DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Simplicity

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með v-hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 236-38
DROPS Design: Mynstur z-979
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALAPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-400-450-450-500-550 g litur 2915, appelsínugulur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
26 lykkjur á breidd og 34 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA (á við um úrtöku fyrir v-hálsmáli):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
FÆKKIÐ LYKKJUM Í BYRJUN Á UMFERÐ ÞANNIG:
Prjónið 4 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.
FÆKKIÐ LYKKJUM Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG:
Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið 1 lykkju slétt fram hjá prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir bakstykki og framstykki og stykkin eru prjónuð fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón upp þar til ermakúpan byrjar, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 282-306-330-360-396-432 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Alpaca. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 4½ cm, prjónið A.1 yfir allar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 8 cm.
Næsta umferð er prjónuð slétt og það er fækkað um 42-46-50-52-56-64 lykkjur jafnt yfir = 240-260-280-308-340-368 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fellið af fyrir handveg þannig:
Prjónið 119-127-135-145-156-169 lykkjur, fellið af 2-6-10-18-28-30 lykkjur, prjónið 118-124-130-136-142-154 lykkjur og fellið af 2-6-10-18-28-30 lykkjur (þ.e.a.s. síðustu 1-3-5-9-14-15 lykkjur í umferð og fyrstu 1-3-5-9-14-15 lykkjur í næstu umferð) = 118-124-130-136-142-154 lykkjur á hvoru framstykki/bakstykki. Hvort stykki er nú prjónað til loka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 26-26-30-30-32-34 lykkjur fyrir hálsmáli (46-49-50-53-55-60 lykkjur eftir á hvorri öxl).
Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja fyrir hálsmáli = 45-48-49-52-54-59 lykkjur.
Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
= 118-124-130-136-142-154 lykkjur. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 34-36-37-39-40-41 cm, skiptist framstykkið og lykkjum er fækkað fyrir v-hálsmáli í næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 54-57-60-63-66-72 lykkjur, setjið 4 prjónamerki á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni, 54-57-60-63-66-72 lykkjur slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Snúið og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni og 58-61-64-67-70-76 lykkjur sléttprjón, snúið (59-62-65-68-71-77 lykkjur á hvorri öxl).
Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli – sjá ÚRTAKA, þannig:
Fækkið um 1 lykkju í 4. hverri umferð alls 4-4-6-6-8-9 sinnum og eftir það 1 lykkju í 6. hverri umferð alls 5-5-5-5-4-4 sinnum = 50-53-54-5759-64 lykkjur.
Prjónið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Í næstu umferð frá öxl, fellið af fyrstu 45-48-49-52-54-59 lykkjur = 5 lykkjur eftir. Prjónið sléttprjón yfir þessar 5 lykkjur í ca 7-7-8-8-8-9 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 90-90-90-96-96-102 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með DROPS Alpaca.
Prjónið stroff (1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt). Þegar stykkið mælist 4½ cm, prjónið A.1 yfir allar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið stykkið með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 8 cm.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Stykkið er síðan prjónað í sléttprjóni. Í fyrstu umferð er fækkað um 18-16-16-18-18-22 lykkjur jafnt yfir = 72-74-74-78-78-80 lykkjur.
Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi).
Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað þegar auka á út lykkjum mitt undir ermi.
Þegar ermin mælist 16-18-16-16-16-13 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3-2½-2-2-1½-1½ cm millibili alls 11-12-15-16-18-20 sinnum = 94-98-104-110-114-120 lykkjur.
Þegar ermin mælist 49-49-48-47-44-43 cm, skiptist stykkið við prjónamerki og prjónað er síðan fram og til baka á hringprjóna að loknu máli. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 50-50-50-50-49-49 cm, þ.e.a.s. það er klauf 1-1-2-3-5-6 cm efst á ermi.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið klaufina efst á ermi við botninn á handvegi og saumið síðan ermina við fram- og bakstykki – sjá teikningu. Saumið 5 lykkjur á hvoru framstykki saman og saumið þær við hálsmál á bakstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 18.11.2022
FRAMSTYKKI:...Fækkið um 1 lykkju í 4. hverri umferð alls 4-4-6-6-8-9 sinnum og eftir það 1 lykkju í 6. hverri umferð alls 5-5-5-5-4-4 sinnum = 50-53-54-5759-64 lykkjur.
Prjónið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Í næstu umferð frá öxl, fellið af fyrstu 45-48-49-52-54-59 lykkjur = 5 lykkjur eftir.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt saman
symbols = byrjið í þessari umferð
symbols = ermakúpan er saumið við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-38

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag DOMINIQUE AMBROSET wrote:

Bonjour Pour faire les manches j'ai pris deux aiguilles droites, faut il que je fasse aussi la fente à 47 cm et finir chaque côté jusqu'à 50 cm Merci pour votre réponse Mme AMBROSET

10.04.2024 - 17:50

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ambroset, si vous avez choisi de tricoter les manches en allers et retours, placez un marqueur à 47 cm de hauteur totale (repère pour la couture de la tête de manche) et tricotez encore 3 cm (jusqu'à 50 cm de hauteur totale). Assemblez ensuite la manche comme dans le schéma + faites la couture sous la manche. Bon tricot!

11.04.2024 - 07:05

country flag DOMINIQUE AMBROSET wrote:

Bonjour les manches se tricotent elles avec 4 aiguilles doubles pointes ? si ou je ne sais pas faire est il possible de les faire avec 2 aiguilles 2.5 et 3.5 et je ferai une couture Merci pour votre réponse. Mme AMBROSET

30.03.2024 - 17:54

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ambroset, vous pouvez aussi tricoter les manches en rond, avec la technique du magic loop ou bien en rangs, montez alors 1 m lisière en plus de chaque côté pour les coutures (plus d'infos ici). Bon tricot!

