Ana Oliveira skrifaði:
Boa noite, É possível substituir o fio usado pelo fio cotton light? Será que dá para usar o mesmo número de malhas? Obrigada
09.10.2023 - 22:54DROPS Design svaraði:
Bom dia, è possível, sim, mas desde que, depois de fazer uma amostra de 10 cm, a meça e obtenha a mesma tensão, ou seja, o mesmo número de malhas em largura. Para este modelo, a amostra deve ter 17 malhas em largura e 22 carreiras em altura, em ponto meia. Bons tricôs!
10.10.2023 - 08:35
Cristina Oliveira skrifaði:
Boa tarde, se as mangas são tricotadas em carreiras de idas e voltas porque precisamos de agulhas de pontas duplas? Não estou a perceber a necessidade de usar as agulhas de pontas duplas. Podemos utilizar as agulhas circulares 4mm e 5mm e tricotarem carreiras de idas e voltas. Obrigada
19.09.2023 - 19:19DROPS Design svaraði:
Boa tarde, As mangas tanto se podem tricotar em redondo como em idas e voltas. As agulhas de pontas duplas são sempre mencionadas para quem não utiliza a técnica do Magic Loop para se tricotar em redondo. Bons tricôs!.
20.09.2023 - 15:18
Cristina Oliveira skrifaði:
Boa tarde, é possível fazer as mangas do início ao fim em carreiras de idas e voltas? Ou temos que começar em voltas circulares e só depois de fazer uma parte é que temos que fazer em carreiras de idas e voltas? Obrigada
16.09.2023 - 16:16DROPS Design svaraði:
Bom dia, As mangas deste modelo tricotam-se em idas e voltas, começando no punho. Bons tricôs!
19.09.2023 - 10:15
Cristina Oliveira skrifaði:
Bom dia, estive a analisar a explicação do modelo em questão é reparei que na parte das mangas falta a explicação de como fazer o trabalhado rendado no final da manga conforme está na figura. Como se faz esse trabalhado? Obrigada
15.09.2023 - 10:06DROPS Design svaraði:
Bom dia, Como, neste modelos, as mangas se tricotam a começar pelo punho, o rendado é tricotado logo no princípio (corresponde ao diagrama A.3). Depois, é só continuar a manga. Bons tricôs!
19.09.2023 - 10:20
Ana Oliveira skrifaði:
Bom dia, estava a pensar fazer esta camisola no tamanho S. Gostaria de saber caso queira fazer de mangas compridas a quantidade de lã que é aconselhada chega para aumentar as mangas? Obrigada
13.09.2023 - 08:11DROPS Design svaraði:
Bom dia, Aconselhamos a que use, pelo menos, mais 2 novelos para uma versão de mangas compridas para o tamanho S. Bons tricôs!
14.09.2023 - 13:22
Ewa skrifaði:
W opisie wkradł się mały błąd. Jest: "Na krótkich drutach z żyłką nr 4 nabrać 280-308-336-364-406-434 oczka", a powinno być: Na DŁUGICH drutach z żyłką nr 4 nabrać 280-308-336-364-406-434 oczka. Nie zmieści się tyle oczek na 40 cm. drut.
05.04.2022 - 11:36DROPS Design svaraði:
Bardzo dziękujemy Ewo. Poprawimy błąd. Pozdrawiamy!
05.04.2022 - 13:56
Anna skrifaði:
Bellissimo! Potreste consigliarmi come lavorare le maniche lunghe? Oppure a quale vostro modello ispirarsi? Grazie in anticipo:-)
28.03.2022 - 10:42DROPS Design svaraði:
Buonasera Anna, può semplicemente lavorare più cm prima di iniziare ad intrecciare le maglie. Buon lavoro!
