Javiera skrifaði:
Hola, si quiero hacer este modelo con drops nord color 16, qué color me recomiendan para usar en drops kid silk? Gracias
28.04.2023 - 10:41DROPS Design svaraði:
Hola Javiera, en DROPS Kid-Silk tienes el color 27, azul denim, que sería el tono más parecido al de el color 16 de DROPS Nord. Ten en cuenta que las tintadas del mismo color pueden diferir entre sí, y que el color en las fotos depende de la pantalla por las que se visualizan.
30.04.2023 - 19:41
Marta skrifaði:
Buonasera, forse è una domanda sciocca, ma come faccio a lavorare il primo ferro dal rovescio? Leggendo proprio l’inizio dello schema “avviare 100 maglie […]. Lavorare 1 ferro rovescio dal rovescio del lavoro. È il primissimo ferro quindi? Come faccio a lavorarlo dal rovescio? Grazie mille in anticipo
08.02.2023 - 22:21DROPS Design svaraði:
Buonasera Marta, Dopo aver avviato le maglie deve semplicemente girare il lavoro e lavorare a rovescio. Buon lavoro!
10.02.2023 - 23:58
Stirnimann skrifaði:
Ist die Maschenprobe mit der Nadel mit Stärke 5.5 gemacht?
17.01.2023 - 21:59DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Stirnimann, ja genau und 2-Fädig (= mit 1 Faden Nord + 1 Faden Kid-Silk zusammengestrickt). Viel Spaß beim stricken!
18.01.2023 - 09:31
Linda A Ball skrifaði:
Could you tell me how much positive ease there is in this oversized sweater please? Thank you😊
17.01.2023 - 19:44DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Ball, just decide your own positive ease and your size by measuring a similar garment you have and like the shape and compare them to the measurements in the chart. Read more here. Happy knitting!
18.01.2023 - 09:21
Leora Noam skrifaði:
Everyday comfort
08.08.2022 - 11:52
Bodil Brændgaard skrifaði:
Best friend
06.08.2022 - 15:25
JaninaTheMermaid skrifaði:
Schlicht,aber sehr schön!☺
06.08.2022 - 06:20
Crimson Moon#crimsonmoonsweater |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð stór / oversized peysa úr DROPS Nord og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 235-10 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (á við um hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni. FÆKKIÐ LYKKJUM Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið út umferðina eins og áður. ÚTAUKNING (á við um ermar): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum, neðan frá og upp og saumað saman í lokin. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir kant í hálsmáli sem prjónaðar eru í hring á stuttan hringprjón. BAKSTYKKI: Fitjið upp 100-108-112-124-132-144 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 5 cm, skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 8-10-8-12-10-12 lykkjur jafnt yfir = 92-98-104-112-122-132 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af 2-3-5-7-8-10 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 88-92-94-98-106-112 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, fellið af miðju 24-24-26-26-28-28 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 32-34-34-36-39-42 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA, alls 2 sinnum = 30-32-32-34-37-40 lykkjur eftir á öxl. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 44-46-46-48-48-50 cm = 88-92-94-98-106-112 lykkjur. Nú eru miðju 18-18-18-18-20-20 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 35-37-38-40-43-46 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu alls 5-5-6-6-6-6 sinnum = 30-32-32-34-37-40 lykkjur eftir á öxl. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 54-54-54-58-58-62 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 10 cm, skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 4-4-2-4-4-6 lykkjur jafnt yfir = 50-50-52-54-54-56 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 13-13-13-11-11-11 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING! Aukið svona út með 4½-3-3-3-2½-2 cm millibili alls 8-10-10-11-12-13 sinnum = 66-70-72-76-78-82 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 46-45-44-43-41-39 cm. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á ermi – prjónamerkið merkir hvar botninn á handvegi byrjar. Prjónið áfram þar til ermin mælist 47-47-47-47-46-45 cm. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í og saumið botninn á handvegi – prjónamerkin sem voru sett í á ermum eiga að passa við hliðar á fram- og bakstykki – sjá teikningu. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu ca 72 til 92 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) á stuttan hringprjón 4,5 með 1 þráð í hvorri tegund. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af þegar stroffið mælist 4 cm. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #crimsonmoonsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.