Snow Patches |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Alpaca Bouclé. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, köðlum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL
DROPS 227-21 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.1/A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (það eiga ekki að myndast göt). Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT (ofan frá og niður): Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = Prjónið frá réttu eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkja slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu eftir stroffi í hálsmáli, fellið síðan af fyrir 4-4-4-5-5-5 næstu hnappagötum eins og útskýrt er að ofan með ca 9 cm millibili. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 59 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 8 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 5) = 10,2. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 10. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Allt stykkið er prjónað í 2 þráðum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 59-61-63-63-69-73 lykkjur (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 7 með 2 þráðum DROPS Alpaca Bouclé. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff svona í 8 cm. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 5-7-9-9-11-7 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan) – sjá ÚTAUKNING = 64-68-72-72-80-80 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 8. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 5-6-7-7-9-9 lykkjur sléttprjón (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 (= 6 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.2 (= 6 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 10-12-14-14-18-18 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 5-6-7-7-9-9 lykkjur sléttprjón og endið með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni (= framstykki). Fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið. Fellið síðan af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram í sléttprjóni með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og A.1/A.2 og haldið áfram með útaukning fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Aukið út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) þar til aukið hefur verið út alls 14-16-17-19-19-21 sinnum hvoru megin við hvern kaðal – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu eru 176-196-208-224-232-248 lykkjur í umferð. Prjónið án útaukningar þar til stykkið mælist 22-24-25-27-29-31 cm frá prjónamerki, haldið áfram í sléttprjóni, garðaprjóni og A.1/A.2, í síðustu umferð frá röngu er fækkað um 1 lykkju yfir hvert A.1/A.2 = 172-192-204-220-228-244 lykkjur. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. í næstu umferð er prjónað frá réttu þannig: Prjónið 27-30-32-35-37-40 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 36-40-42-44-44-46 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 46-52-56-62-66-72 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 36-40-42-44-44-46 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 27-30-32-35-37-40 lykkjur sem eftir eru slétt (= framstykki). HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 112-124-132-144-156-168 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 18-18-19-19-19-19 cm frá skiptingu, setjið fyrstu og síðustu 30-33-35-38-41-44 lykkjur á þráð (= framstykkin), haldið eftir miðju 52-58-62-68-74-80 lykkjum á prjóni (= bakstykki). Prjónið síðan fram og til baka yfir þessar lykkjur þannig: Prjónið sléttprjón með 2 lykkjum garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 22-22-23-23-23-23 cm, prjónið 1 umferð frá réttu þar sem aukið er út um 5-5-5-5-5-5 lykkjur jafnt yfir = 57-63-67-73-79-85 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 2 lykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Setjið til baka fyrstu 30-33-35-38-41-44 lykkjur af þræði á prjóninn og prjónið sléttprjón með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni eins og áður og 2 lykkjur garðaprjón í hlið. Þegar stykkið mælist 22-22-23-23-23-23 cm prjónið 1 umferð frá réttu þar sem aukið er út um 1-2-2-1-2-1 lykkjur jafnt yfir = 31-35-37-39-43-45 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 2 lykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið laust af með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Setjið til baka síðustu 30-33-35-38-41-44 lykkjur af þræði á prjóninn og prjónið sléttprjón með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni eins og áður og 2 lykkjur garðaprjón í hlið. Þegar stykkið mælist 22-22-23-23-23-23 cm prjónið 1 umferð frá réttu þar sem aukið er út um 1-2-2-1-2-1 lykkjur jafnt yfir = 31-35-37-39-43-45 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 2 lykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið laust af með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 36-40-42-44-44-46 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 8, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-6-6-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 42-46-48-50-52-54 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-6-8-8 lykkjur undir ermi og byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Haldið áfram með úrtöku með 7-4½-4½-3½-3½-3½ cm millibili alls 5-7-7-8-8-8 sinnum = 32-32-34-34-36-38 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 36-34-34-32-30-29 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 4 cm að loka máli – ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Skiptið yfir á sokkaprjóna 7 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Ermin mælist alls 40-38-38-36-34-33 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Kantur í hálsmáli er brotinn saman og saumaður eins og tvöfaldur kantur, eða er notaður eins og hár kragi. Ef flíkin á að vera með tvöfaldan kant í hálsmáli er það gert þannig: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsi. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið tölurnar í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (10)
Marie Anne Toyre wrote:
Bonjour\\r\\nconcernant le modele 227-21 Snow Patches\\r\\nil est noté 500 g de laine Drops Alpaca bouclé en 2 fils pour la taille .\\r\\nest ce que je commande 500g au total ou faut il que je double la quantité du fait que l on double le fil?\\r\\nMerci
26.10.2023 - 21:16DROPS Design answered:
Bonjour Mme Toyre, en taille M, il faut 500 g en DROPS Alpaca Bouclé et vous tricotez ensuite avec 2 fils, ne doublez pas la quantité de fils, c'est déjà pris en compte que l'on tricote en double. Bon tricot!
