Kari Bølling skrifaði:
Strikker str M, lurer på vedr høyre forstykket, linje 5 så står det slik: 7 stolpemasker i rille, A.9 som før, strikk A.2 til det gjenstår 1 maske, 1 kantmaske i rille. Det felles til KNAPPHULL – les forklaring Lurer på knapphullet skal vel felles til i de 7 stolpemaskene som starter omgangen?
08.12.2025 - 19:01DROPS Design svaraði:
Hei Kari, Ja, knapphullet felles på stolpen i begynnelsen av pinnen, som beskrevet i forklaringene på toppen av oppskriften. Hilsen, Drops Team.
09.12.2025 - 07:25
Hanne skrifaði:
Jeg kan simpelthen ikke forstå den del med sjalskraven. Er halsen foran eller bagpå? Er det et billede af vesten bagfra?
28.11.2025 - 17:16DROPS Design svaraði:
Hei Hanne. Du starter sjalskraven på forstykket, men slutter på bakstykket (ca midt bak). Sjalskragen sys sammen midt bak og den sys til halsringningen bak i nakken. Har dessverre ingen bilder bakfra. mvh DROPS Design
08.12.2025 - 10:52
Kari Bølling skrifaði:
Kan man strikke forstykket, rygg og forstykket på en rundepinne opp til ermene?
13.11.2025 - 19:33DROPS Design svaraði:
Hei Kari, Det er mulig å strikke bolen i ett. Du må da la være å strikke kantmaskene i sidene på alle stykkene. Hilsen Drops Team.
14.11.2025 - 06:09
Cécilia skrifaði:
Si je souhaite tricoter ce modèle avec une seule laine , que me conseillez-vous? merci
09.11.2025 - 20:17DROPS Design svaraði:
Bonjour Cécilia, vous pourriez ici utiliser une laine du groupe de fils C - retrouvez ici quelques exemples similaires/ Bon tricot!
10.11.2025 - 08:02
Monica skrifaði:
Non riesco a capire la dimensione finita del lavoro in cm per sapere quale taglia realizzare. Grazie
30.09.2025 - 15:21DROPS Design svaraði:
Buonasera Monica, in fondo ad ogni pagina può trovare lo schema con le misure da paragonare ad un capo simile già in suo possesso per trovare la taglia più appropriata. Buon lavoro!
03.10.2025 - 00:43
Periane skrifaði:
Pourriez vous m'expliquer "devant droit"tricoter A9,1-0-0-1-0-1 maille envers, tricoter A1 ? Merci
02.09.2025 - 04:34DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Periane, en fonction de votre taille, vous tricoterez après A.9 soit 1 maille envers soit aucune maille envers, puis soit 1 maille endroit, soit aucune maille endroit, puis vous tricotez A.1. Bon tricot!
02.09.2025 - 17:19
Sylvia skrifaði:
Is het mogelijk het patroon (vest) langer te maken, zo ja, welk gedeelte moet dan langer worden, of wordt het verdeeld over het geheel?
25.08.2025 - 17:03DROPS Design svaraði:
Dag Sylvia,
Helaas is het voor ons niet mogelijk om een patroon aan te passen naar persoonlijke wensen. Om een tip mee te geven: Je zou bijvoorbeeld het deel wat eruit ziet als honingraat en wat ter hoogte van de armsgaten zit, ook onderaan bij de panden kunnen doen.
27.08.2025 - 10:30
Жасмин skrifaði:
Нет нормального описания воротника, на все вопросы ниже, один ответ и он не работает! Я перевязывала воротник раз 10 и не нашла нормальный вариант. Очень расстроена...
10.05.2025 - 08:03
Жасмин skrifaði:
Если вязать воротник, согласно выкройке, то получается не такой, как на фото модели, а с подворотом. Такое ощущение, что укороченными рядами нужно вязать с другой стороны
30.03.2025 - 16:33
Petra skrifaði:
Ihre Antwort beantwortet leider nicht meine Frage. Wenn ich den Kragen so weiter stricke, nicht gezopft und mit verkürzten Reihen, hat der Schalkragen eine Breite von ca. 14 cm. Diese 14 cm stehen hinten am Hals sehr hoch und geben der Weste ein merkwürdiges Aussehen. Der im Video gezeigte Schalkragen besteht nur aus der Verlängerung der Knopfleiste. Das macht ja Sinn. Aber hier sind die Maschen des Zopfs ja noch. Oder ist die Anleitung für die verkürzten Reihen fehlerhaft?