29.03.2022 - 22:49
Sonja skrifaði:
Sehr schön! Greta wäre ein schöner Name
08.02.2022 - 19:24
Provence Purple#provencepurplesweater |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með tvöföldum kanti í hálsmáli og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 232-51 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. ÚRTAKA (á við um handveg og hálsmál): Lykkjum er fækkað innan við 2 lykkjur: Fækkið lykkjum í lok umferðar frá réttu þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju sléttprjón og 1 lykkju garðaprjón. Fækkið lykkjum í byrjun á umferð frá röngu þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, 1 lykkju sléttprjón, lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið út umferðina eins og áður. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi, síðan skiptist stykkið og framstykkið og bakstykkið er prjónað til loka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Ermar skiptast þegar fellt er af fyrir handveg og síðan er prjónað fram og til baka. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli. PEYSA: Fitjið upp 280-308-336-364-406-434 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt, 5 lykkjur brugðið). Haldið svona áfram með stroff. Þegar stykkið mælist 3 cm, fækkið um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu með því að prjóna 2 fyrstu lykkjurnar í hverri brugðinni einingu brugðið saman. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 4 cm, en nú eru prjónaðar 2 síðustu lykkjurnar í hverri brugðinni einingu brugðið saman = 200-220-240-260-290-310 lykkjur. Í næstu umferð er A.1 prjónað yfir allar lykkjur í umferð (20-22-24-26-29-31 sinnum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 160-176-192-208-232-248 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 9 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-12-16-16-16-12 lykkjur jafnt yfir = 148-164-176-192-216-236 lykkjur í umferð. Prjónið A.2 yfir allar lykkjur, þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í heilli mynstureiningu í umferð með gatamynstri, eru prjónaðar í sléttprjóni. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm, prjónið næstu umferð þannig – nú er lykkjum fækkað fyrir handveg og framstykkið/bakstykkið er prjónað til loka hvort fyrir sig. Byrjið 3 lykkjum á undan byrjun á umferð, fellið af 6 lykkjur, prjónið 68-76-82-90-102-112 lykkjur, fellið af 6 lykkjur, prjónið 68-76-82-90-102-112 lykkjur. Hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig, fram og til baka. Setjið fyrstu 68-76-82-90-102-112 lykkjurnar á þráð og prjónið áfram yfir síðustu 68-76-82-90-102-112 lykkjur á bakstykki. BAKSTYKKI: = 68-76-82-90-102-112 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir handveg í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju 2-4-5-8-12-15 sinnum = 64-68-72-74-78-82 lykkjur. Þegar stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm, fellið af miðju 24-26-28-30-32-34 lykkjur af fyrir hálsmáli og axlir eru prjónaðar til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 19-20-21-21-22-23 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm (19-20-21-22-23-24 cm frá skiptingu fyrir handveg), fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 68-76-82-90-102-112 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir handveg í hvorri hlið – munið eftir ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju 2-4-5-8-12-15 sinnum = 64-68-72-74-78-82 lykkjur. Þegar stykkið mælist 42-44-45-47-48-50 cm, setjið miðju 18-20-22-24-26-28 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og axlir eru prjónaðar til loka fyrir sig. Fækkið síðan lykkjum við hálsmál í annarri hverri umferð, fækkið um 1 lykkju 4 sinnum – munið ÚRTAKA = 19-20-21-21-22-23 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm (= 19-20-21-22-23-24 cm frá skiptingu fyrir handveg), fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 44-46-48-50-52-54 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið A.3 í hring. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, haldið áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 8 lykkjur jafnt yfir = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 6 cm (mælt frá uppábroti), aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 10-6-4-3-1-1 cm millibili alls 2-3-4-6-7-9 sinnum = 56-60-64-70-74-80 lykkjur. Þegar stykkið mælist 21-20-20-20-19-17 cm, fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki (= 6 lykkjur færri mitt undir ermi), prjónið síðan handveg fram og til baka. Fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 3-3-3-3-3-4 sinnum, 1 lykkja 1-2-2-2-3-3 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til ermin mælist 28 cm í öllum stærðum, fellið síðan af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist 29 cm í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu og prjónið upp ca 68 til 96 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði og deilanlegt með 2) með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Prjónið síðan A.4 yfir allar lykkjur. Fellið aðeins laust af. Brjótið uppá stykkið við gataumferð í A.4 þannig að faldur fyrir saum verði að innanverðu á stykkinu. Saumið affellingarkantinn við efsta garðaprjón. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #provencepurplesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-51
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.