Veronica skrifaði:
Sätt upp håret på bilderna så man kan se halsen ordentligt!!!
17.03.2023 - 07:00
Ulrika skrifaði:
Nöjd med modellen men ärmlängden i mönstret var på tok för kort. Ändå har jag normallängd på armar, fick 1,5 nystan över på XL.
27.02.2023 - 07:05
Ulrika skrifaði:
Jag förstår inte hur jag ska göra efter att ha stickat 8 cm hals. Ska jag byta till kort sticka nr 5 och börja med A1 direkt? Ni måste ha missat lite i mönstret innan mönsterstickningen . Ska jag inte sticka några cm med grått innan mönsterstickningen börjar och byta till längre sticka?
18.01.2023 - 19:27DROPS Design svaraði:
Hej Ulrika, du går direkt vidare till OK (fortsätter med beige enligt diagrammet). Sätt 1 markör....
19.01.2023 - 09:37
Gabrielle Von Bülow skrifaði:
Hallo, das Muster ist super toll - habe gerade die Wolle dazu bestellt. Habe aber 2 Fragen: 1.) Ein Bündchen, was man abkettet, wird immer ausleiern. Kann ich evtl. ein anderes Muster als Bündchen stricken, was weniger ausleiert? 2.) Könnte ich den Pulli auch für meinen Mann stricken in Gr. L (ca. 50), und welche Frauengröße würde ich nehmen? Danke und MFG Gabrielle
23.10.2022 - 16:40DROPS Design svaraði:
Liebe Frau von Bülow, ein abgekettene Bündchen wird nich ausleiern, am besten nicht zu locker abketten (Ihr DROPS Händler hat vielleicht noch mehr Tipps für Sie); Um eine Damengröße in einer Herrengröße um zurechnen, wird Ihnen die 20. Frage vom FAQ helfen. Viel Spaß beim stricken!
24.10.2022 - 08:41
Esseline skrifaði:
Hallo, ik vraag me af of er iets niet klopt in het telpatroon. Namelijk de 23e rij met 1 antraciet en 6 beige. Moet dat niet zijn 7 beige of 1 antraciet, 5 beige en 1 antraciet? Dank u alvast voor uw antwoord.
26.09.2022 - 19:58DROPS Design svaraði:
Dag Esseline,
Heb het nagekeken en het zou wel moeten kloppen zoals het in het telpatroon getekend is.
27.09.2022 - 17:50
Debbie skrifaði:
Please could you explain your sizing? I am getting confused and need to work out what size to knit for a 82 cm bust Hope you can help
11.09.2022 - 20:48DROPS Design svaraði:
Read answer below :)
12.09.2022 - 11:30
Debbie skrifaði:
I am finding myself confused by your sizing, please could you advise what size to knit for bust size 32inches and also help me to understand how the sizing works for future projects? Many thanks and hope you can help
11.09.2022 - 20:43DROPS Design svaraði:
Dear Debbie, sure, measure a similar garment you have and like the shape and compare these to the measurements in the chart to find ou the matchign size - read more about sizing and measurement charts here - Happy knitting!
12.09.2022 - 11:29
Christine Reffet skrifaði:
Magnifique!
03.09.2022 - 09:49
Neva skrifaði:
Lovely pattern. Can't wait to try it love Neva.
01.09.2022 - 19:23
Birgit skrifaði:
Schneesturm
08.08.2022 - 09:21
Over the Fjords#overthefjordssweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og marglitu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 235-5 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, áður en stykkið skiptist við klauf. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84-88-92-96-100-104 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum beige í DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið þar til stroffið mælist 8 cm. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 5. BERUSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 11-17-23-29-35-36 lykkjur jafnt yfir = 95-105-115-125-135-140 lykkjur. Prjónið nú eftir mynsturteikningu A.1. Sjá LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 228-252-276-300-324-336 lykkjur eftir í umferð. Prjónið 1 umferð slétt með litnum milligrár þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 232-256-272-304-324-344 lykkjur. Haldið áfram með litinn milligrár og sléttprjón þar til stykkið mælist ca 22-22-23-25-27-29 cm frá prjónamerki. Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 34-38-40-44-49-53 lykkjur slétt (hálft bakstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 68-76-80-88-98-106 lykkjur slétt (framstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið þær 34-38-40-44-49-53 lykkjur sem eftir eru slétt (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Stykkið er nú mælt héðan! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 148-164-176-192-216-236 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni og litnum milligrár. Prjónið þar til stykkið mælist 23-25-25-25-25-25 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 8 cm að loknu máli). Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 14-18-18-18-22-22 lykkjur jafnt yfir = 162-182-194-210-238-258 lykkjur. Nú skiptist stykkið í hvorri hlið þannig að það verða 81-91-97-105-119-129 lykkjur á bakstykki og 81-91-97-105-119-129 lykkjur á framstykki. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið síðan hvert stykki fyrir sig. FRAMSTYKKI: Prjónið stroff fram og til baka, með byrjun frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar kanturinn mælist 8 cm, fellið af. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. BAKSTYKKI: Prjónið stroff á sama hátt og á framstykki. ERMI: Setjið 48-52-56-64-64-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það er notað síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn með litnum milligrár. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 8-6-4-3-2½-2½ cm millibili alls 4-5-7-10-10-10 sinnum = 46-48-50-52-54-58 lykkjur. Prjónið síðan án útaukninga þar til ermin mælist 34-34-33-33-31-30 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út um 6-4-6-4-6-6 lykkjur jafnt yfir = 52-52-56-56-60-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 8 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 42-42-41-41-40-38 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #overthefjordssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.