13.03.2025 - 20:38DROPS Design svaraði:
Liebe Petra, sorry ich hatte die Frage nicht richtig verstanden, für den Schalkragen können Sie dann wahrscheinlich die Zöpfe A.10a immer noch stricken, aber die von A.8a nicht mehr; ich frage mal Design, aber wenn es eine Frage der Breite ist, dann würde ich schon die Zöpfe weiterstricken, beachten Sie nur, daß wegen verkürzten Reihe, diese Zöpfe auch verschieden aussehen werden, die Reihenanzahl zwischen Zöpfe einfach anpasse, damit A.10a immer noch wie zuvor aussieht. Viel Spaß beim Stricken!
14.03.2025 - 07:43
Cracked Walnuts Vest#crackedwalnutsvest |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónað vesti úr DROPS Kid-Silk og DROPS Puna / DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með áferðamynstri, garðaprjóni, köðlum og stroffprjóni. Stærð XS - XXL.
DROPS 237-10 |
||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.10. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. PRJÓNAÐ SAMAN: FRÁ RÉTTU: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. FRÁ RÖNGU: Prjónið 2 lykkjur brugðið saman. SLÉTTPRJÓN: Þegar prjónað er frá röngu er prjónað brugðið og þegar prjónað er frá réttu er prjónað slétt. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: XS: 6, 14, 22 og 30 cm. S: 6, 14, 22 og 30 cm. M: 6, 14, 23 og 32 cm. L: 7, 16, 25 og 34 cm. XL: 6, 14, 22, 29 og 36 cm. XXL: 6, 14, 22, 29 og 36 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkin og bakstykkið er prjónað neðan frá og upp, fram og til baka hvort fyrir sig í stykkjum. BAKSTYKKI: Fitjið upp 98-110-110-122-134-146 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.2 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 114-128-128-142-156-170 lykkjur eftir í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið síðan mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.3 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Endurtakið A.3 á hæðina þar til stykkið mælist 16-17-19-19-21-22 cm. Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.4 þar til 1 lykkja er eftir og fækkið jafnframt um 27-36-36-40-44-48 lykkjur jafnt yfir, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 87-92-92-102-112-122 lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.5 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. A.5 er endurtekið á hæðina. Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, fitjið upp 6 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða = 99-104-104-114-124-134 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni að réttu máli. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 33-35-36-38-39-41 cm. Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig: 7 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.6 þar til 7 lykkjur eru eftir, 7 lykkjur í garðaprjóni. Þegar A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 150-158-158-174-190-206 lykkjur í umferð. Prjónið mynstur þannig: 7 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.7 þar til 7 lykkjur eru eftir, 7 lykkjur í garðaprjóni. Prjónið A.7 alls 3 sinnum á hæðina. Stykkið mælist ca 45-47-48-50-51-53 cm. Prjónið mynstur þannig: 7 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.8 þar til 7 lykkjur eru eftir og fækkið jafnframt um 51-54-54-60-66-72 lykkjur jafnt yfir, 7 lykkjur í garðaprjóni = 99-104-104-114-124-134 lykkjur. Þegar A.8 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.8a á hæðina að loka máli. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, fellið af miðju 13-14-16-18-20-20 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl (43-45-44-48-52-57 lykkjur) er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja í byrjun á umferð = 42-44-43-47-51-56 lykkjur. Í næstu umferð við öxl eru felldar af fyrstu = 35-37-36-40-44-49 lykkjur. Prjónið síðan skáhallandi öxl með byrjun í næstu umferð frá hálsmáli þannig: * Prjónið mynstur eins og áður þar til 8-9-9-10-11-12 lykkjur eru eftir, snúið og prjónið til baka *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum. Þ.e.a.s. prjónað er yfir 8-9-9-10-11-12 lykkjur færri í hverri umferð frá hálsmáli. Í næstu umferð við hálsmál eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 37-39-38-42-46-51 lykkjur. Nú er prjónað og fellt af með kanti yfir axlalykkjur. Lykkjur sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar saman með axlalykkjum þannig: Prjónið * 1 lykkju SLÉTTPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, næsta umferð er prjónuð saman við fyrstu / næstu lykkju frá öxl – sjá PRJÓNAÐ SAMAN, lyftið til baka 2 lykkjum á prjóni sem eru með þráðinn að röngu á stykki, passið uppá að þráðurinn herðist ekki of mikið *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur frá öxl hafa verið prjónaðar saman með 2 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp. Fellið af 2 lykkjur. