DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
DROPS SS24

Sunset Poem

Prjónað vesti / slipover úr DROPS Delight og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað með V-hálsmáli, klauf í hlið og köntum í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 227-18
DROPS Design: Mynstur de-227
Garnflokkur A + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-200-200-200-250-250 g litur 18, haustskógur
Og notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100-100-125-125-150-150 g litur 03, grár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 7: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
13 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni með 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

SKIPT UM ÞRÁÐ:
Til að litaskiptin í Delight verði falleg þegar skipt er um dokku, er mikilvægt að finna dokku sem byrjar á þeim lit sem sú fyrri endaði á.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 99 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 32) = 3,03.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca aðra hverja og 3. hverja lykkju slétt saman.
Lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur.

ÚRTAKA-2:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN HÁLSMÁLI ÞANNIG: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir á undan hálsmáli, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið sléttar lykkjur út umferðina eins og áður (= 1 lykkja færri).
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR HÁLSMÁLI ÞANNIG: Prjónið fyrstu 4 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, prjónið sléttar lykkjur út umferðina eins og áður (= 1 lykkja færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum. Kantur í handvegi og í hálsmáli er prjónað í hring á hringprjóna í lokin. Lesið SKIPT UM ÞRÁÐ.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 93-99-109-117-129-143 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði DROPS Delight og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1 (þetta er gert til að mynstrið byrji og endi alveg eins), 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stroffið mælist 12 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 30-32-36-38-42-48 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 63-67-73-79-87-95 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 7.
Prjónið nú sléttprjón með byrjun frá röngu og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2-3-3-4-6-6 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-0-0-0-1-1 sinni og 1 lykkju 1-1-2-3-2-5 sinnum = 57-59-63-65-67-69 lykkjur.
Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm. Fellið nú af miðju 23-23-25-25-27-27 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig (= 17-18-19-20-20-21 lykkjur eftir á hvorri öxl).
Fækkið síðan lykkjum í hverri umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA-2, alls 2 sinnum = 15-16-17-18-18-19 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Prjónið hina öxlina alveg eins – byrjið á þeim stað í dokkunni sem er með líkasta litnum og gefur fallega litaskiptingu.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 31-33-34-36-37-39 cm (= 57-59-63-65-67-69 lykkjur). Prjónið nú þannig:
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið fyrstu 28-29-31-32-33-34 lykkjur, áður en þær eru settar á þráð (= hægri öxl), prjónið næstu lykkju og setjið á þráð (= miðjulykkja), prjónið yfir síðustu 28-29-31-32-33-34 lykkjur (= vinstri öxl). Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Fækkið síðan lykkjum í hverri umferð frá réttu – munið eftir ÚRTAKA-2, alls 11-11-12-12-13-13 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 2 sinnum = 15-16-17-18-18-19 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af.
Prjónið hina öxlina alveg eins – byrjið á þeim stað í dokkunni sem er með líkasta litnum og gefur fallega litaskiptingu.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma frá handvegi og niður að stroffi (= 12 cm klauf í hvorri hlið).

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu mitt að aftan með stuttum hringprjóni 5 og 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið upp ca 52 til 60 lykkjur niður að miðjulykkju á þræði (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2), setjið miðjulykkju á hringprjón og prjónið upp einni lykkju fleiri en á undan miðjulykkju (þ.e.a.s. ca 53 til 61 lykkjur) upp að miðju að aftan = ca 106 til 122 lykkjur.
Passið uppá að lykkjurnar sem voru prjónaðar upp verði ekki of stífar/lausar í hálsi, prjónið e.t.v. upp fleiri eða færri lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju (þ.e.a.s. slétt lykkja af þræði mitt að framan).
Prjónið A.1 (= 2 lykkjur) þar til 6 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju, prjónið A.2 yfir næstu 14 lykkjur, prjónið A.1 yfir þær lykkjur sem eftir eru.
Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar lykkjum fækkar í A.2, kemur slétta lykkjan mitt í V-hálsmáli á framstykki allan tímann að vera bein lína.
Prjónið og fækkið lykkjum svona þar til kantur í hálsi mælist 5 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.

KANTUR Í HANDVEGI:
Byrjið frá réttu í hliðarsaumi með stuttum hringprjóni 5 og 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið upp ca 80 til 96 lykkjur í kringum handveg (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2). Prjónið A.1 hringinn í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir snúnar sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt.

Mynstur

symbols = snúin slétt lykkja frá réttu, snúin brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = slétt lykkja
symbols = lyftið næstu 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð slétt (= 2 lykkjur færri)
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Sunset Poem

Anja, Belgium

Sunset Poem

Aleksandra, Norway

Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Karolina wrote:

Witam. Jaka włóczka będzie podobna do Drops Delight? Chodzi mi o grubość. Dziękuję.

