Britt-Marie Alexandersson skrifaði:
Jag undrar om man stickar hela västen med två trådar eller är det endast muddar och krage med två trådar?
10.11.2021 - 15:56DROPS Design svaraði:
Hej Britt-Marie, du strikker hele vesten i to tråde :)
11.11.2021 - 11:44
Paula Poikela skrifaði:
Helle, Is this Autum Dusk 227/17 in finnish language.
31.10.2021 - 14:59DROPS Design svaraði:
Dear Paula, this pattern is from the new collection, so some patterns may take some time in being translated to other languages. This pattern should be in Suomi (Finnish) soon, you may check it at a later date.
31.10.2021 - 19:53
Ann Barrow skrifaði:
What two colours were used to achieve this design
28.10.2021 - 18:28DROPS Design svaraði:
Hi Ann, Drops Delight colour 18, autumn forest and Drops Brushed Alpaca Silk colour 03, grey. Happy knitting!
28.10.2021 - 18:38
Turid Eide skrifaði:
Hei! Håper denne kommer snart nå, har ventet i snart 1 mnd på denne :-) HIlsen Turid
07.10.2021 - 11:09
Carina Andersson skrifaði:
Vilka garner är det i modellen och hur mycket går det åt i storlek XL ?
02.09.2021 - 20:11
Autumn Dusk#autumnduskvest |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónað vesti / slipover úr DROPS Delight og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað með háum kanti í hálsmáli, klauf í hlið og köntum í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 227-17 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. SKIPT UM ÞRÁÐ: Til að litaskiptin í Delight verði falleg þegar skipt er um dokku, er mikilvægt að finna dokku sem byrjar á þeim lit sem sú fyrri endaði á. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 99 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 32) = 3,03. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca aðra hverja og 3. hverja lykkju slétt saman. Lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur. ÚRTAKA-2: Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN HÁLSMÁLI ÞANNIG: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir á undan hálsmáli, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið sléttar lykkjur út umferðina eins og áður (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR HÁLSMÁLI ÞANNIG: Prjónið fyrstu 4 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, prjónið sléttar lykkjur út umferðina eins og áður (= 1 lykkja færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum. Kantur í handvegi og í hálsmáli er prjónað í hring á hringprjóna í lokin. Lesið SKIPT UM ÞRÁÐ. BAKSTYKKI: Fitjið upp 93-99-109-117-129-143 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði DROPS Delight og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1 (þetta er gert til að mynstrið byrji og endi alveg eins), 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stroffið mælist 12 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 30-32-36-38-42-48 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 63-67-73-79-87-95 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið nú sléttprjón með byrjun frá röngu og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2-3-3-4-6-6 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-0-0-0-1-1 sinni og 1 lykkju 1-1-2-3-2-5 sinnum = 57-59-63-65-67-69 lykkjur. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm. Fellið nú af miðju 23-23-25-25-27-27 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig (= 17-18-19-20-20-21 lykkjur eftir á hvorri öxl). Fækkið síðan lykkjum í hverri umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA-2, alls 2 sinnum = 15-16-17-18-18-19 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt – byrjið á þeim stað í dokkunni sem er með líkasta litnum og gefur fallega litaskiptingu. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 44-46-47-49-50-52 cm (= 57-59-63-65-67-69 lykkjur). Setjið nú miðju 17 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig (= 20-21-23-24-25-26 lykkjur eftir á hvorri öxl). Fækkið síðan lykkjum í hverri umferð frá réttu – munið eftir ÚRTAKA-2, alls 5-5-6-6-7-7 sinnum = 15-16-17-18-18-19 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Prjónið hina öxlina alveg eins – byrjið á þeim stað í dokkunni sem er með líkasta litnum og gefur fallega litaskiptingu. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma frá handvegi og niður að stroffi (= 12 cm klauf í hvorri hlið). KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu við annan axlasauminn með stuttum hringprjóni 5 og 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið upp ca 84 til 96 lykkjur í kringum hálsinn (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2). Prjónið A.1 hringinn í 10 cm. Nú er aukin út 1 lykkja í hverri brugðinni einingu, þ.e.a.s. stroffið er prjónað áfram með 1 lykkju snúin slétt og 2 lykkjur brugðið. Prjónið þar til stroffið mælist 12 cm. Síðar á að brjóta uppá kantinn saman tvöfaldan og við frágang þá verður kanturinn í hálsmáli ca 6 cm. Fellið af, en passið uppá að affellingarkanturinn dragist ekki saman – sjá AFFELLING. KANTUR Í HANDVEGI: Byrjið frá réttu í hliðarsaumi með stuttum hringprjóni 5 og 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið upp ca 80 til 96 lykkjur í kringum handveg (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2). Prjónið A.1 hringinn í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir snúnar sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsi að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsi. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #autumnduskvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.