27.10.2023 - 09:39Juliana wrote:
What is the meaning of band stitches? I dont't know how to do it...
02.12.2022 - 12:41DROPS Design answered:
Dear Juliana, are you talking about the Incrase tip? Then mayb this lesson might help you - you have to take the total number of stitches on needle but remove the stitches for the front band since you shouldn't incrase over these stitches. Happy knitting!
02.12.2022 - 15:08Phyllis Gulliver wrote:
Im doing snow patches 227-21 and tryinh to figure out which yarn is best for he price if i use drops alaska its from group C so if i got 12 balls would i just use one strand to knit the size large
12.11.2022 - 19:35DROPS Design answered:
Dear Phyllis, Alaska is a group C yarn, like Air, so you will still need to work with 2 strands of yarn. Also, the texture will be different if you use a thread different from the original garment, so that's something else to take into account. Happy knitting!
13.11.2022 - 23:53Phyllis Gulliver wrote:
Sorry i find this confusing but if i was to knit Snow Patches size Large how many balls of DROPS wish would i need and also when i order wool is there a way to see the amount in Canadian currency
10.11.2022 - 05:04DROPS Design answered:
Hi Phyllis, If you are working with Drops Wish, this is from yarn group E. You will still need 550 g (11 skeins) but will work with a single strand rather than 2 strands. As regards buying the yarn, there are outlets for Drops Yarns in Canada which will give you the Canadian prices. Happy crafting!
10.11.2022 - 06:56Phyllis Gulliver wrote:
I am planning on knitting Snow Patches 227 21 in size large how many balls of the Boucle do i need and also if i did it with Drops Air do i still use 2 strands and how much yarn
08.11.2022 - 01:55DROPS Design answered:
Dear Mrs Gulliver, you will find the required amount of yarn in each size under header - in L you will need 550 g DROPS Alpaca Bouclé / 50 g a ball = 11 balls - and you should work with 2 strands - if you like to use Air you can use our yarn converter to let the new amount of yarn calculating and you should also work with 2 strands. Happy knitting!
08.11.2022 - 09:06Marijke Dreesen wrote:
Kan ik ook het patroon Snow Patches by DROPS Design van onder naar boven breien? Marijke,
04.01.2022 - 20:44DROPS Design answered:
Dag Marijke,
Helaas is dit patroon alleen beschikbaar om van boven naar beneden te breien.
06.01.2022 - 09:40Anna wrote:
Hello! Thank you for your amazing patterns! I have a question though. For the decrease at the end of the yoke, where specifically do I have to decrease in each A1/A2? Also, is there a specific place the cables should be after dividing fronts/sleeves/back pieces?
23.12.2021 - 17:19DROPS Design answered:
Dear Anna, you decrease in the sections in stocking stitch. The cables are only worked in the raglan so there is no specific place they should be in the body later on. Happy knitting!
31.12.2021 - 19:26Sylviane wrote:
Juste encore une petite question Pourquoi faut il séparer le dos et les devants à la fin de l’ouvrage , Est ce que cela apporte quelque chose de plus ?
08.11.2021 - 19:17DROPS Design answered:
Bonjour Sylviane, je ne comprends pas l'idee, j'ai envoye cette question a design team et j'attends la reponse. Verifiez la page du modele s'il y a une correction. Bon tricot!
09.11.2021 - 08:13Sylviane wrote:
Bonjour , J’aimerais savoir si ce modèle est ouvert sur les côtés , car au niveau des photos on ne le distingue Pas bien et au niveau de l’assemblage , il n’est pas indiqué d’assembler les côtés .
08.11.2021 - 09:57DROPS Design answered:
Bonjour Sylviane, ce modèle n'est pas ouvert sur les côtés. Vous devez coudre les côtés ensemble. On doit ajouter cette precision dans les explications. Merci. Bon tricot!
08.11.2021 - 10:12Els Van Oostrom - Parijs wrote:
Kan het vest DROPS 227-21 - DROPS Alpaca Bouclé (11 st) ook met rechte breinaalden worden gebreid ipv met Rondbreinaalden?
24.08.2021 - 18:20DROPS Design answered:
Dag Els,
Helaas is dit patroon daar niet zo geschikt voor. Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier.
03.09.2021 - 09:55