Adriana Nogueira Dos Santos Lucena skrifaði:
Parte das costas sobram três pontos além da divisão dos gráficos.Seria 32 pontos para o gráfico + 2 para o raglan. Mas,são 34 pontos na divisão para as costas.
18.06.2022 - 23:34
Kamilla skrifaði:
Hej, När jag stickat 16 varv mönster på diagram A1c, A1a och A2, hur fortsätter jag efter det?? Är nybörjare på att sticka mönster. /Kamilla
18.06.2022 - 09:15DROPS Design svaraði:
Hej Kamilla, mønsteret fortsætter med 2 vrang, hulrækken 3 vrang, 1 ret, 3 vrang og så videre, til du har taget alle masker ud :)
21.06.2022 - 14:32
Lost in Summer Cardigan#lostinsummercardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri og ¾ löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 231-50 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1d og A.1e). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsi mælist 3 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-9-8-8½-8½-9 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsimáliog berustykki er prjónað fram og til baka hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 115-121-125-129-133-137 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Muskat. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff fram og til baka svona í 3 cm. Eftir stroffið er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 13-7-3-16-12-8 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 128-128-128-145-145-145 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni). Setjið 1 prjónamerki innan við kant að framan í byrjun á umferð frá réttu. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert prjónamerki er sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Teljið 22-22-22-26-26-26 lykkjur (framstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 25 lykkjur ( ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 34-34-34-43-43-43 lykkjur (bakstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 25 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 22-22-22-26-26-26 lykkjur eftir á eftir síðasta prjónamerki (framstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að auka út við hvert prjónamerki. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Nú á að prjóna mynstur og auka út fyrir laskalínu. Lesið MYNSTUR og LASKALÍNA áður en prjónað er áfram! MYNSTUR: Prjónið frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1d, A.1c, 2 lykkjur sléttprjón, A.2, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, A.1a, prjónið A.1b alls 2-2-2-3-3-3 sinnum, A.1c, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, A.2, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, A.1a, A.1e, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! ATH: Prjónamerkin 4 sitja á milli 2 lykkja í sléttprjóni. LASKALÍNA: JAFNFRAMT í hverri umferð frá réttu er aukið út um 8 lykkjur fyrir laskalínu. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við 2 lykkjur í sléttprjón í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur jafnóðum inn í A.1a /A.1c og A.2 á sama hátt og útskýrt er í mynsturteikningu. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (í hverri umferð frá réttu) alls 23-26-30-32-37-41 sinnum = 312-336-368-401-441-473 lykkjur. Prjónið mynstur án þess að auka út þar til stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki við hálsmál – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Skiptið berustykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 48-52-56-60-67-73 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 65-69-77-85-91-95 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið 86-94-102-111-125-137 lykkjur eins og áður (bakstykki), setjið næstu 65-69-77-85-91-95 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið 48-52-56-60-67-73 lykkjur eins og áður (framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 194-210-226-247-275-299 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan, en yfir 2 lykkjur frá hverri gataumferð á berustykki, prjónið A.3, þ.e.a.s. í 4. hverri umferð fléttast lykkjurnar, sem áður voru í gataumferð, í línu beint yfir hverri gataumferð, þannig að það myndast línur á fram- og bakstykki eftir berustykki. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 22 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 63-69-73-80-88-96 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 257-279-299-327-363-395 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl. ERMI: Setjið 65-69-77-85-91-95 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 71-75-83-93-99-103 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi (mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjur). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki, prjónið 3-3-3-4-4-4 lykkjur í sléttprjóni, haldið áfram með A.2 yfir lykkjur frá berustykki og prjónið 3-3-3-4-4-4 síðustu lykkjur í sléttprjóni. Þegar ermin mælist 4-4-4-3-3-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-4-4-3-2½-2 cm millibili alls 2-2-2-3-3-3 sinnum = 67-71-79-87-93-97 lykkjur. Þegar stykkið mælist 15-13-12-10-9-7 cm frá skiptingu, prjónið 2 lykkjur í hverri gataumferð slétt saman, að auki er fyrsta og síðasta lykkja í umferð prjónuð slétt saman (= alls 9-9-9-11-11-11 lykkjur færri) = 58-62-72-76-82-86 lykkjur. Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, en lykkjan sem stendur ein mitt undir ermi er prjónuð brugðið í stærð S og XXL og hún er prjónuð slétt í stærð M, L, XL og XXXL. Prjónið þar til ermin mælist 19-17-16-14-13-11 cm frá skiptingu. Í næstu umferð í stærð M, L og XXXL eru prjónaðar 2 lykkjur brugðið saman hvoru megin við lykkju mitt undir ermi = 58-60-70-76-82-84 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) – stillið af að stroffið passi við lykkjurnar út umferðina. Prjónið þar til ermin mælist 23-21-20-18-17-15 cm frá skiptingu. Fellið aðeins laust af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lostinsummercardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-50
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.