DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Paris yarn
DROPS Paris
100% Bómull
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2618.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Echo Mountain Top

Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og gatamynstri. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 230-19

#echomountaintop

DROPS Design: Mynstur w-869
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
350-400-400-450-500-550 g litur 100, ljós þveginn

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 60-60-80-80-80-80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60-60-80-80-80-80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2618.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 80-84-88-88-92-96 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með DROPS Paris.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Í næstu umferð er önnur hver 1 brugðin lykkja aukin út til 2 lykkjur brugðið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir annarri hverri brugðinni lykkju = 100-105-110-110-115-120 lykkjur.
Haldið áfram með stroff. ATH: Í fyrstu umferð er uppslátturinn prjónaður frá útaukningu snúið brugðið, svo ekki myndist gat.
Þegar stroffið mælist 4 cm, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-9-10-14-17-20 lykkjur jafnt yfir = 108-114-120-124-132-140 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið sléttprjón í 2-3-3-4-4-5 cm – JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 12-16-20-26-28-30 lykkjur jafnt yfir = 120-130-140-150-160-170 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Nú er prjónað A.1 alls 12-13-14-15-16-17 sinnum hringinn á berustykki.
Haldið áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 216-234-252-285-304-323 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan sléttprjón – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 0-2-8-3-4-1 lykkjur jafnt yfir = 216-236-260-288-308-324 lykkjur.
Prjónið þar til stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá uppfitjunarkanti.
Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 31-34-37-41-45-49 lykkjur sléttprjón (½ bakstykki), setjið næstu 46-50-56-62-64-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 62-68-74-82-90-98 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 46-50-56-62-64-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið 31-34-37-41-45-49 lykkjur sléttprjón (½ bakstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 136-148-164-180-200-220 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 14 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 14-14-16-18-20-22 lykkjur jafnt yfir = 150-162-180-198-220-242 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm.
Fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum. Peysan mælist ca 42-44-46-48-50-52 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 46-50-56-62-64-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-56-64-70-74-76 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið er notað þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2-2-2-2-0-0 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA = 50-54-62-68-74-76 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 7-6-5-4-3-2 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 11-10-9-8-7-6 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

slétt lykkja = slétt lykkja
snúin slétt lykkja = snúin slétt lykkja
brugðin lykkja = brugðin lykkja
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat
lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi snúið slétt, prjónið 1 lykkju snúið slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi snúið slétt, prjónið 1 lykkju snúið slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, lyftið næstu lykkju af prjóni og setjið hana til til baka snúna á vinstri prjón, setjið til baka fyrstu lyftu lykkjunni á vinstri prjón og prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman<br />
<br />
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, lyftið næstu lykkju af prjóni og setjið hana til til baka snúna á vinstri prjón, setjið til baka fyrstu lyftu lykkjunni á vinstri prjón og prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman

lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi snúið slétt, prjónið 2 lykkjur snúið slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi snúið slétt, prjónið 2 lykkjur snúið slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
Diagram for DROPS 230-19
Diagram for DROPS 230-19

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag Anne Dahlgren skrifaði:

Efter A1 har jeg strikket 12 x19 masker det giver 228, men i opskriften står 216, hvilket er forkert. Når jeg del til for og bagstykke samt ærmer fordeler jeg så 2 x 66 og 2 x 48 i stedet for 62 og 46? Og skal jeg stadig slå 6 masker ekstra op efter at have sat 46 til side til hvert ærme?

19.05.2025 - 18:50

DROPS Design svaraði:

Hej Anne, i størrelse small skal du kun have 18 masker (ikke 19) når du er færdig med diagrammet. 12 x 18 = 216 masker :)

22.05.2025 - 11:38

country flag Rebecca skrifaði:

In the instructions for the body, it says “Continue with stocking stitch for 14 cm.” (for all sizes) and then the 4cm rib before casting off. This would mean that the underarm to cast off measurement would be 18cm for all sizes from small all the way up to xxxl. Shouldn’t the length increase with each size? Is that correct or a mistake in the pattern?

13.04.2025 - 21:49

DROPS Design svaraði:

Dear Rebecca, you can check the measurements schematic at the bottom. The difference in length of the top will be due to the yoke, while the body section will be 18 cm in all sizes. The top is not very long. But you can lengthen it if you think it's too short; simply work in stocking stitch more cm and finish with the 4cm rib when there are 4cm remaining for your desired measurements. Happy knitting!

