North Gate |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Wish. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, marglitu mynstri og háum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 228-13 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 54 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 5) = 10,8. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 11. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kantlykkjur.. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi 10. og 11. hver lykkja slétt saman og ekki er lykkjum fækkað yfir kantlykkjur. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir 6-7-7-7-7-7 hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = Prjónið 2 lykkjur saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn – ATH: Það er fallegast ef fellt er af fyrir hnappagötum með því að prjóna 2 brugðnar lykkjur saman í einingu með 2 lykkjum brugðið (séð frá réttu). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Neðsta hnappagatið er staðsett ca 4-6 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið er ca 1 cm frá kanti í hálsmáli. Þau 4-5-5-5-5-5 hnappagöt sem eru eftir eru staðsett jafnt yfir. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka frá miðju að framan, ofan frá og niður. Lykkjur fyrir kant að framan eru felldar af og afgangur af berustykki er prjónaður fram og til baka með 1 kantlykkju í hvorri hlið við miðju að framan. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Að lokum er prjónaður upp kantur að framan á framstykkjum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 60-64-64-68-68-72 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 7 með litnum gallabuxnablár í DROPS Wish. Prjónið 1 umferð brugðið (= frá röngu). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur snúnar slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Frá röngu er prjónað þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur snúnar brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 5 lykkjurnar (hér á að sauma kant að framan síðar niður), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 50-54-54-58-58-62 lykkjur, JAFNFRAMT eru auknar út 1-1-5-5-13-13 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA, prjónið stroff eins og áður yfir næstu 4 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Skiptið yfir á hringprjón 8. Snúið stykkinu, fellið af fyrstu 5 lykkjur, prjónið brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir í umferð (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 51-55-59-63-71-75 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki eftir kantlykkju í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Lesið LEIÐBEININGAR og prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð (= 12-13-14-15-17-18 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið fyrstu lykkju í A.1 (þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins í hvorri hlið við miðju að framan – ATH! Ekki er aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu fyrir þessa lykkju) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Kantlykkjur eru prjónaðar í saman lit og fyrsta/síðasta lykkjan í mynstri. Þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru 147-159-171-183-207-219 lykkjur í umferð. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með litnum gallabuxnablár. Í næstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til 146-158-178-186-206-222 lykkjur. Þegar stykkið mælist 25-25-25-27-29-31 cm, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 22-24-27-28-32-35 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 30-32-36-38-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 42-46-52-54-62-68 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 30-32-36-38-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 22-24-27-28-32-35 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 98-106-118-126-142-154 lykkjur. Haldið áfram með litnum gallabuxnablár, prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið þar til stykkið mælist 15-17-19-19-19-19 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið JAFNFRAMT út 10-10-10-10-14-14 lykkjur jafnt yfir = 108-116-128-136-156-168 lykkjur. Lykkjur eru auknar út til að stroffið sem prjóna á dragi ekki stykkið saman. Skiptið yfir á hringprjón 7. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur snúnar brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Frá réttu er prjónað þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur snúnar slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjóni, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. ERMI: Setjið 30-32-36-38-40-42 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi með litnum gallabuxnablár = 36-38-42-46-48-50 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 3-3-3-4-4-4 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 11-10-7-6-4-4 cm millibili alls 3-3-4-4-5-5 sinnum = 30-32-34-38-38-40 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 27-26-28-26-25-23 cm frá skiptingu – eða að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 10 cm að loka máli). Nú eru auknar út 10-8-10-8-10-8 lykkjur jafnt yfir = 40-40-44-44-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 7. Prjónið stroff (= 2 lykkjur snúnar slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir snúnar sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 37-36-38-36-35-33 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp frá réttu meðfram framstykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni ca 68-80 lykkjur á hringprjón 7 með litnum gallabuxnablár (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4). Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur snúnar brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Frá réttu er prjónað þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur snúnar slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist ca 2 cm, fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til stroffið mælist 4 cm, stillið af að kanturinn að framan sé jafn breiður og breiddin á 5 lykkjum sem felldar voru af í kanti í hálsmáli. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið á sama hátt og hægri kantur að framan, en ekki fella af fyrir hnappagötum. FRÁGANGUR: Saumið kant í hálsi fallega við kant að framan með sauminn inn að röngu. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (25)
Fabienne wrote:
Bonjour, j'ai oublié de vous demander si je devais tricoter tout le diagramme de gauche à droite ? Je pense d'après les explications de drops que c'est de droite à gauche pair et l'inverse rang envers . Je préfère avoir votre avis. Merci encore . Bonne journée.
17.04.2024 - 15:39DROPS Design answered:
Bonjour Fabienne, les diagrammes se lisent de bas en haut, de droite à gauche sur l'endroit et de gauche à droite sur l'envers. Bon tricot!
18.04.2024 - 07:50Fabienne wrote:
Bonjour, je reviens vers vous car je ne comprends pas comment se font les mailles lisières, j'ai regardé différentes vidéo mais je ne comprends pas comment terminer un rang en tricotant une maille lisière , je pense que la maille lisière ne se tricote pas mais se glisse ? depuis les 63 mailles du début je me retrouve avec des mailles supplémentaires ( 3 ) dont je ne sais quoi faire. j'attends vos instructions pour pouvoir continuer. Merci encore. Bonne journée fabienne
12.04.2024 - 10:15DROPS Design answered:
Bonjour Fabienne, il existe différentes façons de tricoter les mailles lisières, ici, elles sont tricotées au point mousse, autrement dit, tricotez la 1ère maille et la dernière maille à l'endroit sur l'endroit et à l'endroit sur l'envers. Vous allez augmenter dans A.1 comme indiqué dans le diagramme pour l'empiècement, autrement dit, au 1er rang, vous tricotez A.1 sur 4 mailles ainsi: (4 m end, 1 jeté), et vous avez donc augmenté 15 mailles au 1er rang de A.1. N'hésitez pas à mettre un marqueur entre chaque diagramme pour mieux vous aider à repérer/vérifier votre nombre de mailles. Bon tricot!
