Eija skrifaði:
Monessa ohjeessa näyttää olevan niskakorotus ennen kaarrokkeen aloittamista, mutta tässä ohjeessa ei sellaista neuvota tekemään. Miten se vaikuttaa puseron istuvuuteen? Yleensähän puseroissa niskaosa on hieman etuosaa korkeampi. Voiko tähän puseroon sellaisen tehdä ja mistä ohjeesta siihen olisi helpointa ottaa ohje?
22.10.2023 - 08:06DROPS Design svaraði:
Hei, voit halutessasi tehdä tähän puseroon korotuksen. Seuraa tällöin esim. uuden joulupuseromme ohjetta: DROPS 243-35.
25.10.2023 - 18:09
Cristina skrifaði:
Storlek M.
28.09.2023 - 20:13
Cristina skrifaði:
Hej, Jag har problem med mina stickade plagg när jag stickar med raglan uppifrån och ner. Det blir altid snett och hela tröjan blir fel. En av två strecken från raglan hamnar fel. Jag har räcknat rätt antalet maskor men hittar inte felet. Vad kan det vara?
18.09.2023 - 10:15DROPS Design svaraði:
Hei Cristina Vi skal hjelpe deg så godt vi kan, men hvilken str. strikker du etter? mvh DROPS Design
26.09.2023 - 13:03
Piret skrifaði:
Bonjour, je ne comprends pas très bien ou je dois faire les augmentations du raglan au niveau de toutes les 2 augmentations, on augmente que pour le dos/ devant. Autrement dit on augmente pour le dos/devant tout les 2 tours, mais tout les 4 tour pour les manches. Ma question est, ou dois-je faire mes augmentations ? Toujours de chaque côté d’un marqueur, si oui les quels ? 1-3 et puis 2-4 ou je dois augmenter qu’une maille par marqueur ? C’est mon tout premier raglan…
14.07.2023 - 08:09DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Piret, vous faites les augmentations toujours au niveau des marqueurs. Pour les manches vous augmentez apres les marqueurs -1 et 3 et avant les marqueurs -2 et -4. Pour le dos et le devant vous augmentez avant les marqueurs -1 et 3 et apres les marqueurs -2 et -4. Bon tricot!
15.07.2023 - 21:26
Gitte skrifaði:
Der er fejl i dansk oversættelse 🙃 Ang hvor mange masker ved udtagning til raglan og striber ! Mvh Gitte
30.05.2023 - 14:02
Vittoria skrifaði:
Se volessi lavorarlo in piano, quante maglie dovrei avviare?
21.12.2022 - 10:50DROPS Design svaraði:
Buonasera Vittoria, per un'assistenza così personalizzata può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!
28.12.2022 - 19:09
Claudia Wollrath skrifaði:
Ist die Anleitung auch für einen Männerpulli geeignet oder muss ich irgendwas verändern?
17.11.2022 - 15:53DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Wollrath, hier finden Sie Tipps, um die Anleitung in eine Herrengröße umzurechnen. Viel Spaß beim stricken!
