Karin Wigert skrifaði:
Jag får inte ihop maskantalet! Efter halsen har jag i stl m 60 m men mönstret kräver 68m. Hur ska jag tänka???
01.02.2025 - 19:26DROPS Design svaraði:
Hej Karin. Efter halskanten har du 60 maskor i storlek M. På första varvet på oket gör du 8 omslag (=första ökning till raglan) så du har nu 60 maskor + 8 omslag på varvet. Mvh DROPS Design
04.02.2025 - 14:50
Lulu skrifaði:
Wie sollen die Abnahmen über dem Muster gestrickt werden?
02.12.2024 - 20:41DROPS Design svaraði:
Liebe Lulu, wenn Sie 1 Masche in A.1/A.2 abnehmen, stricken Sie 2 Maschen rechts zusammen in der Mitte vom Diagram. Viel Spaß beim Stricken!
03.12.2024 - 09:00
Luisa skrifaði:
Wie sollen die Abnahmen über dem Muster gestrickt werden?
01.12.2024 - 16:04DROPS Design svaraði:
Liebe Luisa, stricken Sie einfach 1 Mal 2 Maschen rechts zusammen über die 4 rechten Maschen A.1/A.2. Viel Spaß beim Stricken!
18.12.2024 - 10:04
Puffy Cloud#puffycloudsweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Alpaca Bouclé. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og köðlum. Stærð S - XXXL
DROPS 227-22 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.1/A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (það eiga ekki að myndast göt). Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 52 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 13. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 13. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Allt stykkið er prjónað í 2 þráðum. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 52-54-56-56-62-66 lykkjur á hringprjón 7 með 2 þráðum DROPS Alpaca Bouclé. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið stroff svona í 8 cm. Síðar á að brjóta kantinn tvöfaldan og við frágang þá verður kanturinn í hálsi ca 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-6-8-8-10-6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 56-60-64-64-72-72 lykkjur. Skiptið yfir í hringprjón 8. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 8. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 5-6-7-7-9-9 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 (= 6 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.2 (= 6 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 10-12-14-14-18-18 lykkjur sléttprjón (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 5-6-7-7-9-9 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki). Fyrsta útaukningin fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið. Haldið áfram í sléttprjóni og A.1/ A.2 og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu hvoru megin við A.1/ A.2 eins og útskýrt er að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 14-16-17-19-19-21 sinnum hvoru megin við hvern kaðal. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu eru 168-188-200-216-224-240 lykkjur í umferð. Prjónið án útaukninga þar til stykkið mælist 22-24-25-27-29-31 cm frá eftir kant í hálsmáli, haldið áfram í sléttprjóni og A.1/A.2, í síðustu umferð er fækkað um 1 lykkju yfir hvert A.1/A.2 = 164-184-196-212-220-236 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 23-26-28-31-33-36 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 36-40-42-44-44-46 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 46-52-56-62-66-72 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 36-40-42-44-44-46 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 23-26-28-31-33-36 lykkjur slétt (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 104-116-124-136-148-160 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni, byrjun á umferð er mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hægri hlið. Þegar stykkið mælist 18-18-19-19-19-19 cm frá skiptingu, setjið síðustu 52-58-62-68-74-80 lykkjur á þráð (= framstykki), haldið eftir fyrstu 52-58-62-68-74-80 lykkjum á prjóni (= bakstykki). Stykkið skiptist nú, þannig að það myndist klauf í hliðum. Prjónið síðan fram og bakstykki til baka yfir þessar 52-58-62-68-74-80 lykkjur þannig: Prjónið sléttprjón með 2 lykkjur garðaprjón í hvorir hlið. Þegar stykkið mælist 22-22-23-23-23-23 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 5-5-5-5-5-5 lykkjur jafnt yfir = 57-63-67-73-79-85 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 2 lykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Setjið til baka lykkjur af þræði á hringprjón 8. Prjónið sléttprjón með 2 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 22-22-23-23-23-23 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 5-5-5-5-5-5 lykkjur jafnt yfir = 57-63-67-73-79-85 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 2 lykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 36-40-42-44-44-46 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 8, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-6-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 42-46-48-50-52-54 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-6-8-8 lykkjur undir ermi og byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Haldið áfram með úrtöku með 7-4½-4½-3½-3½-3½ cm millibili alls 5-7-7-8-8-8 sinnum = 32-32-34-34-36-38 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 36-34-34-32-30-29 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 4 cm til loka máls – ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Skiptið yfir á sokkaprjóna 7 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Ermin mælist alls 40-38-38-36-34-33 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #puffycloudsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.