12.04.2024 - 12:51Fabienne wrote:
Bonne journee
12.04.2024 - 10:03Fabienne wrote:
Bonjour, je suis ennuyée au niveau du nombre de mailles après les côtes, il me reste 63 mailles comme indiqué dans le modèle, puis ensuite pour l'empiècement il est dit tricoter A.1 jusqu'à ce qu'il reste 2 mailles (= 12-13-14-15-17-18 motifs de 4 mailles. Si je fais 15 motifs de 4 mailles il me reste 1 maille en trop puisque 15X4=60 plus deux qui sont les mailles lisières. Il me reste donc 1 maille puisque j'en ai 63. que puis je faire ? merci pour votre aide . bonne journée
10.04.2024 - 11:10DROPS Design answered:
Bonjour Fabienne, tricotez ainsi: 1 m lisière, répétez 15 fois les 4 mailles de A.1 (= 15 x 4 = 60 mailles), tricotez la 1ère maille de A.1 (pour que le motif soit symétrique) et terminez par 1 m lisière, soit: 1+60+1+1= 63. Sur l'envers, tricotez 1 m lisière, tricotez la dernière maille du diagramme (en lisant de gauche à droite), répétez A.1 en lisant de gauche à droite et terminez par 1 m lisière. Bon tricot!
10.04.2024 - 13:47Rike wrote:
Vielen Dank für die Antwort, meine Maschenprobe ist tatsächlich 13x15 Maschen. Ich stricken sehr fest. Habe dickere Nadel versucht, aber trotzdem gleiche Maschenprobe. Kann ich einfach die Jacke in m oder L stricken um sie tragen zu können. Vielen Dank, für die schnelle Antwort
27.02.2024 - 11:54DROPS Design answered:
Liebe Rike, am besten bentuzen Sie grösseren Nadeln, um die richtige Maschenprobe bzw die richtigen Maßnahmen zu haben; sonnst sollen Sie die ganze Anleitung mit Ihrer eigenen Maschenprobe umrechnen. Viel Spaß beim stricken!
27.02.2024 - 13:35Rike wrote:
Hallo habe jetzt voller Stolz zum ersten Mal das Muster gestrickt und festgestellt, dass die Jacke einem Kind passt. Wo liegt der Fehler? Größe war s , meine normale Größe und die Maschenprobe stimmt auch. Fallen die Muster so klein aus und welche Größe soll ich jetzt stricken? Vielen Dank
26.02.2024 - 18:14DROPS Design answered:
Liebe Rike, stimmt Ihre Maschenprobe in der Breite sowie in der Höhe? dh 11 M x 15 Reihen glatt rechts sowie beim Musterstricken = 10 x 10 cm, auch beim stricken? So sollten Sie die selben Maßnahmen wie in der Skizze haben. Viel Spaß beim Stricken!
27.02.2024 - 08:06Paola wrote:
Scusate ,lo schema si ripete considerando l'ultima maglia ,sommandola alle prime?,per esempio al ferro 10: devo fare 3 beige e 2 bianche 1 beige ,2 bianche ,3 beige? Invece devo fare 2 beige ,2 bianche ,1 beige 2 bianche? Non riesco a far combaciare lo schema.grazie
05.02.2024 - 13:42DROPS Design answered:
Buonasera Paola, deve considerare la legenda, quindi partire con 2 maglie beige. Buon lavoro!
25.02.2024 - 22:08Werner wrote:
Wie mache ich das im Rapport 1 randmasche und dann mit Rapport beginnen und 3.Reihe 1randmasche ,1blau ,Umschlag und 11 Maschen und dann wie weiter.?zum nächsten Rapport? Werden da auch noch 1masche ,1umschlag und 11maschen?
30.10.2023 - 09:48DROPS Design answered:
Liebe Frau Werner, A.1 lesen Sie von unten nach oben und das Diagram wird über 4 Maschen wiederholt, bei der 1. Reihe stricken Sie z.B. (4 Maschen Jeansblau, 1 Umschlag), dann wiederholen Sie von (bis) und dann stricken Sie die 1. Masche A.1. Wenn A.1 fertig ist, sind es 12 Maschen in jedem A.1. Viel Spaß beim stricken!
30.10.2023 - 18:00Sommerfeld wrote:
Ich stricke in XXXL diese Jacke wieviel muss ich nach dem oberen Bündchen zunehmen und nach welcher Masche ich verstehe das nicht \r\nAbketten verstehe ich ja noch und dann wie muss ich zunehmen\r\nUnd im Rapport wie muss ich da zunehmen?
27.10.2023 - 11:16DROPS Design answered:
Liebe Frau Sommerfeld, hier wird es erklärt wie man regelmäßig verteilt abnimmt, in diesem Video zeigen wir, wie so eine Halsblende strickt. Für die Passe wird es im Diagram A.1 zugenommen (mit Umschläge - siehe letztes Symbol). Viel Spaß beim stricken!
28.10.2023 - 08:19Corrie Schild wrote:
Bij de meerderingen in de mouw 38 + 8 = 44, dit klopt uiteraard niet,. 6 steken meerderen?
10.10.2023 - 18:46