17.11.2022 - 16:29
Berit Nielsen skrifaði:
Der er en fejl i maskeantal efter udt til raglan der står på en størrelse L at der skal være 304 masker men det stemmer ikke overens med opskriften da det er 272 masker man ender ud med har tjekket med den norske version og der står der 272 masker er meget tilfreds med jeres strikkeopskrifter og har strikket en del af dem. Med venlig hilsen Berit Nielsen Esbjerg
09.11.2022 - 20:10
Henriette Ruiz skrifaði:
St malo
08.08.2022 - 09:07
Karin skrifaði:
Schöner Streifenpulli
07.08.2022 - 20:37
Latitude#latitudesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma eða DROPS Puna. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, laskalínu og röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 235-18 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 3 lykkjur (prjónamerki situr í miðju af þessum lykkjum) í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. RENDUR: Það eru prjónaðar rendur þannig: * Prjónið 4 umferðir með litnum natur / natur, prjónið 4 umferðir með litnum ljós perlugrár / ljós perlugrár *, prjónið frá *-*. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 108-112-118-124-128-134 lykkjur á hringprjón 4 með litnum natur / natur í DROPS Karisma eða DROPS Puna. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið hringinn í stroffprjóni (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stykkið mælist 13 cm (það á að brjóta kant í hálsmáli niður síðar). BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið jafnframt því sem prjónað er þannig: Prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1. prjónamerki í þessa lykkju, prjónið 27 lykkjur slétt (ermi), prjónið 1 lykkju slétt og setjið 2. prjónamerki í þessa lykkju, prjónið 25-27-30-33-35-38 lykkjur slétt (framstykki), prjónið 1 lykkju slétt, setjið 3. prjónamerki í þessa lykkju, prjónið 27 lykkjur slétt (ermi), prjónið 1 lykkju slétt og setjið 4. prjónamerki í þessa lykkju, prjónið 25-27-30-33-35-38 lykkjur slétt (bakstykki). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 5-7-5-10-11-18 lykkjur jafnt yfir á milli 2. og 3. prjónamerkis (30-34-35-43-46-56 lykkjur fyrir framstykki) og á milli 4. og 1. prjónamerkis (30-34-35-43-46-56 lykkjur fyrir bakstykki) = 118-126-128-144-150-170 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt á milli 4. og 1. prjónamerkis, héðan er nú stykkið mælt. Nú er prjónað sléttprjón jafnframt því sem aukið er út fyrir LASKALÍNA og prjónaðar eru RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Aukið út í annarri hverri umferð alls 10-13-18-17-20-21 sinnum = 198-230-272-280-310-338 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með útaukningar fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið er út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 20-20-18-20-20-22 sinnum á fram- og bakstykki (10-10-9-10-10-11 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 30-33-36-37-40-43 sinnum á fram- og bakstykki og 20-23-27-27-30-32 sinnum á ermum. Á fram- og bakstykki eru 90-100-107-117-126-142 lykkjur á milli 2. og 3. prjónamerkis og á milli 4. og 1. prjónamerkis, á ermum eru 67-73-81-81-87-91 lykkjur á milli 1. og 2. prjónamerkis og á milli 3. og 4. prjónamerkis. Þegar allar útaukningar fyrir fram- og bakstykki og ermar hafa verið gerðar til loka eru 318-350-380-400-430-470 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón og rendur þar til stykkið mælist 23-24-26-27-29-31 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 1 lykkju slétt (lykkja með 1. prjónamerki tilheyrir bakstykki), setjið næstu 67-73-81-81-87-91 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur í hlið undir ermi, prjónið næstu 92-102-109-119-128-144 lykkjur (framstykki), setjið næstu 67-73-81-81-87-91 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur í hlið undir ermi, prjónið síðustu 91-101-108-118-127-143 lykkjur (afgangur af bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 200-220-234-258-276-308 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og röndum. Þegar stykkið mælist 26-27-27-28-28-28 cm frá skiptingu – stillið af að endað sé með minnst 2 umferðir í litnum natur / natur (nú eru eftir ca 5 cm að loknu máli) og afgangur af stykki er prjónaður í litnum natur / natur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-20-24-26-26-28 lykkjur jafnt yfir = 220-240-258-284-302-336 lykkjur. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 67-73-81-81-87-91 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-8-10-10-10 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 75-81-89-91-97-101 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau aðeins síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og röndum. Þegar ermin mælist 5 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 3-2½-2-1½-1½-1 cm millibili alls 10-12-15-15-16-17 sinnum = 55-57-59-61-65-67 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 37-37-35-34-33-31 cm frá skiptingu – stillið af að endað sé með minnst 2 umferðir í litnum natur / natur og afgangur af stykki er prjónaður með litnum natur / natur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 5-7-5-7-7-5 lykkjur jafnt yfir = 60-64-64-68-72-72 lykkjur. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 42-42-40-39-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður með nokkrum sporum við hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #latitudesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.