13.04.2025 - 23:39

country flag Josefien skrifaði:

Goedenavond, In het patroon staat, dat ik 6 steken moet opzetten in de zijkant onder de mouw. Dit begrijp ik niet helemaal. Kunt u mij helpen? Mvg,

08.02.2025 - 20:30

DROPS Design svaraði:

Dag Josefien,

In de bovenste video van de lijst met video's die bij het patroon staan, wordt uitgelegd hoe je een trui van boven naar beneden breit en hierin wordt (ongeveer op 7:30 min getoond hoe je steken opzet in de zijkant onder de mouw.

09.02.2025 - 10:29

country flag Lisbet Jacobsen skrifaði:

Jeg forstår ikke den måde i har beskrevet måden på hvordan ærmet skal strikkes på kunne i ikke bare skrive lænden på ærmet fra hvor man har strikket masker op under ærmet i stedet for at skrive at der skal strikkes 3 cm fra deling tages der ind og 2 cm fra deling og strikke 4 cm rib ærmet måler ca 6 cm jeg strikker en str XXXL

05.02.2025 - 11:08

DROPS Design svaraði:

Hej Lisbeth, det lyder til at det stemmer fint. Se også målene i måleskitsen nederst i opskriften :)

12.02.2025 - 10:50

country flag Jag skrifaði:

Hello! Ezen a részen rossz a fordítás, mert fogyasztást ír, pedig szaporítani kell. VÁLLRÉSZ:...... .....UGYANAKKOR, az 1. körben, egyenletesen elosztva fogyasszunk 12-16-20-26-28-30 szemet = 120-130-140-150-160-170 szem.

30.01.2025 - 21:14

country flag Ceci skrifaði:

For the final instruction for the sleeves, are the numbers reversed in order for different sizes? It seems odd that the largest size would have the shortest sleeves - I assume this was a pattern typo?

24.01.2025 - 20:38

DROPS Design svaraði:

Dear Ceci, the sleeve measurements are shorter in the larger sizes because the yoke was longer, so the sleeve section of the yoke compensates for the missing cm in the actual sleeve. Happy knitting!

25.01.2025 - 19:50

country flag Iris skrifaði:

In de pas staat dat ik na A.1 tricot moet breien tot het werk 24cm meet vanaf de opzetrand. Is de opzetrand het begin van de pas, het begin van A.1 of het begin van de kraag? Alvast bedankt!

29.08.2024 - 15:24

country flag Cécile skrifaði:

Bonjour, Pour l’encolure, on nous de tricoter 3cm de côtes torses, puis augmenter une maille sur une maille envers sur deux. Jusque là ok, par contre on nous dit de continuer les côtes jusqu.a 4cm. Est ce que cela veut dire qu’à partir de ce rang on a des côtes 1/1 et des côtes 2/2. ? Merci

24.08.2024 - 17:31

DROPS Design svaraði:

Bonjour Cécile, comme vous n'augmentez que dans 1 m envers sur 2 des côtes, vous aurez des côtes ( 1 m end, 1 m env, 1 m end, 2 m env) (ou bien: 1 m end, 2 m env, 1 m end, 1 m env en fonction de là où vous avez augmenté au début du tour) pendant 1 cm (jusqu'à ce que les côtes mesurent 4 cm). Bon tricot!

26.08.2024 - 07:53

country flag Lucinda David skrifaði:

Bonjour, quelle technique de montage des mailles utilisez-vous? Mon montage de mailles est apparemment trop serré, car le col ne passe pas ma tête! C est la 1ère fois que cela m arrivé et j'ai pourtant réalisé plusieurs de vos modèles qui se tricotent de haut en bas! Merci pour votre aide (je tricoté la taille s)

06.08.2024 - 08:11

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme David, nous utilisons en général un montage de ce type, mais n'hésitez pas à utiliser une aiguille plus grosse si besoin, ou bien même montez les mailles avec 2 aiguilles (cf vidéo) si besoin, ou encore testez le montage à l'italienne en côtes 1/1 par exemple. Bon tricot!

06.08.2024 - 09:31

country flag Alex skrifaði:

Hi! After completing the A1 pattern I am supposed to knit until the work measures 20cm. Is the 20cm from the very beginning of the work ( very first row) or is it from the last row in which the stitches were added?

22.06.2024 - 08:46

DROPS Design svaraði:

Dear Alex, the pattern specifically tells you to "Work until the piece measures 20-22-24-26-28-30 cm from the cast-on edge." So you need to measure this from the cast on edge. Happy Knitting!

22.06.2024 - 10:14