Irina skrifaði:
Udtagninger fra 3 til 6 masker virker lidt kryptisk. Er der en video, hvor man kan se denne udtagning? Tror jeg skal se det for at forstå, hvordan man strikker ret i de samme 3 masker som man lige har strikket vrang i. Som regel er det meget lettere, når man lige ser det først.
15.02.2022 - 20:24DROPS Design svaraði:
Hej Irina, du strikker de samme 3 masker sammen (skiftevis ret og vrang) til du har 6 masker på højre pind, nu slipper du de 3 masker du har strikket sammen af pinden :)
16.02.2022 - 15:49
Carla Cannova skrifaði:
Perché non mettere le istruzioni in italiano?
01.02.2022 - 17:48DROPS Design svaraði:
Buonasera Carla, sotto la foto di ogni modello può trovare il menù a tendina per scegliere la lingua. A questo link può trovare il modello in italiano. Buon lavoro!
01.02.2022 - 22:17
Francis Berghuis skrifaði:
Een roze wolk!
01.02.2022 - 09:29
Kiki skrifaði:
Soft cloud
18.01.2022 - 20:24
Anne skrifaði:
Candy floss
17.01.2022 - 23:22
Margrét skrifaði:
Cotton candy
17.01.2022 - 01:12
Lena Bocenda skrifaði:
Midsommardröm
15.01.2022 - 15:59
AD Knits skrifaði:
Breeze at Sunset
14.01.2022 - 20:12
Ilona skrifaði:
Ein traum in rosa
14.01.2022 - 18:07
Kiddylove skrifaði:
Powder rose
13.01.2022 - 23:18
Misty Rose Cardigan#mistyrosecardigan |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr 4 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og blöðruermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 232-5 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar stykkið er mátað). 1 hnappagat = prjónið frá réttu eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu nákvæmlega á eftir stroffi í hálsmáli, síðan er fellt af fyrir 3 næstu hnappagötum eins og útskýrt er að ofan með ca 10 cm millibili. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Peysan er prjónuð með 4 þráðum DROPS Kid-Silk. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 68-74-74-77-80-83 lykkjur á hringprjón 6 með 2 þráðum með litnum vanilla, 1 þræði með litnum ljós lavender og 1 þræði með litnum bleikvínrauður (4 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúin slétt, endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (frá röngu er prjónuð 1 lykkja snúin brugðið, 2 lykkjur slétt). Prjónið svona stroff í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 8. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til = 63-68-73-78-83-88 lykkjur (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni eins og áður). Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1, A.2 er prjónað 10-11-12-13-14-15 sinnum, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 156-170-184-198-212-226 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 26-29-32-33-35-38 lykkjur (framstykki), setjið næstu 31-32-34-38-41-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 42-48-52-56-60-66 lykkjur (bakstykki), setjið næstu 31-32-34-38-41-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið síðustu 26-29-32-33-35-38 lykkjur (framstykki). HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 106-118-128-138-146-162 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 25 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 16-16-18-20-24-23 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan) = 122-134-146-158-170-185 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið nú stroff þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúin slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (frá röngu er prjónuð 1 lykkja snúin brugðið, 2 lykkjur slétt). Prjónið stroff svona í 6 cm, fellið síðan af. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 31-32-34-38-41-42 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 8. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 37-38-40-46-49-52 lykkjur. Byrjið umferð mitt í nýjar lykkjur mitt undir ermi og prjónið sléttprjón hringinn. Prjónið áfram þar til ermin mælist 28-26-25-23-22-21 cm frá skiptingu. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, eitt í byrjun á umferð (mitt undir ermi) og eitt eftir 18-19-20-23-24-26 lykkjur (ca mitt á ermi). Nú er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 4.-4.-4.-3.-3.-3. hverri umferð alls 3-3-3-4-4-4 sinnum = 25-26-28-30-33-36 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 36-34-33-31-30-29 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 5-4-5-6-6-3 lykkjur jafnt yfir = 30-30-33-36-39-39 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6. Prjónið stroff (1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið stroff svona í 6 cm, fellið síðan af. Ermin mælist alls 42-40-39-37-36-35 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mistyrosecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.