Edith Christensen skrifaði:
Hvor er diagrammet?
19.01.2022 - 17:14DROPS Design svaraði:
Hej Edith, du finder diagrammet til højre for måleskitsen nederst i opskriften :)
20.01.2022 - 15:40
Jacqueline skrifaði:
Bonjour, Quelques conseils pour le col. Vaut-il mieux le retourner sur l'ext ou sur l'intérieur ? Avec quoi le coudre ? Merci
17.12.2021 - 17:55DROPS Design svaraði:
Bonjour Jacqueline, nos suggestions sont de de le coudre à l'intérieur, avec la laine utilisée pour le tricoter - retrouvez dans cette vidéo comment coudre un col doublé. Bon tricot!
20.12.2021 - 07:01
Marie José Baptista skrifaði:
Bonjour,ce modèle est présenté avec le dos et le devant tricotés séparément ,puis je utiliser des aiguilles droites ?dans ce cas dois je utiliser les mêmes consignes?merci de votre réponse
02.12.2021 - 20:04DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Baptista, tout à fait, on utilise ici des aiguilles circulaires pour le dos et le devant pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles; pour ne pas avoir à tricoter la bordure des emmanchures et le col en rond, procédez progressivement en ne faisant qu'une couture d'épaule pour le col et terminez la 2ème couture avec l'épaule - puis ne cousez les côtés que lorsque les bordures des emmanchures sont faites. Bon tricot!
03.12.2021 - 08:16
Camille skrifaði:
Bonjour, je ne comprends pas, où est le diagramme?
28.11.2021 - 11:50DROPS Design svaraði:
Bonjour Camille, le diagramme A.1 se trouve juste à droite du schéma des mesures, c'est un petit diagramme qui se tricote sur 2 mailles et 4 rangs. Bon tricot!
29.11.2021 - 07:53
Camilla Slipover#camillaslipover |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónað vesti / slipover úr DROPS Wish. Stykkið er prjónað með áferðamynstri, stroffprjóni og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 226-60 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna og saumað saman. Í lokin er prjónað stroff í kringum handveg og hálsmál. BAKSTYKKI: Fitjið upp 56-60-64-68-76-80 lykkjur á hringprjón 8 með DROPS Wish. Prjónið stroffprjón yfir allar lykkjur (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stroffið mælist 4 cm og næsta umferð er prjónuð frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 9, prjónið 1 umferð brugðið og fækkið lykkjum jafnt yfir 2-4-4-4-4-4 lykkjur = 54-56-60-64-72-76 lykkjur. Prjónið síðan A.1 yfir allar lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm, fellið af fyrir handveg í annarri hverri umferð (í byrjun á hverri umferð) í hvorri hlið þannig: Fellið af 2-2-2-2-2-3 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 0-0-1-2-6-6 sinnum, síðan er felld af 1 lykkja í 4. hverri umferð alls 3-3-3-3-2-2 sinnum í hvorri hlið = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Þegar stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm, fellið af miðju 18-18-20-20-22-22 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið mynstur eins og áður og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 12-13-13-14-14-15 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 55-57-58-60-61-63 cm. Fellið nú af miðju 14-14-16-16-18-18 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið mynstur eins og áður og fellið af 1 lykkju í hverri umferð frá hálsmáli alls 3-3-3-3-3-3 sinnum = 12-13-13-14-14-15 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana kant í kant. Saumið hliðarsauma frá handvegi og niður í ystu lykkjubogana. KANTUR Í HANDVEGI: Byrjið mitt undir ermi. Notið hringprjón 8, prjónið upp ca 72-76-80-84-84-88 lykkjur í kringum handveg (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING í útskýringu að ofan. Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrji við axlasauminn. Notið hringprjón 8, prjónið upp ca 56 til 68 lykkjur í kringum hálsmál (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stroffið mælist ca 11 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #camillaslipover eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-60
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.