Karen Granados skrifaði:
Hola me pueden explicar la parte del canesu, donde se trabaja con el diagrama A1, no entiendo que quiere decir trabajar el punto 16 para mi talla, con 9 repeticiones Gracias.
18.01.2022 - 17:27DROPS Design svaraði:
Hola Karen, para la Talla M, tienes que repetir A.1 (= 9 puntos) 16 veces a lo largo de la vuelta.
23.01.2022 - 19:54
Katherine skrifaði:
Hi, how can I know the exact measures for each size? is there a charf for reference? I need sizes for United States and Canada, please
30.12.2021 - 15:08DROPS Design svaraði:
Hi Katherine, you will find the schematic drawing for each garment below the patterns. It will have all the measurement for each size we have in this pattern. If you follow the pattern and keep the tension/gauge the garment will have the same size as the schematic drawing. Please also see HERE. Happy knitting!
30.12.2021 - 19:01
Cathy skrifaði:
Bonjour, je ne vois nul part les mesures pour savoir à quoi correspondent les tailles XS S M L XL XXL? Merci de votre réponse.
14.12.2021 - 20:16DROPS Design svaraði:
Bonjour Cathy, vous trouverez les mesures finales pour chaque taille dans le schéma en bas de page. Mesurez un pull similaire que vous avez et dont vous aimez la forme et comparez ces mesures à celles du schéma, c'est la méthode la plus simple pour trouver votre taille. Retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!
15.12.2021 - 07:57
Olga Leonor Morales skrifaði:
Hola, como obtengo un patrón de uds, soy de Buenos Aires, Argentina. Muchas gracias 🙂
06.12.2021 - 01:42DROPS Design svaraði:
Hola Olga, todos los patrones están disponibles de forma gratuita en nuestro sitio web. Cordiales saludos!
06.12.2021 - 08:46
Andrée PERNEY GUIGNARD skrifaði:
Bonjour, Comment faire les jetés dans les sections mailles envers ? Comment procéder pour tricoter les jetés torses? Merci pour votre réponse.
05.12.2021 - 15:50DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Perney Guignard, cette vidéo montre comment faire un jeté dans des mailles envers - au tour suivant, tricotez ce jeté torse = en piquant le brin arrière au lieu du brin avant (cette autre vidéo montre comment tricoter une maille torse à l'envers. En espérant que ceci puisse vous aider. Bon tricot!
06.12.2021 - 08:36
Lisbeth skrifaði:
Sorbet
10.08.2021 - 13:48
Juni Rawati skrifaði:
Mosaic
07.08.2021 - 06:19
Frosted Cranberries Sweater#frostedcranberriessweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og köntum í stroffprjóni. Stærð XS - XXL.
DROPS 228-27 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 120 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 20. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 20. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-92-100-100-104-108 lykkjur á hringprjón 4 með einum þræði í hvorum lit í DROPS Alpaca (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið þar til stroffið mælist 4 cm. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Aukið út um 1 lykkju í öllum brugðnu einingum, aukið út með því að slá einu sinni uppá prjóninn í byrjun á öllum brugðnu einingum = 100-115-125-125-130-135 lykkjur. Haldið áfram með stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið), uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í fyrstu umferð. Þegar stykkið mælist 3 cm frá prjónamerki aukið út um 1 lykkju í öllum brugðnu einingum, aukið út með því að slá einu sinni uppá prjóninn í lok allra brugðna eininga = 120-138-150-150-156-162 lykkjur. Haldið áfram með stroff (= 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið), uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í fyrstu umferð. Haldið áfram þar til stykkið mælist 5-5-5-6-6-6 cm frá prjónamerki að framan. Stroffið mælist 9-9-9-10-10-10 cm frá uppfitjunarkanti. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-3-2-4-6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 126-144-153-152-160-168 lykkjur. Nú er prjónuð mynstureining A.1 yfir allar lykkjur (= 14-16-17-19-20-21 mynstureiningar með 9-9-9-8-8-8 lykkjur). ATH! Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, eru 224-256-272-304-320-336 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-4-0-0-4-8 lykkjur jafnt yfir = 232-260-272-304-324-344 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist ca 20-22-23-25-27-29 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 34-39-40-44-49-53 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 68-78-80-88-98-106 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 34-39-40-44-49-53 lykkjur sem eftir eru slétt (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 148-168-176-192-216-236 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni og með 1 þræði í hvorum lit. Prjónið þar til stykkið mælist 23 cm í öllum stærðum. Nú eru ca 12 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú á að auka út lykkjum til að stroffið sem á að prjóna, dragi ekki stykkið saman. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 32-32-36-40-44-48 lykkjur jafnt yfir = 180-200-212-232-260-284 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn. Prjónið stroff í 12 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 48-52-56-64-64-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón með 1 þræði í hvorum lit hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 8-5-3-2½-2-2 cm millibili alls 4-5-7-10-10-11 sinnum = 46-48-50-52-54-56 lykkjur. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 30-28-28-27-26-24 cm frá skiptingu (það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Nú eru eftir ca 12 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út um 6-4-6-4-6-4 lykkjur jafnt yfir = 52-52-56-56-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 12 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 42-40-40-39-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frostedcranberriessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.