haldið áfram með útaukningu í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu), en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykkjum / bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. það er aukið út á framstykkjum / bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð.
Aukið svona út 10-12-14-14-14-16 sinnum á framstykkjum / bakstykki (5-6-7-7-7-8 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 15-17-18-19-19-21 sinnum á framstykkjum / bakstykki og 10-11-11-12-12-13 sinnum á ermum.

Á eftir síðustu útaukningu eru 184-196-200-212-212-224 lykkjur í umferð (31-33-34-36-36-38 lykkjur fram að merkiþræði á hvoru framstykki, 36-38-38-40-40-42 lykkjur á milli merkiþráða á ermum og 50-54-56-60-60-64 lykkjur á milli merkiþráða á bakstykki) og stykkið mælist ca 14-15-16-17-17-19 cm á eftir stroffi mælt mitt að aftan. Prjónið e.t.v. áfram án útaukninga að réttu máli.

Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið fyrstu 32-34-35-37-37-39 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 34-36-36-38-38-40 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 52-56-58-62-62-66 lykkjur sléttprjón (bakstykki), setjið næstu 34-36-36-38-38-40 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 32-34-35-37-37-39 lykkjur eins og áður.
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 132-140-148-156-160-168 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 6 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður.
Þegar stykkið mælist 11-14-17-20-22-22 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 22-26-26-26-30-30 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING (ekki er auki út yfir kanta að framan) = 154-166-174-182-190-198 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 6 kantlykkjur að framan eins og áður, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 6 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið svona áfram með stroff í 5 cm. Fellið aðeins laust af. Peysan mælist ca 34-38-42-46-48-50 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 34-36-36-38-38-40 lykkjur af þræð í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5.
Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi – mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur. Byrjið umferðina við merkiþráð og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 2-3-4-5-5½-5½ cm millibili alls 5-5-5-5-5-6 sinnum = 32-34-36-38-40-40 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist 14-19-23-26-31-33 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 7 cm að loka máli. Mátið e.t.v. stykkið og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-10-12-10-12-12 lykkjur jafnt yfir = 40-44-48-48-52-52 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 7 cm. Fellið aðeins laust af. Stykkið mælist ca 21-26-30-33-38-40 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.
Ef óskað er eftir að hafa tvöfaldan kant í hálsmáli er hægt að brjóta stroffið niður að innanverðu á stykki og festa með nokkrum sporum við hverja laskalínu.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 47-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Linda Rodier wrote:

Bonjour j’ai mis un marqueur 1 apres 19 mailles donc il est entre deux mailles endroit mon aug pour mon raglan je fais un jete apres ces deux mailles endroit ce qui veut dire apres avoir tricote 20 mailles j’aug si c’est ca je vais la meme chose pour les autres aug merci

21.04.2024 - 20:59

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rodier, pour le raglan, on va augmenter de part et d'autre de 2 mailles jersey - cf RAGLAN; autrement dit, si vous avez votre 1er marqueur après 19 mailles, vous augmentez la 1ère fois après 18 mailles ainsi: 18 mailles, 1 augmentation pour le raglan, 2 mailles jersey (le fil marqueur est entre ces 2 mailles), 1 augmentation, tricotez jusqu'à ce qu'il reste 1 maille avant le marqueur suivant et répétez ces augmentations. Bon tricot!

22.04.2024 - 08:56

country flag Sharon wrote:

Is yarn group C equivalent to American weight 4?

29.03.2024 - 06:39

DROPS Design answered:

Dear Sharon, Yarn group C is equivalent to aran/worsted weight, knits up to about 17 stitches X22 rows = 10X10 cm. I hope that helps. Happy Knitting!

29.03.2024 - 08:23

country flag Marie Possa wrote:

Hallo, leider versthe ich folgende Anweisung nicht: "1. REIHE (Rück-Reihe): 6 Blenden-Maschen wie zuvor stricken, links stricken bis 2 Maschen nach dem 1. Markierungsfaden gestrickt wurden (d.h. an der linken Seite des vorderen Halsausschnitts beim Tragen der Jacke), wenden und den Faden anziehen." Muss nun die verkürzte Reihe zurückgestrickt werden, danach die 1. Reihe über die ganze Nadel und dann die 2. Reihe? Freue mich auf Ihre Antwort

02.03.2024 - 16:30

DROPS Design answered:

Liebe Frau Possa, die 1. von den verkürzten Reihen ist eine Rückreihe, man wird von dem rechten Vorderteil bis zu dem 1. Markierer (linken Vorderteil) stricken, dann wenden und die nächste Reihe = Hinreihe bis 2 M nach dem 4. Markierer (rechten Vorderteil) stricken und gleichzeitig für den Raglan zunehmen, so weiter stricken dh immer 2 Maschen mehr am Ende jeder Reihe stricken, und gleichzeitig bei jeder Hin-Reihe für den Raglan zunehmen. Vile Spaß beim Stricken!

