DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6820.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Memories of Monaco

Prjónað vesti úr DROPS Air. Stykkið er prjónað með v-hálsmáli og köntum í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 227-42
DROPS Design: Mynstur ai-359
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-250-300-300-350-350 g litur 01, natur

DROPS TRÉTALA, Cederträ NR 512: 3-3-3-3-4-4 st.

PRJÓNAR:
DROPS PRJÓNAR NR 5.
DROPS PRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: Lengd 40 cm.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6820.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 107 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 105 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 31) = 3,4.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca aðra hverja og 3. hverja lykkju og 3. hverja og 4. hverja lykkju slétt saman. Lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur.

ÚRTAKA-2 (á við um handveg og v-hálsmál):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN Á UMFERÐ ÞANNIG:
1 kantlykkja í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG:
Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykki og framstykkin eru prjónuð fram og til baka í hlutum. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp fyrir kanta í ermum og kanta að framan.
Kantar á ermum eru prjónaðir í hring og kantar að framan eru prjónaðir fram og til baka í tveimur hlutum frá miðju aftan í hnakka.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 107-117-125-137-153-167 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 3 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til stykkið mælist 8 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 31-33-35-39-43-47 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 76-84-90-98-110-120 lykkjur.
Skiptið yfir á prjón nr 5. Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm, fellið af 4-4-5-5-6-7 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 68-76-80-88-98-106 lykkjur.
Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚRTAKA-2.
Haldið áfram fram og til baka og fækkið lykkjum fyrir handveg í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 0-2-2-3-6-6 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 6-6-6-8-8-10 sinnum = 56-60-64-66-70-74 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, fellið af miðju 26-26-26-28-28-28 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.

VINSTRI ÖXL (þegar stykkið er mátað):
Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli í byrjun umferðar – munið eftir ÚRTAKA-2 = 14-16-18-18-20-22 lykkjur eftir.
Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu.

HÆGRI ÖXL (þegar stykkið er mátað):
Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar – munið eftir ÚRTAKA-2 = 14-16-18-18-20-22 lykkjur eftir.
Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu.

HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar stykkið er mátað):
Fitjið upp 48-54-58-64-72-80 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 3 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjón, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir í umferð og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til stykkið mælist 8 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 13-15-16-18-20-23 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 35-39-42-46-52-57 lykkjur.
Skiptið yfir á prjón nr 5. Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm, fellið af fyrir handveg í hlið eins og útskýrt er að neðan. Jafnframt því sem lykkjur eru felldar af fyrir handveg er lykkjum einnig fækkað fyrir v-hálsmáli. Lestu kafla HANDVEGUR og V-HÁLSMÁL áður en þú prjónar áfram.

HANDVEGUR:
Fellið af 4-4-5-5-6-7 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá röngu = 31-35-37-41-46-50 lykkjur.
Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir handveg í lok umferðar – munið eftir ÚRTAKA-2.
Haldið áfram fram og til baka og fækkið lykkjum fyrir handveg í annarri hverri umferð (hver umferð frá réttu) alls 0-2-2-3-6-6 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 6-6-6-8-8-10 sinnum.

V-HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm, byrjar úrtaka fyrir v-hálsmál, þ.e.a.s. í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir v-hálsmáli í byrjun umferðar – munið eftir ÚRTAKA-2.
Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í 4. hverri umferð alls 1 sinni, í annarri hverri umferð alls 4 sinnum, í 4. hverri umferð alls 2 sinnum og að lokum í 6. hverri umferð alls 4-4-4-5-5-5 sinnum.

Eftir allar úrtökur fyrir handveg og v-hálsmáli eru 14-16-18-18-20-22 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu.

VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar stykkið er mátað):
Fitjið upp 48-54-58-64-72-80 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 3 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjón, prjónið A.2 þar til 1 lykkja er eftir í umferð og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til stykkið mælist 8 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 13-15-16-18-20-23 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 35-39-42-46-52-57 lykkjur.
Skiptið yfir á prjón nr 5. Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm, fellið af fyrir handveg í hlið eins og útskýrt er að neðan. Jafnframt því sem lykkjur eru felldar af fyrir handveg er lykkjum einnig fækkað fyrir v-hálsmáli. Lestu kafla HANDVEGUR og V-HÁLSMÁL áður en þú prjónar áfram.

HANDVEGUR:
Fellið af 4-4-5-5-6-7 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá réttu = 31-35-37-41-46-50 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir handveg í byrjun umferðar – munið eftir ÚRTAKA-2.
Haldið áfram fram og til baka og fækkið lykkjum fyrir handveg í annarri hverri umferð (hver umferð frá réttu) alls 0-2-2-3-6-6 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 6-6-6-8-8-10 sinnum.

V-HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm, byrjar úrtaka fyrir v-hálsmál, þ.e.a.s. í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir v-hálsmáli í lok umferðar – munið eftir ÚRTAKA-2.
Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í 4. hverri umferð alls 1 sinni, í annarri hverri umferð alls 4 sinnum, í 4. hverri umferð alls 2 sinnum og að lokum í 6. hverri umferð alls 4-4-4-5-5-5 sinnum.

Eftir alla úrtöku fyrir handveg og v-hálsmáli eru 14-16-18-18-20-22 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn.
Saumið hliðarsauma frá handveg og niður – saumið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Setjið 1 prjónamerki mitt aftan í hnakka – prjónamerkið er notað þegar prjóna á upp lykkjur fyrir kant að framan.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Notið hringprjón 3 og DROPS Air. Byrjið frá réttu neðst á hægra framstykki og prjónið upp ca 135-141-145-153-159-163 lykkjur innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni meðfram öllu framstykkinu og hálsmáli að prjónamerki mitt aftan í hnakka (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1 – stillið af að það verði ekki of margar eða of fáar lykkjur). Snúið og prjónið stroff þannig (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu): 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar kantur að framan mælist ca 2½ cm, fellið af fyrir 3-3-3-3-4-4 hnappagötum jafnt yfir. 1 HNAPPAGAT = fellið af 2 lykkjur aðeins stíft og fitjið upp 2 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af í næstu umferð. Neðsta hnappagatið er staðsett ca 8 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið er staðsett ca 1 cm fyrir neðan þar sem úrtaka fyrir v-hálsmáli byrjaði.
Prjónið áfram þar til kantur að framan mælist 5 cm. Fellið af frá réttu með snúna lykkju slétt yfir snúna lykkju slétt og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Notið hringprjón 3 og DROPS Air. Byrjið frá réttu neðst við prjónamerki mitt aftan í hnakka og prjónið upp jafn margar lykkjur og á hægri kanti að framan innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni meðfram hálsmáli að aftan og síðan niður meðfram öllu framstykkinu.
Snúið og prjónið stroff þannig (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu): 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til kantur að framan mælist 5 cm.
Fellið af frá réttu með snúna lykkju slétt yfir snúna lykkju slétt og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.

FRÁGANGUR:
Saumið saman kant mitt að aftan – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur.
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

KANTUR ERMI:
Notið hringprjón 3 og DROPS Air. Byrjið frá réttu neðst í öðrum handveginum og prjónið upp ca 118-122-126-130-134-138 lykkjur í kringum handveg innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2 – stillið af að það verða ekki of margar lykkjur eða of fáar lykkjur).
Prjónið A.1 hringinn þar til kantur á ermi mælist 4 cm. Fellið af með snúna lykkju slétt yfir snúna lykkju slétt og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING.
Prjónið hinn kant á ermi á sama hátt.

Mynstur

symbols = snúin lykkja slétt frá réttu, snúin lykkja brugðið frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-42

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Barbara Passo wrote:

Could I knit the entire neckband as one rather than having a seam in the middle?

