DROPS Wish
DROPS Wish
50% Alpakka, 33% Bómull, 17% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Isla Slipover

Prjónað vesti / slipover úr DROPS Wish eða 2 þráðum DROPS Air. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með köntum í stroffprjóni og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 226-58
DROPS Design: Mynstur wi-035
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S/M - L/XL - XXL/XXXL

EFNI:
DROPS WISH frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
300-300-350-350-400-450 litur 05, beige

Eða notið:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-300-350-350-400-450 g litur 55, ljós beige

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 8: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 40 cm og 80 cm.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm með 1 þræði DROPS Wish eða 2 þráðum DROPS Air.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Wish
DROPS Wish
50% Alpakka, 33% Bómull, 17% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig til loka máls.
Kantur er prjónaður í stroffprjóni í kringum handveg og í kringum hálsmál.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 69-73-77-85-93-103 lykkjur á hringprjón 7 með DROPS Wish eða DROPS Air. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, 1 lykkja brugðið og 2 kantlykkjur í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 6 cm og næst umferð er frá réttu.
Í næstu umferð er prjónað þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið sléttprjón og fækkið um 17-17-17-19-19-21 lykkjur jafnt yfir næstu 67-71-75-83-91-101 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 52-56-60-66-74-82 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 8 og prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm, fellið af fyrir handveg í annarri hverri umferð (í byrjun á hverri umferð) í hvorri hlið þannig:
Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-1-2 sinnum, 2 lykkjur 0-1-2-2-3-3 sinnum og 1 lykkja 5-4-3-5-6-5 sinnum = 36-38-40-42-44-48 lykkjur.
Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, fellið af miðju 20-20-22-22-24-24 lykkjur fyrir hálsmáli og axlir eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig.
Prjónið sléttprjón og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 7-8-8-9-9-11 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm og fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 45-47-48-50-51-53 cm. Fellið nú af miðju 8-8-8-10-10-10 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið sléttprjón og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3-3-4-3-4-4 sinnum = 7-8-8-9-9-11 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm og fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið hliðarsaum í ystu lykkjubogana þannig að það myndist ekki þykkur saumur, en skiljið eftir 6 cm neðst við stroff (= klauf).

KANTUR Í HANDVEGI:
Notið hringprjón 7. Byrjið í hlið neðst í handvegi og prjónið upp frá réttu innan við 1 lykkju, ca 72-72-76-76-80-84 lykkjur í kringum handveg (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2). Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hinn kant í handvegi á sama hátt.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið stuttan hringprjón 7. Byrjið mitt í annarri öxlinni og prjónið upp frá réttu innan við 1 lykkju, ca 54-54-60-60-64-64 lykkjur í kringum hálsmál (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2). Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Isla Slipover

bubbydee, Canada

Isla Slipover

Melissa, United Kingdom

Isla Slipover

suendo_handmade, Italy

Isla Slipover

Julie - Arctic Stitches, Ireland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-58

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (43)

country flag Ylva Segnestam wrote:

är det fel på mönstret? på bakstycket står avmaska 20-20-22-osv för halsen. På framstycket ska 8-8-8-10-osv avmaskas. Ska det vara så?

24.03.2024 - 13:24

DROPS Design answered:

Hej Ylva, det er fordi halsudskæringen er dybere på forstykket end på bagstykket :)

03.04.2024 - 15:27

country flag Isouille wrote:

Bonjour, Sur le dos du travail en taille S, lorsque l'ouvrage mesure 51 cm, on doit rabattre les mailles pour l'encolure. Faut-il rabattre 20 mailles d'un seul coup (sur un seul rang) ou répartir sur plusieurs rangs ? Cela donne 16 mailles soit 8 par épaule. Ensuite pour chaque épaule il suffit de rabattre 1 maille sur le rang suivant ? Soit reste 7 mailles de chaque côté ? D'avance merci !

22.01.2024 - 14:05

DROPS Design answered:

Bonjour Isouille, pour l'encolure on doit rabattre les 20 mailles centrales sur un même rang: sur l'endroit, tricotez les mailles de l'épaule gauche, rabattez les mailles de l'encolure et tricotez les mailles de l'épaule droite, vous terminerez d'abord l'épaule droite (rabattez 1 maille au début du rang suivant à partir de l'encolure = sur l'endroit pour l'épaule droite) et rabattez les mailles restantes à 54 cm de hauteur totale. Reprenez les mailles de l'épaule gauche et terminez de la même façon. Bon tricot!

23.01.2024 - 07:12

country flag Naomi Mather wrote:

If I am doubling C (C+C) then do I need 600g for the size M?