02.04.2024 - 14:35

country flag DOMINIQUE AMBROSET wrote:

Bonjour Je ne comprends pas le devant pour l'encolure, faut il que je fasse les 4 mailles sur l'aiguille annexe à chaque rang, le nombre ne correspond pas. et en même temps je dois diminuer pour les épaules. Merci pour vos explications. Mme AMBROSET

26.02.2024 - 17:56

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ambroset, la division pour l'encolure V se fait via une torsade sur les 8 mailles centrales, ainsi vous tricotez les 55-73 premières mailles (cf taille), vous mettez les 4 m suivantes en attente sur une aiguille à torsades, tricotez les 4 mailles suivantes à l'endroit = devant gauche; vous tricotez maintenant le devant droit: tricotez les 4 mailles sur l'aiguille à torsades et terminez le rang, vous tricotez maintenant le devant droit en diminuant pour l'encolure puis rabattez les mailles de l'épaule comme indiqué, tricotez encore les 5 dernières mailles pour la bordure d'encolure, et reprenez le devant gauche pour le tricoter de la même façon. Bon tricot!

27.02.2024 - 08:02

country flag Lorelie wrote:

The simplicity drops pattern in the ribbing it has knit 3 together vertically, I believe it’s a decorative stitch. I would like a tutorial on how to do that. I would know how to knit 3 together but not vertically and also how to continue with the ribbing. Thank you, Lorelie

13.06.2023 - 16:34

DROPS Design answered:

Dear Lorelie, the first row of A.1 is worked: *P1, K1, P1,K1,P1,K1* (over 6 sts), on 2nd row work: *P1, YO, K3 tog (see this video, time code 0:20), YO, P1, K1*, repeat from *-*. On next row work rib as on first row. And repeat the last 2 rows one more time. Happy knitting!

14.06.2023 - 07:25

country flag DOMINIQUE AMBROSET wrote:

Bonjour Une fois que j'ai monté mes mailles sur l'aiguille circulaire il ne faut pas que mes mailles tournent. Quand je veux les mettre toutes dans le même sens, arrivée au début de mes mailles je suis obligée de tourner mon tricot et cela tourne mes mailles Comment faire pour que cela ne tourne pas ? Merci beaucoup pour votre réponse Mme AMBOSET

14.05.2023 - 17:05

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ambroset, avant de tricoter la 1ère maille du tour, placez bien toutes vos mailles dans le même sens pour ne pas former de vrille, vérifiez le cas échéant encore une fois avant de tricoter la dernière maille (vous pourrez alors corriger toute vrille éventuelle) - votre magasin a peut-être une astuce qu'il saura vous partager (même par mail ou téléphone), c'est la technique que j'utilise personnellement. Bon tricot!

15.05.2023 - 08:50

country flag Houarner wrote:

Bonjour Est-il possible de tricoter ce modèle avec des aiguilles droites ?

07.03.2023 - 16:26

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Houarner, tout à fait, cette leçon pourra vous aider à faire les ajustements nécessaires. Bon tricot!

07.03.2023 - 16:30

country flag Delphine Roland wrote:

Bonjour Comment coudre ensemble les 43 mailles rabattues du devant avec les 48 du dos pour les épaules? Je n'arrive pas à comprendre pourquoi il n'y a pas le même nombre.... Merci

05.11.2022 - 15:43

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Roland, les diminutions de l'encolure ont été corrigées, merci pour votre retour. Bon tricot!

18.11.2022 - 13:29

country flag Mary Luz wrote:

La manga se teje en redondo o es en patrón plano, gracias espero me aclaren esta duda.

02.10.2022 - 19:33

DROPS Design answered:

Hola Mari Luz, la manga se trabaja en redondo. Tambíen puedes trabajar de ida y vuelta y después coser en el centro bajo la manga; en este caso tienes que añadir a cada lado 1 punto de orillo extra (para la costura) y los aumentos se trabajan antes y después del punto orillo.

04.10.2022 - 15:15

country flag Lesley Albutt wrote:

Thank you for your reply to my question about the neckline. That is how I read the pattern as you have explained. However the photo doesn't appear to show a 4 over 4 cable? On the neckline.

29.09.2022 - 08:59

DROPS Design answered:

Dear Mrs Albutt, the cable is worked just at the bottom of V-neck, stitches are crossed as front piece is divided into 2 pieces, that might be the reason why it's quite discreet on the picture. Happy knitting!

29.09.2022 - 12:04

country flag Lesley Albutt wrote:

I am finding the explanation for knitting the neckline confusing. Can we please have a diagram or a close up picture. I am a machine knitter and will need to translate, but first I need to thoroughly understand the hand knitting technique. Many thanks.

29.09.2022 - 06:49

DROPS Design answered:

Dear Mrs Albutt, after you have crossed the stitches in the middle of the row, you continue each side separately and decrease for the V-neck as explained under DECREASE TIP (applies to decreases for V-neck): as follows (see your size): 1 stitch every 6th row 3 times then 1 stitch every 4th row 9 or 10 times (see size) and 1 stitch every other row 2-2-3-3-4-5 times - decrease at the beginning of a row from RS on right shoulder /at the end of a row from RS on left shoulder (when garment is worn). Hope it can help. Happy knitting!

29.09.2022 - 08:47