10.11.2023 - 17:08

country flag Laura Hernandez wrote:

Hello! I am struggling with the invisible side seam when I get to the ribbed edges of the vest under the armholes. Is there any video or tutorial? Thanks!

16.04.2023 - 21:13

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hernandez, we show in this video how to make an invisible side seam. Happy assembly!

17.04.2023 - 10:02

country flag Villemin wrote:

Modèle. 227 / 42 Après avoir monté et tricoté la bande de cotes, vous demandez de diminuer pour passer en jersey: pourquoi cette diminution ?

07.02.2023 - 18:08

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Villemin, nous souhaitons conserver la bonne largeur, or, pour la même largeur, il faut plus de mailles pour tricoter en côtes avec les aiguilles 3 qu'en jersey avec les aiguilles 5, on va donc diminuer avant de tricoter le jersey et on conserve ainsi la largeur souhaitée. Bon tricot!

08.02.2023 - 08:49

country flag Niki wrote:

A szamok nagyon nem stimmelnek. Ha M meretnel vegigcsinalom a leirtam szerint a vallra 8-8 szem marad a vegere. Az elejet 54 szemmel irja, de 54 szemmel nem lesz belole bordasminta mivel paros. Most lebontom, mert igy nem jo, kerlek segitsetek!

06.01.2023 - 07:51

country flag Anaïs B wrote:

Je ne comprend pas les diminutions des emmanchures et encolure. Quand est qu'on passe au diminution tout les 4 rangs ou tous les 6 rangs?

20.08.2022 - 16:18

DROPS Design answered:

Bonjour Anaïs, les diminutions de l'emmanchure et de l'encolure se font de la même façon mais à un rythme différent, pour les emmanchures: diminuez 0 à 6 x tous les 2 rangs + 6 à 10 x tous les 4 rangs (cf taille); pour 'encolure, diminuez la 1ère fois à 24-29 cm, puis tricotez 3 rangs sans diminuer pour l'encolure et ensuite diminuez 4 x tous les 2 rangs, 2 x tous les 4 rangs et 4-5 x tous les 6 rangs. Bon tricot!

22.08.2022 - 09:48

country flag Lone Engen wrote:

Kære DROPS Design. Jeg har nu strikket denne vest i str. L - den passer perfekt, og den er virkelig flot! Blot har jeg alt for meget garn tilbage. Jeg købte de 300 g, som opskriften sagde, men jeg har et helt nøgle + 40 g i overskud. Det er lidt træls :-(

17.01.2022 - 21:48

country flag Lone Engen wrote:

Jeg vil gerne strikke denne model på rundpind og så først dele ved ærmegabet. Jeg vil derfor gerne høre, om der er en god grund til ikke at gøre det?? På forhånd tak og venlig hilsen Lone

03.12.2021 - 11:46

DROPS Design answered:

Hej Lone, jo men det kan du godt gøre - god fornøjelse! :)

03.12.2021 - 15:26

country flag Karen Gejl Petersen wrote:

Kan i ikke prøve at forklare disse to linjer på dansk. symbols = vriden rätmaska från rätsidan, vriden avigmaska från avigsidan symbols = avigmaska från rätsidan, rätmaska från avigsidan

17.10.2021 - 19:24

DROPS Design answered:

Hej Karen. Beklagar det, nu är de översatta till dansk i opskriften. Mvh DROPS Design

18.10.2021 - 12:12

country flag Sophie wrote:

Vid avmaskningstips ärmhål, ska det vara två RÄTstickade maskor innanför kantmaska, el två slätstickade?

05.09.2021 - 14:33

DROPS Design answered:

Hej Sophie. Det ska vara slätstickade maskor. Mvh DROPS Design

07.09.2021 - 09:23

country flag Rose wrote:

Love the style and yarn. Really really hope it makes the cut. Love it.

08.08.2021 - 18:37