Monica skrifaði:
Nella domanda di prima ho dimenticato di chiedere... lavorando le maniche devo sempre aumentare di 4 maglie oltre agli aumenti del raglan?
06.09.2022 - 17:58DROPS Design svaraði:
Buonasera Monica, deve procedere con gli aumenti sulle maniche come indicato nelle spiegazioni. Buon lavoro!
27.09.2022 - 21:40
Monica skrifaði:
Buongiorno, lavorando il collo, finiti i due cm, inizio con il diagramma ma alla fine del giro totale mi restano 4 maglie. E corretto? Si lavorano a dritto?
06.09.2022 - 17:56DROPS Design svaraði:
Buonasera Monica, ha inserito i segnapunti NELLE maglie come indicato e non TRA le maglie? Buon lavoro!
12.09.2022 - 21:49
Nat skrifaði:
Hi can you explain what “Continue this pattern and increase to RAGLAN” means? when do i follow what it says in the raglan section and when do i go back to what it says in the yoke section?
06.09.2022 - 06:29DROPS Design svaraði:
Hi Nat, You begin to increase for raglan straight away when told to do so in the text (following the instructions under Raglan at the top of the pattern). When A.1 to A.3 are finished in height, you then follow the new increase instructions in the text. Happy knitting!
06.09.2022 - 06:52
Edite skrifaði:
Bonjour,je me suis mal exprimée dans ma question précédente ,en fait c'est quand je commence l'empiecement avec les 12 mailles et les diagrammes à la fin du rang il me reste 4 mailles !!!Dois-je en tricoter 2 de plus avec les 12 soit 14 pour les manches.Merci pour l'aide.
10.05.2022 - 11:09DROPS Design svaraði:
Bonjour Edite, attention, les marqueurs sont à insérer dans une maille, pas entre 2 mailles, autrement dit, vous aurez: 1 m avec 1 marqueur, 12 m + 4 m = 16 m, 1 m avec 1 marqueur (manche), A.1, 4xA.2 et A.3 (devant), 1 m avec 1 marqueur, 12 m + 4 m = 16 m, 1 m avec 1 marqueur (manche), A.1, 4xA.2 et A.3 (dos), soit: 1+16+1+6+24+5+1+16+1+6+24+5=106 m (et si on retire les 8 augmentations = 98 mailles). Bon tricot!
10.05.2022 - 14:04
Edite skrifaði:
Quand je finis de tricoter l'empiecement avec les 12 mailles et les diagrammeset A1,A2 et A3 il me reste quatre mailles sur les aiguilles!!! Je tricote la taille deux ans.Merci pour l'aide
06.05.2022 - 18:50DROPS Design svaraði:
Bonjour Edite, avez-vous bien 246 mailles avant la division? Si tel est le cas, vous devriez tomber juste: 51 mailles (manche) + 72 mailles (devant) + 51 mailles (manche) + 72 mailles (dos) soit 51+72+51+72=246 mailles. Bon tricot!
09.05.2022 - 07:53
Susanne skrifaði:
Hej jag har nu stickat de tre rapportera tre ggr enligtbeskrivning för st 12-18mån. Men nu förstår jag inte. Det står fortsätt sticka med ökningarna för ärm men inte på fram och bakstycke, är det de svarta ökningarna i rapporten ni menar att jag inte ska göra? För sedan står det längre ner börja sticka på den andra maskan (antar att det är i mönstret ni syftar då och inte på arbetet) och då är det ju samma som det står högre upp när jag nu ska sticka utan ökningar?
06.04.2022 - 12:47
Cotswolds Sweater#cotswoldssweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Flora. Stykkið er prjónað með laskalínu og gatamynstri, ofan frá og niður. Stærð 0 – 2 ára.