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 61-67-67-73-79-85 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Í næstu umferð frá réttu er prjónað mynstur þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.9, prjónið 1-0-0-1-0-1 lykkja brugðið, 1-0-0-1-0-1 lykkja slétt, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið mynstur frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.9 eins og áður, prjónið A.2 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Fellt er af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 70-77-77-84-91-98 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið síðan mynstur þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.9a, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þetta er gert til að mynstrið verði alveg eins mitt að framan á báðum framstykkjum), prjónið A.3 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 71-78-78-85-92-99 lykkjur. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, síðan er prjónað brugðið frá réttu og slétt frá röngu. Endurtakið A.3 á hæðina þar til stykkið mælist 16-17-19-19-21-22 cm. Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.9a eins og áður, prjónið A.4 þar til 1 lykkja er eftir og fækkið jafnframt um 15-17-17-19-21-23 lykkjur jafnt yfir, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 56-61-61-66-71-76 lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið mynstur þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.9a eins og áður, prjónið A.5 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. A.5 er endurtekið á hæðina. Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, fitjið upp 6 nýjar lykkjur í lok næstu umferðar frá réttu = 62-67-67-72-77-82 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni að loka máli. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 33-35-36-38-39-41 cm. Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.9a eins og áður, prjónið A.6 þar til 7 lykkjur eru eftir, 7 lykkjur í garðaprjóni. Þegar A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 83-91-91-99-107-115 lykkjur í umferð. Prjónið mynstur þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.9a eins og áður, prjónið A.7 þar til 7 lykkjur eru eftir, 7 lykkjur í garðaprjóni. Prjónið A.7 alls 3 sinnum á hæðina. Stykkið mælist ca 45-47-48-50-51-53 cm. Prjónið mynstur þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.9a eins og áður, prjónið A.8 þar til 7 lykkjur eru eftir og fækkið jafnframt um 21-24-24-27-30-33 lykkjur jafnt yfir, 7 lykkjur í garðaprjóni = 62-67-67-72-77-82 lykkjur. Þegar A.8 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.8a á hæðina að loka máli. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af fyrstu 7 lykkjur í næstu umferð frá röngu = 55-60-60-65-70-75 lykkjur. Prjónið síðan skáhallandi öxl með byrjun í næstu umferð frá hálsmáli þannig: * Prjónið mynstur eins og áður þar til 8-9-9-10-11-12 lykkjur eru eftir, snúið og prjónið til baka *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum. Þ.e.a.s. prjónað er yfir 8-9-9-10-11-12 lykkjur færri í hverri umferð frá hálsmáli. Í síðustu umferð við hálsmál er prjónað þar til 20-23-24-25-26-26 lykkjur eru eftir, setjið síðustu 20-23-24-25-26-26 lykkjur á þráð fyrir sjalkraga og fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 37-39-38-42-46-51 lykkjur. Nú er prjónað og fellt af með kanti yfir axlalykkjur. Lykkjur sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar saman með axlalykkjum þannig: Prjónið * 1 lykkju sléttprjón, næsta lykkja er prjónuð saman við fyrstu / næstu lykkju frá öxl – sjá PRJÓNAÐ SAMAN, lyftið til baka 2 lykkjum á prjóni sem eru með þráðinn að röngu á stykki, passið uppá að þráðurinn herðist ekki of mikið *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur frá öxl hafa verið prjónaðar saman með 2 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp. Fellið af 2 lykkjur. SJALKRAGI: Setjið 20-23-24-25-26-26 lykkjur af þræði á hringprjón 5,5. Prjónið með byrjun frá röngu: Prjónið 0-3-4-5-6-6 lykkjur garðaprjón, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur yfir lykkjur í A.9a og prjónið 7 kantlykkjur í garðaprjóni. Í næstu umferð frá réttu er prjónað þannig: 7 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur jafnframt því sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir 8 lykkjur slétt fyrir miðju í A.9a = 16-19-20-21-22-22 lykkjur. Haldið áfram með garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur (þ.e.a.s. köðlum er ekki snúið lengur) og prjónið stuttar umferðir þannig: Umferð 1 (rétta): Prjónið yfir fyrstu 12-15-16-17-18-18 lykkjur, snúið og herðið á þræði. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið yfir 12-15-16-17-18-18 lykkjur. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið yfir allar lykkjur, snúið og herðið á þræði. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið yfir allar lykkjur. Prjónið umferð 1 til 4 þar til sjalkraginn mælist ca 7-8-8-9-9-9 cm þar sem hann er stystur. