Catherine skrifaði:
Bonjour, je souhaite faire des rangs raccourcis afin que le col ne remonte pas sur le devant. Comment suis-je procéder ? Merci pour tous vos patrons gratuits !
14.05.2025 - 19:54DROPS Design svaraði:
Bonjour Catherine, vous pouvez tout à fait ajouter des rangs raccourcis, cette vidéo pourrait vous aider à en ajouter. Bon tricot!
15.05.2025 - 09:33
Camilla skrifaði:
Buongiorno, ho finito i 26 giri con gli aumenti dello sprone. Il passaggio successivo prevede che vada avanti a lavorare a maglia rasata fino a 21 cm dal segnapunti per la taglia M. Ma non capisco quale segnapunti.\r\nGrazie, Camilla
31.01.2025 - 16:39DROPS Design svaraði:
Buongiorno Camille, le misure delle sprone si prendono dal segnapunti messo ad inizio dello sprone come indicato. Buon lavoro!
03.02.2025 - 16:24
Marie skrifaði:
Bonjour, combien de pelote pour chaque taille ?
28.12.2024 - 14:03DROPS Design svaraði:
Bonjour Marie, DROPS Soft Tweed et DROPS Daisy sont disponibles en pelotes de 50 g. Divisez la consommation par 50 pour obtenir le nombre de pelotes. TAILLE: S - M - L - XL - XXL - XXXL FOURNITURES: DROPS SOFT TWEED de Garnstudio (appartient au groupe de fils B) 450-450-500-550-600-650 g coloris 06, galets OU: DROPS DAISY de Garnstudio (appartient au groupe de fils B) 550-550-650-650-750-750 g coloris 04, gris clair Bon tricot!
28.12.2024 - 21:13
Margret skrifaði:
I was wondering if you could list what size the model is wearing on your patterns? It would help a lot more rather than knowing only the measurement
16.10.2024 - 12:43
Margret skrifaði:
I was wondering if you could list what size the model is wearing on your patterns? It would help a lot more rather than knowing only the measurement
09.10.2024 - 12:45
E Bou skrifaði:
Bonjour, je suis en train de réaliser ce modèle. Je trouve le fil Soft tweed très agréable à tricoter. Mais j'ai lu des commentaires sur fragilité. Pensez-vous que le fil soit assez solide pour réaliser des terminaisons extensibles des bords côtes à l'aiguille à laine ? Merci beaucoup pour tous ces modèles magnifiques. Bien cordialement
01.04.2024 - 07:38DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Bou, probablement, veillez peut-être juste à ne pas tirer sur le fil au niveau de l'aiguille à laine mais au niveau des mailles pour éviter de le fragiliser. Votre magasin aura peut-être une autre astuce à vous partager par téléphone ou par mail. Bon tricot!
02.04.2024 - 14:56
Martina skrifaði:
Comment savoir grandeur a quoi correspondent les tailles M ou L ou XL en cm pour le corps
11.02.2024 - 16:29DROPS Design svaraði:
Bonjour Martina, mesurez un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la forme et comparez ces mesures à celles du schéma en bas de page, vous trouverez ainsi la taille correspondante. Retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!
12.02.2024 - 08:58
Susanne skrifaði:
Hallo liebes Team, für die Größe L reichen 450 g vom Garn Soft Tweed. Der Pulli ist sehr schön geworden.
07.01.2024 - 09:29
Johanna skrifaði:
Ska minskningarna på ärmen inte vara "tvärt om" så att de liksom riktas innåt? Det är i alla fall så jag är van vid att sticka tröjärmar.
20.07.2023 - 11:39DROPS Design svaraði:
Hei Johanna. På denne genseren felles maskene som beskrevet under FELLETIPS (gjelder midt under ermene), men om du ønsker å gjøre fellingene den andre veien. kan du fint gjøre deg. mvh DROPS Design
26.07.2023 - 14:54
Anne De Keersmaeker skrifaði:
Bonjour, Je voudrais tricoter le modèle Back to Boston. Vous indiquez qu'il faut 450 g de laine, mais j'en ai d'une autre marque (reçue en cadeau). Pouvez-vous me dire quelle longueur totale de fil il me faut ? Pour info, j'ai 10 pelotes de 90 m chacune. Est-ce assez ou dois-je prévoir d'en avoir plus? Merci beaucoup à vous, Anne
16.07.2023 - 19:09
Back to Boston#backtobostonsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Soft-Tweed eða DROPS Daisy. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, sléttprjóni og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 237-40 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin (8 lykkjur fleiri í umferð) þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið við hin prjónamerkin. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 108-112-116-120-124-132 lykkjur með DROPS Soft Tweed yfir hringprjón 3 og einn hringprjón 4 sem haldið er saman (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Dragið út hringprjón 4 og haldið lykkjunum eftir á hringprjóni 3. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið þar til stroffið mælist 13 cm. Nú er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í stroffprjóni eins og áður jafnframt því sem önnur hver lykkja er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú er kominn tvöfaldur kantur í hálsmáli ca 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24-28-24-36-40-56 lykkjur jafnt yfir = 132-140-140-156-164-188 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið (án þess að prjóna lykkjurnar) þannig: Hoppið yfir fyrstu 23-25-25-29-31-37 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (í skiptinguna á milli bakstykkis og erma), hoppið yfir næstu 20 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli ermi og framstykkis), hoppið yfir næstu 46-50-50-58-62-74 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (í skiptinguna á milli framstykkis og erma), hoppið yfir næstu 20 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (í skiptinguna á milli ermi og bakstykkis), það eru 23-25-25-29-31-37 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 23-26-30-30-33-35 sinnum = 316-348-380-396-428-468 lykkjur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki á eftir kant í hálsmáli. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 46-51-55-59-64-72 lykkjur (hálft bakstykki), setjið næstu 66-72-80-80-86-90 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 92-102-110-118-128-144 lykkjur (framstykki), setjið næstu 66-72-80-80-86-90 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið síðustu 46-51-55-59-64-72 lykkjur (hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 200-220-236-256-276-308 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 25 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12 lykkjur jafnt yfir = 212-232-248-268-288-320 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 66-72-80-80-86-90 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-10-10-10 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 74-80-88-90-96-100 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (4-4-4-5-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það aðeins síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar ermin mælist 5 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 3-2½-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 10-12-15-15-16-17 sinnum = 54-56-58-60-64-66 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 40-39-37-36-34-32 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-8-6-8-8-6 lykkjur jafnt yfir = 60-64-64-68-72-72 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 45-44-42-41-39-37 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #backtobostonsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-40
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.