04.03.2024 - 08:13

country flag Jane King wrote:

What is meant in neckline instructions by "wrong side - purl 2 stitches past marker , then turn"? followed by knitting the entire row on the right side? Wouldn't the left needle have just one front panel plus 2 stitches on it at that point?

01.03.2024 - 01:21

DROPS Design answered:

Dear Mrs King, you will work some short rows now, ie work always more stitches to get more rows for the neck on back piece; you will start these short rows from wrong side, work as before until 2 sts remain after 1st marker (the first of the 4 markers inserted = between left sleeve and left front piece, turn leaving remaining stitches unworked; turn and work next row from right side until 2 sts after the 4th marker (between right sleeve and right front piece), and continue like this working always 2 sts more and increasing at the same time for raglan on every row from RS. Happy knitting!

01.03.2024 - 08:27

country flag Thomazi wrote:

Bonjour, vous me demandez de préciser ce qui me semble être une erreur :\r\nQuand toutes les augmentations sont faites, 33 mailles chaque devant, 38 mailles chaque manche, 54 pour le dos ...\r\nMais quand on divise l\'ouvrage on a 34 mailles pour le devant 36 pour la manche 56 pour le dos.....\r\nSi il n\'y a pas d\'erreur où est ce que je me suis trompée ?\r\nLa différence est pour toutes les tailles

26.02.2024 - 09:59

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Thomazi, tout simplement parce que les mailles du début/de la fin de la manche vont être attribuées aux devants et au dos, et on aura donc moins de mailles pour les manches à mettre en attente que celles entre les marqueurs pour l'empiècement. Bon tricot!

26.02.2024 - 10:16

country flag Thomazi wrote:

N\'y a t il pas une erreur dans la répartition des mailles après les diminutions de raglan pour les devant les manches et le dos ?

24.02.2024 - 21:35

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Thomazi, qu'est-ce qui vous fait penser qu'il pourrait y avoir une erreur? Et dans quelle taille? Merci de bien vouloir préciser votre pensée, nous pourrons ainsi vérifier ensemble.

26.02.2024 - 08:39

country flag Barbara Cardinali wrote:

Salve! Ho finito i 6 cm di collo per la taglia 3/4 anni e non mi è chiaro dove inserire i segnapunti e il giro successivo , dove fare aumenti e diminuzioni. Potrei ricevere una spiegazione più dettagliata? Grazie mille!

24.02.2024 - 12:53

DROPS Design answered:

Buonasera Barbara, deve inserire i segnapunti prima delle maglie indicate, ad esempio per la taglia 3/4 deve lavorare 15 maglie, inserire 1 segnapunti prima della maglia successiva, contare 20 maglie, inserire 1 segnapunti prima della maglia successiva, contare 20-20-20-24-24-24 maglie, inserire 1 segnapunti prima della maglia successiva, contare 20-20-20-16-16-20 maglie, inserire 1 segnapunti prima della maglia successiva. Buon lavoro!

25.02.2024 - 15:28

country flag Jutta wrote:

Hallo, ich verstehe diesen Part nicht: „Beidseitig jedes der 4 Markierungsfäden in jeder 2. Reihe (= in jeder Hin-Reihe) insgesamt 2-2-1-2-2-2 x in der Höhe zunehmen (5-5-4-5-5-5 x in der Höhe einschließlich der Zunahmen am Halsausschnitt) = 124-124…“ Welche Zunahmen am Halsausschnitt? Mir fehlen jetzt Maschen, da ich nur die Raglanzunahmen gemacht habe… Liebe Grüße Jutta

17.01.2024 - 22:38

DROPS Design answered:

Liebe Jutta, bei den verkürzten Reihen für den HALSAUSSCHNITT hat man 3 Mal für den Raglan (in jeder den Hin-Reihen) zugenommen, für die Passe strickt man alle Maschen wieder und nimmt man noch 2 Mal für den Raglan zu, so wurde es insgesamt 5 Mal zugenommen. Viel Spaß beim stricken!

18.01.2024 - 08:59

country flag GIULIANA BONETTI wrote:

C'è lo stesso modello per donna? Grazie mille

29.11.2023 - 08:39

DROPS Design answered:

Buonasera Giuliana, tra i nostri modelli può trovare tanti esempi di cardigan da donna. Buon lavoro!

30.11.2023 - 22:46

country flag Silvia Skrandies wrote:

Beidseitig jedes der 4 Markierungsfäden in jeder 2. Reihe (= in jeder Hin-Reihe) insgesamt 2-2-1-2-2-2 x in der Höhe zunehmen (5-5-4-5-5-5 x in der Höhe einschließlich der Zunahmen am Halsausschnitt) = 124-124-116-128-128-128 Maschen. Was bedeutet die Angabe in den Klammern ?

28.11.2023 - 07:38