15.12.2023 - 16:06

DROPS Design answered:

Dear Naomi, the instructions are already accounting for 2 threads of DROPS Air (group C). So the amounts indicated are already for a pattern with 2 threads of group C, you don't need to double the amount. So you would need 300g of DROPS Air. Happy knitting!

17.12.2023 - 18:01

country flag Aurélie wrote:

Bonjour, pour le dos, je ne comprends pas pourquoi faut-il faire une diminution sur 17 mailles après les 6 cm de côte ? Sur le schéma, on voit que le dos du pull est bien droit, je ne vois pas les diminutions sur le schéma. Pouvez vous s’il vous plaît expliquer comment faire ces diminutions : vous indiquez « à intervalles réguliers », qu'est ce que cela veut dire s’il vous plaît ?

03.11.2023 - 23:51

DROPS Design answered:

Bonjour Aurélie, on doit diminuer après les côtes car on a besoin, pour la même largeur, de davantage de mailles avec les aiguilles 7, en côtes qu'avec les aiguilles 8, en jersey. Cette leçon explique comment diminuer (et augmenter) à intervalles réguliers et devrait ainsi vous aider. Bon tricot!

06.11.2023 - 08:04

country flag Sara wrote:

Jag försöker omformulera frågan ang kantmaska. När ska man sluta sticka kantmaska på bak och framstycke?

24.08.2023 - 14:51

DROPS Design answered:

Hei Sara Se vårt forrige svar til deg :) mvh DROPS Drops

28.08.2023 - 10:44

country flag Sara wrote:

Ledsen men jag förstod inte svaret helt. Det jag undrar är om man ska sluta sticka kantmaska när man börjar maska av för armen? Nu har jag nästan stickat klart bakstycket och har då kört på kantmaska hela tiden... Men tänker att det kan vara bra att veta när jag ska sticka framstycket. Förstod inte detta som ni skrev i svar på min första fråga : Når du skal strikke ermehullskanten strikker du fra retten innenfor 1 maske. Vad betyder innenfor 1 maske?

21.08.2023 - 17:17

DROPS Design answered:

Hei Sara. Skjønner godt du ikke skjønte svaret du fikk, ser ut som noe av svaret har "forsvunnet" da svaret ble publisert. Beklager det. Når du feller av til ermhull og skal strikke forstykke og bakstykket, kan du slutte å strikke kantmaske i rätstickning. Men om du ønsker å strikke kantmaske i rätstickning kan du fint gjøre det, og når du skal strikke ermhullskanten skal du strikke opp masker innenfor kantmasken i rätstickning eller innenfor siste/første maske i glattstrikk. Da vil kantmasken (som enten er strikket i rätstickning eller bare glattstrikk) komme på vrangen. mvh DROPS Design

28.08.2023 - 10:43

country flag Sara wrote:

Ska man sticka kantmaska hela arbetet? Dvs även när man maskar av för armhålan?

20.08.2023 - 21:15

DROPS Design answered:

Hei Sara. Det behøver du ikke. Når du skal strikke ermehullskanten strikker du fra retten innenfor 1 maske. mvh DROPS Design

21.08.2023 - 13:26

country flag Sharon Hunt wrote:

What size is the model wearing? I usually knit a size 52 but am afraid if I knit the next size up it maybe too large. I like the way the 😅 looks on the model.

17.08.2023 - 14:20

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hunt, our models are wearing a size S or M most of the time; but to find your own size, measure a similar garment you have and like the shape and compare the measurements to the one in the chart (adjust to your desired ease), this will be the best way to find the matching size. Read more here. Happy knitting!

17.08.2023 - 14:25

country flag Gertild wrote:

Klopt het dat ik na de boord steken moet minderen? Meestal moet je toch meerderen? Ik brei niet met een rondbreinaald, dus doe ik overal de helft van? Alvast grote dank.

23.03.2023 - 16:39

DROPS Design answered:

Dag Gertild,

Ja, het klopt dat je na de boordsteken moet minderen. Dit is om te voorkomen dat de boord het werk gaat samentrekken.

24.03.2023 - 19:38

country flag Kathy DeWitt wrote:

Hi : For the armholes of the Isla slipover, front do you cast off 3 stitches at the beginning and end of the row, or at the beginning of the next two rows? And then 2 stitches at the beginning of the next two rows And then 1 stitch at the beginning of the next 8 rows.?? I find that The way it is written is really confusing. Thank you for your help!!

16.03.2023 - 18:19

DROPS Design answered:

Dear Mrs DeWitt, you cast off the stitches for armholes at the beginning of the row on each side = both from right side and from wrong side so that armholes are symmetrical, this means you will cast off 3 stitches at the beginning of next 2 rows (= 3 sts on each side), then 1 stitch at the beginning of next 8 rows (4 sts on each side) - (in size M only). Happy knitting!

17.03.2023 - 08:39