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 61-67-67-73-79-85 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og brugðnar lykkjur út umferðina. Í næstu umferð frá réttu er prjónað mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 20-18-18-20-18-20 lykkjur eru eftir, prjónið 1-0-0-1-0-1 lykkju slétt, 1-0-0-1-0-1 lykkja brugðið, A.10, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið mynstur frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.2 þar til 18 lykkjur eru eftir, A.10 eins og áður, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 70-77-77-84-91-98 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.3 þar til 20 lykkjur eru eftir, A.10a, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Endurtakið A.3 á hæðina þar til stykkið mælist 16-17-19-19-21-22 cm. Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.4 þar til 20 lykkjur eru eftir og fækkið jafnframt um 14-16-16-18-20-22 lykkjur jafnt yfir, A.10a eins og áður, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 56-61-61-66-71-76 lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.5 þar til 20 lykkjur eru eftir, A.10a eins og áður, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. A.5 er endurtekið á hæðina. Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, fitjið upp 6 nýjar lykkjur í lok næstu umferðar frá röngu = 62-67-67-72-77-82 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni að réttu máli. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 33-35-36-38-39-41 cm. Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig: 7 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.6 þar til 20 lykkjur eru eftir, A.10a eins og áður, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 83-91-91-99-107-115 lykkjur eftir í umferð. Prjónið mynstur þannig: 7 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.7 þar til 20 lykkjur eru eftir, A.10a eins og áður, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið A.7 alls 3 sinnum á hæðina. Stykkið mælist ca 45-47-48-50-51-53 cm. Prjónið mynstur þannig: 7 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.8 þar til 20 lykkjur eru eftir og fækkið jafnframt um 21-24-24-27-30-33 lykkjur jafnt yfir, A.10a eins og áður, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 62-67-67-72-77-82 lykkjur. Þegar A.8 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.8a á hæðina að loknu máli. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af fyrstu 7 lykkjur í næstu umferð frá réttu = 55-60-60-65-70-75 lykkjur. Prjónið síðan skáhallandi öxl með byrjun í næstu umferð frá hálsmáli þannig: * Prjónið mynstur eins og áður þar til 8-9-9-10-11-12 lykkjur eru eftir, snúið og prjónið til baka *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum. Þ.e.a.s. prjónað er yfir 8-9-9-10-11-12 lykkjur færri í hverri umferð frá hálsmáli. Í síðustu umferð við hálsmál er prjónað þar til 20-23-24-25-26-26 lykkjur eru eftir, setjið síðustu 20-23-24-25-26-26 lykkjur á þráð fyrir sjalkraga og fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 37-39-38-42-46-51 lykkjur. Nú er prjónað og fellt af með kanti yfir axlarlykkjur. Lykkjur sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar saman með axlalykkjum þannig: Prjónið * 1 lykkju sléttprjón, næsta lykkja er prjónuð saman við fyrstu / næstu lykkju frá öxl – sjá PRJÓNAÐ SAMAN, lyftið til baka 2 lykkjum á prjóni sem eru með þráðinn að röngu á stykki, passið uppá að þráðurinn herðist ekki of mikið *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur frá öxl hafa verið prjónaðar saman með 2 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp. Fellið af 2 lykkjur. SJALKRAGI: Setjið 20-23-24-25-26-26 lykkjur af þræði á hringprjón 5,5. Prjónið með byrjun frá réttu: Prjónið 0-3-4-5-6-6 lykkjur garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur í A.10a jafnframt sem fækkað er 4 lykkjur jafnt yfir 8 lykkjur slétt fyrir miðju í A.10a og prjónið 7 kantlykkjur í garðaprjóni = 16-19-20-21-22-22 lykkjur. Haldið áfram með garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur (þ.e.a.s. köðlum er ekki snúið lengur) og prjónið stuttar umferðir þannig: Umferð 1 (rétta): Prjónið yfir fyrstu 12-15-16-17-18-18 lykkjur, snúið og herðið á þræði. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið yfir 12-15-16-17-18-18 lykkjur. UMFERÐ 3 (ranga): Prjónið yfir allar lykkjur, snúið og herðið á þræði. UMFERÐ 4 (rétta): Prjónið yfir allar lykkjur. Prjónið umferð 1 til 4 þar til sjalkraginn mælist ca 7-8-8-9-9-9 cm þar sem hann er stystur. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana innan við 1 lykkju í icord-kanti. Saumið lykkjur í garðaprjóni við hverja aðra. Saumið sjalkragann saman fyrir miðju að aftan og saumið við hálsmál aftan í hnakka. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #crackedwalnutsvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.