23.04.2024 - 13:26

DROPS Design answered:

Witaj Karolino, Alpaca, Baby Merino lub Nord. Pozdrawiamy!

23.04.2024 - 14:18

country flag Kinga wrote:

Dzień dobry. Jaką włóczką mogę zastąpić DROPS Delight w tym wzorze? Tak, aby DROPS Delight plus DROPS Brushed Alpaca Silk dały mi próbkę 13o. na 15rz. Ewentualnie proszę o wskazanie innej włóczki, która będzie pasowała do tego wzoru - jeden rodzaj. Dziękuję i pozdrawiam :)

26.02.2024 - 09:23

DROPS Design answered:

Witaj Kingo, by uzyskać taki cieniowany efekt, jedyną alternatywną jest DROPS Fabel. Połącz go z DROPS Brushed Alpaca Silk i dopasuj rozmiar drutów, aby mieć taką samą próbkę jak we wzorze. Pamiętaj, że użycie innej włóczki, czyli o innej strukturze, wyglądzie, składzie, nawet jeśli należy do tej samej grupy włóczek oznacza, że gotowy produkt również będzie się nieco różnił od oryginału. Pozdrawiamy!

26.02.2024 - 10:08

country flag Giulia wrote:

Bonjour, j'ai du mal à comprendre le diagrame A1. N'est ce pas simplement 12 cm en côtes 1/1? Merci d'avance

10.04.2023 - 21:06

DROPS Design answered:

Bonjour Giulia, pas exactement, les mailles endroit doivent être tricotées torse à l'endroit sur l'endroit et torse à l'envers sur l'envers, autrement dit, vous allez tricoter (vu sur l'endroit): 1 m torse à l'end, 1 m envers. Bon tricot!

11.04.2023 - 14:19

country flag Jasmine Lepage wrote:

Je fais du medium combien de laine chacune je dois acheter

20.02.2022 - 14:45

DROPS Design answered:

Bonjour Jasmine, pour la taille M il faut: 200 g de DROPS DELIGHT (4 pelotes) et 100 g de DROPS BRUSHED ALPACA SILK (4 pelotes). Bon tricot!

20.02.2022 - 18:14

country flag Federica wrote:

Buongiorno, mi piacerebbe realizzare questo modello ma sui toni del blu: sarebbe appropriato associare Dropd Delight 04 "blu chiaro" con DROPS Brushed Alpaca Silk 13 "blu denim"? Grazie per le indicazioni che potrete darmi.

24.01.2022 - 09:33

DROPS Design answered:

Buonasera Federica, quello indicato può essere un buon abbinamento. Se preferisce, può chiedere consiglio al suo rivenditore DROPS che le può inviare delle foto di abbinamenti. Buon lavoro!

24.01.2022 - 22:40

country flag Inga-Greta Wennberg wrote:

Hur mycket garn behöver jag till stl 40 slipover? Vilket garn ska jag ta då jag är rädd att det kliar. Jag gillar höstfärgen på bilden. Behöver stickor oxå

02.01.2022 - 22:14

country flag Simone wrote:

Når der skal tages ind på forstykket, skal der så tages ind tættest ved halskanten eller tættest ved ærmegabet?

09.12.2021 - 13:06

DROPS Design answered:

Hej Simone, du lukker af til ærmegab som på bagstykket og så tager du ind til V-hals mod midt foran som står beskrevet under forstykket. God fornøjelse!

09.12.2021 - 15:16

country flag Mathilde wrote:

Hvilken størrelse er vesten på billedet strikket i? Er vesten en lille smule oversize, eller er det blot fordi, at den er strikket i en større størrelse på billedet?

08.11.2021 - 10:53

DROPS Design answered:

Hej Mathilde. Modellen bär storlek S eller M. Det bästa är om du mäter ett plagg du har hemma och jämför med måttskissen för att få den passform som du tycker passar bäst för dig. Mvh DROPS Design

09.11.2021 - 13:22

country flag Amalie wrote:

Hej. Jeg ønsker at strikke denne vest i ensfarvet, men DROPS delight findes kun med print. Hvilket garn kan jeg erstatte DROPS delight med? (gerne andet garn fra DROPS). På forhånd tak for hjælpen. Med venlig hilsen Amalie

08.11.2021 - 10:46

DROPS Design answered:

Hei Amalie. DROPS Delight tilhører garngruppe A, så du kan velge et annet garn fra samme garngruppe, Se Garn og Garngruppe A-F. Bare husk å få samme strikkefasthet som det står i oppskriften. mvh DROPS Design

08.11.2021 - 14:49

country flag Praturlon wrote:

Combien de pelotes de laine de chaque couleur faut-il pour réaliser le modèle 227 en taille L ? Merci.

27.10.2021 - 20:35

DROPS Design answered:

Bonsoir, pour la taille L - Drops Delight 4 pelotes et Drops Brushed Alpaca Silk 5 pelotes. Bon tricot!

27.10.2021 - 21:26