Antje skrifaði:
Die Wolle hat gereicht und der Pullover ist toll geworden. : ))
26.09.2021 - 21:50
Antje skrifaði:
Die Zentimeterangaben für das Rumpfteil stimmen nicht. Bei der Größe XXL hat man in der Länge 27 cm für die Passe plus 25 cm bis zum Bündchen, plus 8 cm Bündchen = 60 cm Länge ab der Schulter und nicht, wie angegeben, 64 cm. Jetzt hoffe ich also darauf, dass die Garnmenge großzügig berechnet wurde. Das Garn ist wunderschön!!!
24.09.2021 - 13:33DROPS Design svaraði:
Liebe Antje, so stimmt es aber: 27 cm Passe sind nach dem Bündchen/Kragen gemessen, dazu kommen 4 cm Schulter - siehe Maßskizze + (25 cm +8 cm )Rumpfteil sind ingesamt 64 cm ab Schulter bis Abkettenrand. Viel Spaß beim stricken!
27.09.2021 - 09:06
Monniek skrifaði:
Er staat een foutje in het patroon: De halsboord wordt niet gebreid met 2 recht, 2 averecht, maar met 1 recht, 1 averecht. Kijk maar op de foto!
20.09.2021 - 21:58
Vibeke skrifaði:
Hei. Ønsker å bruke Alpaca bouclê sammen med Brushed alpaca silk til denne. Hvor mye garn går det av hver, når jeg skal erstatte 500 g wish ?
20.09.2021 - 10:22DROPS Design svaraði:
Hei Vibeke. Om det brukes 500 gram til denne genseren i Wish er det 10 nøster x 70 meter = 700 meter garn. Da trenger du 250 gram Alpaca Bouclê (250 gram = 5 nøster på 140 meter = 700 meter) + 125 gram Brushed Alpaca Silk (125 gram = 5 nøster på også 140 meter = 170 meter). mvh DROPS design
20.09.2021 - 14:36
Carmen Maria Garcia Diaz skrifaði:
Me encanta, es informal
24.08.2021 - 12:56
Tanja Balling Sørensen skrifaði:
Cosy by the fire.
14.08.2021 - 15:52
Lucy Lou skrifaði:
J'adore ce modèle, il sera agréable à porter avec les hivers canadiens!
09.08.2021 - 01:31
Mona-Lill Hanssen skrifaði:
Vinterild
05.08.2021 - 11:46
Kristin Klopp skrifaði:
Denne MÅ komme med i kolleksjonen
04.08.2021 - 08:10
Cornelia Achenbach skrifaði:
Schlicht, aber ich kann es auf der Strickmaschine stricken
03.08.2021 - 18:52
Almond Breeze#almondbreezesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Wish. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 227-33 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 60 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 10. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir 10. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi 9. og 10. hver lykkja slétt saman. LASKALÍNA: Aukið út um 2 lykkjur við hvert prjónamerki þannig: Prjónið að lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið svona út við hvert prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. í byrjun á umferð er aukið út með 1 uppslætti á eftir fyrstu lykkju og í lok umferðar er aukið út með 1 uppslætti á eftir síðustu lykkju í umferð. Þ.e.a.s. lykkja með 1. prjónamerki stendur eftir sem fyrsta lykkjan í umferð. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 58-60-64-68-72-76 lykkjur á stuttan hringprjón 8 með DROPS Wish. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 7 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 14 cm. Skiptið yfir á hringprjón 8 og prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 6-6-8-8-10-10 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 52-54-56-60-62-66 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, stykkið er nú mælt héðan. BERUSTYKKI: Setjið 4 prjónamerki í næstu umferð (án þess að prjóna lykkjurnar) þannig: Setjið 1 prjónamerki í 1. lykkju í byrjun á umferð (= í skiptinguna á milli ermi og bakstykkis), teljið 16-17-18-20-21-23 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 8 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 16-17-18-20-21-23 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, nú eru 8 lykkjur í umferð (= ermi). Stykkið er prjónað í sléttprjóni og aukið er út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 15-16-17-18-20-21 sinnum = 172-182-192-204-222-234 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Stykkið mælist ca 19-21-22-23-26-27 cm frá prjónamerki. Prjónið sléttprjón án útaukninga þar til stykkið mælist 21-23-24-26-27-29 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 48-51-54-58-65-69 lykkjur slétt, setjið næstu 38-40-42-44-46-48 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 4-4-4-6-6-8 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið 48-51-54-58-65-69 lykkjur, setjið næstu 38-40-42-42-46-48 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 4-4-4-6-6-8 nýjar lykkjur undir ermi. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 104-110-116-128-142-154 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 23-23-24-24-25-25 cm frá skiptingu, prjónið nú 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-22-24-24-28-28 lykkjur jafnt yfir = 124-132-140-152-170-182 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl. ERMI: Setjið 38-40-42-44-46-48 lykkjur frá þræði í annarri hliðinni á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 8 og prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja af 4-4-4-6-6-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 42-44-46-50-52-56 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 4-4-4-6-6-8 lykkjur og byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 6½-5-5-4-3½- 3 cm millibili alls 6-7-7-8-9-10 sinnum = 30-30-32-34-34-36 lykkjur. Þegar ermin mælist 41-39-39-37-37-35 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd (nú eru ca 7 cm að loka máli) og prjónið að óskaðri lengd. Skiptið yfir á sokkaprjóna 7 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 7 cm. Ermin mælist ca 48-46-46-44-44-42 cm frá skiptingu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið niður kant í hálsmáli, þannig að hann verði tvöfaldur, annað hvort frá réttu eða frá röngu á stykki. Ef kanturinn er saumaður inn að röngu, saumið þannig: Saumið stroffið þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi ekki stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #almondbreezesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.