Lucinda David skrifaði:
Si je le tricote avec de la laine snow, faut-il que je prenne une autre taille d'aiguilles?
01.12.2024 - 17:48DROPS Design svaraði:
Bonjour Lucinda, vous devez faire un echantillon et verifier si les aiguilles sont correctes. Votre echantillon devrait etre conforme a celui dans le modele. Ne pas oublier que la taille des aiguilles est uniquement une suggestion. Si vous avez trop de mailles pour 10 cm, essayez avec des aiguilles plus grosses. Si vous n'avez pas assez de mailles pour 10 cm, essayez avec des aiguilles plus fines. Bon tricot!
02.12.2024 - 09:44
Francesca skrifaði:
Pour les manches vous indiquez qu'elle sont tricotées de haut en bas, et ensuite les explications sot pour des manches tricotées de bas en haut (du poignet vers l'emmanchure). Sinon, très joli modèlre, très vite tricoté, j'ai doublé le col avec de la laine mohair et soie, pour que ce soit très doux au cou, et je le fais rabattable, fendu sur la hauteru rabattue, et deux jolis boutons.
17.02.2022 - 16:01DROPS Design svaraði:
Bonjour Francesca, c'était une erreur, merci, la correction a été faite. Elles se tricotent bien de bas en haut. N'hésitez pas à partager vos photos pour la galerie #dropsfan. Bonne continuation!
17.02.2022 - 16:25
Vanderbeken skrifaði:
Bonjour\r\nJe suis toujours aussi heureuse de consulter vos modèles .\r\nJ ai cependant énormément de difficultés à travailler avec des aiguilles circulaires ( pbms) . \r\nPourriez vous , si c est possible bien entendu, donner les explications avec des aiguilles classiques . J en serais ravie.\r\nJe vous remercie d\\\'avance \r\nBien cordialement et encore MERCI!\r\ncvdbk
10.11.2021 - 21:52DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Vanderbeken, vous pouvez souvent aisément adapter sur aiguilles droites, le dos et le devant se tricotent ici en allers et retours pour juste avoir plus de place pour y loger toutes les mailles, pour les manches - notamment - découvrez dans cette leçon comment adapter sur aiguilles droites. Bon tricot!
11.11.2021 - 09:13
Helga Reisenwebber skrifaði:
Fogata
24.08.2021 - 23:30
Birgitta skrifaði:
Snyggt mönster som tilltalar många
05.08.2021 - 17:08
DOYEN Marie-Line skrifaði:
Très joli plastron sur ce pull en grosse laine ! joli ton automnal
03.08.2021 - 23:01
Marguerite skrifaði:
Pour ce modèle, je préfère un vrai col rouler montant
03.08.2021 - 18:24
Patricia Thibert skrifaði:
Couleur lumineuse à l'entrée de l'automne
03.08.2021 - 17:15
Fall Waves#fallwavessweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Wish. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri, litlum köðlum og háum kraga í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 228-43 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, aukið út með því að slá einu sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (= frá röngu) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru síðan prjónaðar í sléttprjóni. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 59 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 7) = 8,1 Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-3 (á við um ermar): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað ofan frá og niður, fram og til baka. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp og í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. Að lokum er prjónaður hár kragi í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 53-57-59-61-63-65 lykkjur á hringprjón 8 með DROPS Wish. Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 6-8-9-10-11-12 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 39 lykkjur), 6-8-9-10-11-12 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 19-18-18-19-17-17 cm. Aukið nú út um 1 lykkju í hvorri hlið innan við kantlykkju í garðaprjóni – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 1-2-3-3-5-6 sinnum, stykkið mælist nú ca 20-21-22-23-24-25 cm og það eru 55-61-65-67-73-77 lykkjur í umferð. Í lokin á 2 næstu umferðum eru fitjaðar upp 2-2-2-4-4-6 nýjar lykkjur í hvorri hlið = 59-65-69-75-81-89 lykkjur. Prjónið síðan þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 9-12-14-17-20-24 lykkjur sléttprjón, A.1, 9-12-14-17-20-24 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm (= 27-28-29-30-31-32 cm frá þar sem nýjar lykkjur voru fitjaðar upp í hvorri hlið). Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 7-7-7-9-9-9 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 66-72-76-84-90-98 lykkjur. Í næstu umferð (= frá röngu) er prjónað stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Stykkið mælist alls ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki. ERMI: Ermin er prjónuð neðan frá og upp og í hring á sokkaprjóna. Skiptið yfir á stuttan hringprjón þegar nægilega margar lykkjur eru komnar á prjóninn. Fitjið upp 30-32-34-36-38-40 lykkjur á sokkaprjóna 7 með DROPS Wish. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 8. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-3! Aukið svona út með 8-8-8-8-7½-7½ cm millibili alls 5 sinnum = 40-42-44-46-48-50 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-44-43-42-41-37 cm, fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki (= 6 lykkjur felldar af undir ermi), prjónið síðan ermina fram og til baka. ATH! Það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu. Fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-1-2-2-2-2 sinnum og 1 lykkju 1-1-2-2-3-3 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til ermin mælist ca 52-51-51-51-51-48 cm í öllum stærðum, fellið síðan af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, síðan eru felldar af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 53-52-52-52-52-49 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma, byrjið yst á hvorri öxl og látið miðju 16-16-18-18-20-20 cm vera eftir fyrir kraga. Saumið hliðarsauma í ystu lykkjubogana. HÁR KRAGI: Prjónið upp ca 52-64 lykkjur á stuttan hringprjón 7 í kringum hálsmál (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4) með DROPS Wish. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn. Prjónið stroff í 10 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #fallwavessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-43
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.