DROPS Baby 43-1 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. LASKALÍNA: Á framstykki og bakstykki eru útaukningar teiknaðar inn í mynsturteikningu. Á ermum er aukið út þannig: Aukið út um 1 lykkju á eftir 1. og 3. prjónamerki þannig: Prjónið lykkjuna með prjónamerki slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið út um 1 lykkju á undan 2. og 4. prjónamerki þannig: Prjónið fram að lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkjuna með prjónamerki slétt. Í næstu umferð er uppsláttur prjónaður í útaukningu snúinn, svo ekki myndist gat! Endurtakið útaukningu í hverri umferð alls 10-12-14-16-17 sinnum. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 86-86-86-98-98 lykkjur á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 2,5 með DROPS Flora. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 2 cm, skiptið yfir á stuttan hringprjón 3. BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru sett 4 prjónamerki í stykkið, aukið út og prjónið mynstur þannig: Ermi: Setjið 1. prjónamerki í fyrstu lykkju, prjónið 12 lykkjur sléttprjón og aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir, setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju. Framstykki: A.1, A.2 er prjónað 3-3-3-4-4 sinnum, A.3. Ermi: Setjið 1. prjónamerki í fyrstu lykkju, prjónið 12 lykkjur sléttprjón og aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir, setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju. Bakstykki: A.1, A.2 er prjónað 3-3-3-4-4 sinnum, A.3. Haldið áfram með mynstur svona og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 til A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón og aukið út yfir ermi eins og áður fram að 2. prjónamerki, A.1, A.2 er prjónað 5-5-5-6-6 sinnum, A.3, prjónið sléttprjón og aukið út yfir ermi eins og áður fram að 4. prjónamerki, A.1, A.2 er prjónað 5-5-5-6-6 sinnum, A.3. Endurtakið mynstur á hæðina. Í hvert skipti sem A.1 og A.3 er endurtekið á hæðina er pláss fyrir 2 mynstureiningar fleiri af A.2 á bakstykki og á framstykki. Þegar A.1 og A.3 hefur verið endurtekið alls 2-2-3-3-3 sinnum á hæðina, er útaukningu lokið á framstykki og bakstykki, haldið einungis áfram með útaukningu á ermum eins og útskýrt er að ofan. Haldið áfram með mynstur á bakstykki og framstykki eins og áður, en án útaukninga. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka eru 182-190-222-242-246 lykkjur í umferð. Prjónið nú mynstur þannig: Byrjið að prjóna við 2. lykkju í umferð (þetta er núna byrjun á umferð), prjónið 37-41-45-49-51 lykkjur sléttprjón, A.2 er prjónað 9-9-11-12-12 sinnum, prjónið 37-41-45-49-51 lykkjur sléttprjón, A.2 er prjónað 9-9-11-12-12 sinnum (síðasta lykkjan sem var prjónuð í A.2 er fyrsta lykkjan í umferð). Þegar 5. umferð í A.2 er prjónuð, prjónið fyrstu lykkju í fyrstu mynstureiningu á framstykki/bakstykki slétt, síðasta lykkjan í síðustu mynstureiningu á framstykki/bakstykki er prjónuð yfir fyrstu lykkju á ermi. Þegar stykkið mælist 12-13-14-15-16 cm frá uppfitunarkanti, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar í næstu umferð þannig: Setjið fyrstu 37-41-45-49-51 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6 lykkjur undir ermi, prjónið 54-54-66-72-72 lykkjur mynstur eins og áður, setjið næstu 37-41-45-49-51 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6 lykkjur undir ermi, prjónið 54-54-66-72-72 lykkjur mynstur eins og áður. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 120-120-144-156-156 lykkjur. Haldið áfram hringinn með A.2 yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 9-12-13-15-17 cm frá skiptingu, aukið út um 18-18-22-24-24 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð = 138-138-166-180-180 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af. Peysan mælist alls ca 24-28-30-33-36 cm frá öxl. ERMI: Setjið 37-41-45-49-51 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 43-47-51-55-57 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingu fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 2½-2-2-2-2½ cm millibili alls 3-5-6-7-8 sinnum = 37-37-39-41-41 lykkjur. Þegar stykkið mælist 10-12-15-16-22 cm frá skiptingu aukið út um 5 lykkjur jafnt yfir = 42-42-44-46-46 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stroffið mælist 3 cm. Ermin mælist ca 13-15-18-19-25 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cotswoldssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 43-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.