Martine skrifaði:
Bonjour j aimerais savoir comment faites vous les raccords de pelote de laine bouclette en tricotant en circulaire pour les manches Merci de votre réponse Martine 😁
12.12.2022 - 12:37DROPS Design svaraði:
Bonjour Martine, vous pouvez le faire comme vous le faites pour le pull, il existe différentes techniques; celle du joint russe donne de bons résultats par exemple. Bon tricot!
12.12.2022 - 16:09
Beatrice skrifaði:
Qual è la taglia indossata dalla modella? grazie
28.11.2022 - 16:01DROPS Design svaraði:
Buonasera Beatrice, le modelle indossano la taglia M. Buon lavoro!
28.11.2022 - 22:18
Catherine skrifaði:
Suis je obligée de tricoter avec les aiguilles circulaires ? Merci
21.10.2022 - 08:47DROPS Design svaraði:
Bonjour Catherine, non, mais vous devrez alors faire les ajustements nécessaires, par ex. assemblez 1 des épaules et relevez les mailles du col avant de faire la couture du col + de l'autre épaule et tricotez alors les manches. Retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!
21.10.2022 - 09:41
Leora Noam skrifaði:
Soft Cloudy Hug
08.08.2022 - 11:45
Enni skrifaði:
Cotton candy
06.08.2022 - 10:12
Timea skrifaði:
Candy floss
05.08.2022 - 15:46
Katie skrifaði:
Comfort Zone
04.08.2022 - 17:03
Dagmar De Jong skrifaði:
Cozy Classic
04.08.2022 - 16:03
Snow Kiss#snowkisssweater |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca Bouclé og DROPS Melody. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með háum kanti í hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð XS - XXL.
DROPS 237-33 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (á við um hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Í BYRJUN Á UMFERÐ FRÁ HÁLSMÁLI ÞANNIG: 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Í LOK UMFERÐAR VIÐ HÁLSMÁL ÞANNIG: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt (1 lykkja færri). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 4 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-3 (á við um kantinn neðst á ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt (lykkja með prjónamerki í), 1 lykkja brugðið, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum alveg eins í hverri úrtökuumferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp hvort fyrir sig. Stykkið er saumað saman á öxlum. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram handvegi og ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar til ermakúpan hefur verið prjónuð til loka, síðan er afgangur af ermi prjónaður í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna, ofan frá og niður. Stykkið er saumað saman í hliðum. Að lokum er prjónaður hár kantur í hálsmáli sem brotinn er inn. BAKSTYKKI: Fitjið upp 65-69-75-81-87-97 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 9-9-9-11-11-13 lykkjur jafnt yfir = 56-60-66-70-76-84 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið síðan sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af 2-3-5-5-6-8 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 52-54-56-60-64-68 lykkjur. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, fellið af miðju 18-18-20-20-22-22 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram og fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 = 16-17-17-19-20-22 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið af aðeins laust. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp jafnmargar lykkjur eins og á bakstykki og prjónið alveg eins og bakstykki þar til stykkið mælist 45-47-48-50-51-53 cm. Setjið nú miðju 14-14-16-16-16-16 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram og fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu alls 3-3-3-3-4-4 sinnum = 16-17-17-19-20-22 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið aðeins laust af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR-1: Saumið axlasaumana. ERMI: Notið hringprjón 7 og 1 þráð í hvorri tegund (2 þræðir), prjónið upp frá réttu 23-24-25-26-28-29 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl og 23-24-25-26-28-29 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni = 46-48-50-52-56-58 lykkjur meðfram handvegi. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – ermin á að mælast frá þessu prjónamerki. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 2-3-4-4-5-7 cm frá prjónamerki. Nú er stykkið sett saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 7 – afgangur af ermi er prjónaður í hring. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 6-7-8-8-9-11 cm frá prjónamerki, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 15-15-10-10-6-5 cm millibili alls 2-2-3-3-5-5 sinnum = 42-44-44-46-46-48 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 39-39-39-39-38-37 cm frá prjónamerki. Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-4-8-6-10-8 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð og 1 prjónamerki í 25.-27.-27.-29.-29. lykkju í umferð. Nú eru 23-23-25-25-27-27 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við lykkjur með prjónamerki í – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-3 (4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í 3. hverri umferð alls 6 sinnum = 24-24-28-28-32-32 lykkjur eftir. Eftir síðustu umferð með úrtöku, fellið allar lykkjur af – passið uppá að affellingarkanturinn dragi ekki stykkið saman. Ermin mælist ca 49-49-49-49-48-47 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR-2: Saumið hliðarsauma frá handvegi og niður – saumið kant í kant í ystu lykkjubogana, en endið sauminn þegar ca 6 cm eru eftir neðst í hvorri hlið (klauf). Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu við annan axlasauminn, prjónið upp ca 64 til 76 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 6 með 1 þræði í hvorri tegund. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar kanturinn í hálsmáli mælist 16-16-17-17-18-18 cm, aukið út aðra hverja 1 lykkju brugðið til 2 lykkjur brugðið = ca 80 til 95 lykkjur. Prjónið áfram þar til kanturinn í hálsmáli mælist ca 18-18-19-19-20-20 cm. Fellið aðeins laust af. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður með nokkrum sporum við hvora öxl, þannig að stroffið haldist á sínum stað. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #snowkisssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.