Mathilde skrifaði:
Hvilken størrelse er vesten på billedet strikket i? Er vesten en lille smule oversize, eller er det blot fordi, at den er strikket i en større størrelse på billedet?
08.11.2021 - 10:53DROPS Design svaraði:
Hej Mathilde. Modellen bär storlek S eller M. Det bästa är om du mäter ett plagg du har hemma och jämför med måttskissen för att få den passform som du tycker passar bäst för dig. Mvh DROPS Design
09.11.2021 - 13:22
Amalie skrifaði:
Hej. Jeg ønsker at strikke denne vest i ensfarvet, men DROPS delight findes kun med print. Hvilket garn kan jeg erstatte DROPS delight med? (gerne andet garn fra DROPS). På forhånd tak for hjælpen. Med venlig hilsen Amalie
08.11.2021 - 10:46DROPS Design svaraði:
Hei Amalie. DROPS Delight tilhører garngruppe A, så du kan velge et annet garn fra samme garngruppe, Se Garn og Garngruppe A-F. Bare husk å få samme strikkefasthet som det står i oppskriften. mvh DROPS Design
08.11.2021 - 14:49
Praturlon skrifaði:
Combien de pelotes de laine de chaque couleur faut-il pour réaliser le modèle 227 en taille L ? Merci.
27.10.2021 - 20:35DROPS Design svaraði:
Bonsoir, pour la taille L - Drops Delight 4 pelotes et Drops Brushed Alpaca Silk 5 pelotes. Bon tricot!
27.10.2021 - 21:26
Lucia skrifaði:
È possibile vedere un video sullo scollo a V? Grazie
25.10.2021 - 11:49DROPS Design svaraði:
Buonasera Lucia, non abbiamo un video sullo scollo a V in particolare ma se dovesse avere problemi nella realizzazione ci può scrivere. Buon lavoro!
04.11.2021 - 23:36
Sylvie skrifaði:
Modernisé et mis en valeur par la chemise blanche
04.08.2021 - 18:30
Sunset Poem#sunsetpoemvest |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónað vesti / slipover úr DROPS Delight og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað með V-hálsmáli, klauf í hlið og köntum í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 227-18 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. SKIPT UM ÞRÁÐ: Til að litaskiptin í Delight verði falleg þegar skipt er um dokku, er mikilvægt að finna dokku sem byrjar á þeim lit sem sú fyrri endaði á. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 99 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 32) = 3,03. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca aðra hverja og 3. hverja lykkju slétt saman. Lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur. ÚRTAKA-2: Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN HÁLSMÁLI ÞANNIG: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir á undan hálsmáli, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið sléttar lykkjur út umferðina eins og áður (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR HÁLSMÁLI ÞANNIG: Prjónið fyrstu 4 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, prjónið sléttar lykkjur út umferðina eins og áður (= 1 lykkja færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum. Kantur í handvegi og í hálsmáli er prjónað í hring á hringprjóna í lokin. Lesið SKIPT UM ÞRÁÐ. BAKSTYKKI: Fitjið upp 93-99-109-117-129-143 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði DROPS Delight og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1 (þetta er gert til að mynstrið byrji og endi alveg eins), 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stroffið mælist 12 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 30-32-36-38-42-48 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 63-67-73-79-87-95 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið nú sléttprjón með byrjun frá röngu og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2-3-3-4-6-6 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-0-0-0-1-1 sinni og 1 lykkju 1-1-2-3-2-5 sinnum = 57-59-63-65-67-69 lykkjur. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm. Fellið nú af miðju 23-23-25-25-27-27 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig (= 17-18-19-20-20-21 lykkjur eftir á hvorri öxl). Fækkið síðan lykkjum í hverri umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA-2, alls 2 sinnum = 15-16-17-18-18-19 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Prjónið hina öxlina alveg eins – byrjið á þeim stað í dokkunni sem er með líkasta litnum og gefur fallega litaskiptingu. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 31-33-34-36-37-39 cm (= 57-59-63-65-67-69 lykkjur). Prjónið nú þannig: Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið fyrstu 28-29-31-32-33-34 lykkjur, áður en þær eru settar á þráð (= hægri öxl), prjónið næstu lykkju og setjið á þráð (= miðjulykkja), prjónið yfir síðustu 28-29-31-32-33-34 lykkjur (= vinstri öxl). Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan lykkjum í hverri umferð frá réttu – munið eftir ÚRTAKA-2, alls 11-11-12-12-13-13 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 2 sinnum = 15-16-17-18-18-19 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina alveg eins – byrjið á þeim stað í dokkunni sem er með líkasta litnum og gefur fallega litaskiptingu. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma frá handvegi og niður að stroffi (= 12 cm klauf í hvorri hlið). KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu mitt að aftan með stuttum hringprjóni 5 og 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið upp ca 52 til 60 lykkjur niður að miðjulykkju á þræði (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2), setjið miðjulykkju á hringprjón og prjónið upp einni lykkju fleiri en á undan miðjulykkju (þ.e.a.s. ca 53 til 61 lykkjur) upp að miðju að aftan = ca 106 til 122 lykkjur. Passið uppá að lykkjurnar sem voru prjónaðar upp verði ekki of stífar/lausar í hálsi, prjónið e.t.v. upp fleiri eða færri lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju (þ.e.a.s. slétt lykkja af þræði mitt að framan). Prjónið A.1 (= 2 lykkjur) þar til 6 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju, prjónið A.2 yfir næstu 14 lykkjur, prjónið A.1 yfir þær lykkjur sem eftir eru. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar lykkjum fækkar í A.2, kemur slétta lykkjan mitt í V-hálsmáli á framstykki allan tímann að vera bein lína. Prjónið og fækkið lykkjum svona þar til kantur í hálsi mælist 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. KANTUR Í HANDVEGI: Byrjið frá réttu í hliðarsaumi með stuttum hringprjóni 5 og 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið upp ca 80 til 96 lykkjur í kringum handveg (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2). Prjónið A.1 hringinn í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir snúnar sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sunsetpoemvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.