Julie Broch Fiskaa skrifaði:
Ut i fra bildet skal det strikkes flere omganger glattstrikk før de første boblene dukker opp. Ut i fra diagram A1 ser det derimot ut som om boblene skal komme på første omgang, rett etter vrangborden.. Skjønner det ikke.
07.10.2022 - 11:22DROPS Design svaraði:
Hej Julie, de første sorte markeringer du ser i diagrammet er udtagninger, boblerne kommer først der hvor du ser en firkant midt i hulmønsteret (du starter nederst i diagrammet) :)
07.10.2022 - 11:29
Grau skrifaði:
Hallo bei dem diagram heisst es in der anleitung stricken A1= 6 Maschen nach den Zunahmen besteht das Diagram dann aus Mehrmaschen (nach 8 runden 9 Maschen) werden die Maschen so gestrickt wie sie in A1 stehen oder sind diese dann nur am Anfang der Runde und am Ende der Runde zu stricken und in der Mitte immer die 6 Maschen von A1
12.10.2021 - 14:45DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Grau, also die 6 Maschen sind nur bei der 1. Reihe in A.1, Sie sollen zunehmen, wie im Diagram gezeigt, bei der 8. Reihe sollen Sie 10 Maschen in jedem A.1 haben (es gab 1 Umschlag je bei der 1., 3., 5. und 7. Reihe in A.1), nach A.1 gestrickt wird, haben Sie 17 oder 18 M je nach der Größe in jedem A.1. Viel Spaß beim stricken!
12.10.2021 - 15:56
Dea skrifaði:
Buonasera,perchè nell'occorrente si parla di bottoni? Non è un maglione?
20.09.2021 - 18:58DROPS Design svaraði:
Buonasera Dea, abbiamo corretto i materiali: grazie per la segnalazione. Buon lavoro!
20.09.2021 - 22:11
Sara Rodrigues skrifaði:
Que maravilha,que fofura de camisola!
24.08.2021 - 19:37
Sara Rodrigues skrifaði:
Que maravilha que fofura,adoro!!!
24.08.2021 - 19:36
Chantal Lamborelle skrifaði:
Magie Il me rappelle la magie de Noël.
04.08.2021 - 07:59
Iceberg Road#icebergroadsweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Wish. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri og kúlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 228-19 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 20) = 5,2. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 5. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi ca 4. og 5. hver lykkja slétt saman. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 54-60-60-66-66-72 lykkjur á hringprjón 7 með DROPS Wish. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið stroff svona í 12 cm. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 8. Setjið 1 prjónamerki svona um það bil mitt í umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið A.1 yfir allar lykkjur (= 9-10-10-11-11-12 mynstureiningar með 6 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, mælist stykkið ca 21-21-21-25-25-25 cm frá prjónamerki og það eru 153-170-170-198-198-216 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 21-23-24-26-28-30 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 152-168-184-192-212-228 lykkjur – sjá ÚTAUKNING! Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 23-26-28-30-33-36 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 30-32-36-36-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 46-52-56-60-66-72 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 30-32-36-36-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 23-26-28-30-33-36 lykkjur (= hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 104-116-124-136-148-160 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 25-25-26-26-26-26 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú á að auka út lykkjur til að koma í veg fyrir að stroffið sem prjóna á dragi ekki stykkið saman. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-22-24-26-30-30 lykkjur jafnt yfir = 124-138-148-162-178-190 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið). Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 30-32-36-36-40-42 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 36-38-42-44-48-50 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 3-3-3-4-4-4 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 14-12-7-7-5-5 cm millibili alls 3-3-4-4-5-5 sinnum = 30-32-34-36-38-40 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 34-31-31-29-28-26 cm frá skiptingu – eða að óskuðu máli (nú eru eftir ca 6 cm að loka máli). Aukið út 8 lykkjur jafnt yfir = 38-40-42-44-46-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 7. Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist alls ca 40-37-37-35-34-32 cm frá skiptingu og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #icebergroadsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.