Deborah Gibson skrifaði:
I am confused regarding the decreases for the sleeves. “AT THE SAME TIME cast off at the beginning of each row 2 stitches 2 times and 1 stitch 5 times [size L] on each side”. Does this mean: decrease 2 stitches on the purl side, 2 stitches on the knit side, then 1 stitch at the beginning only or 1 stitch at each end of the row x 5 times? Am I decreasing 9 stitches or 14?
07.03.2026 - 22:47DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Gibson, you will decrease as explained under DECREASE TIP-2: decrease 2 sts in each side (back piece) by wokring: 1 edge st, 2 sts stocking st, A.1 (= at the beg of the row) and ending the row with A.1, 2 sts in stocking st and 1 edge stitch = you have decreased 2 sts on each side, work this decrease row every 4th row (= every other row from RS) a total of 4 times = you have decreased 4 sts x 4 = 16 sts in total, there were 82 sts - 16 = 66 sts remain. Happy knitting!
09.03.2026 - 09:04
Ellis skrifaði:
Ik snap het al. Ik brei niet met rondbrei naalden. Dat was het probleem. Dank je.
07.03.2026 - 17:05DROPS Design svaraði:
Dag Ellis,
👍Veel breiplezier.
09.03.2026 - 14:11
Ellis skrifaði:
Waarom staat er dat ik bij aanvang mindering mouw in achterpand twee keer moet minderen en de steken blijven gelijk. Of staat het et per ongeluk dubbel?
06.03.2026 - 22:42DROPS Design svaraði:
Dag Ellis,
Bij aanvang van het achterpand heb je 70-76-82-90-96-104 steken en na het minderen heb je 62-64-66-68-70-72 steken. Er staat niet iets dubbel in.
07.03.2026 - 10:44
Beate skrifaði:
Hallo, ich habe eine Frage: ich verstehe nicht genau, wie das Abnehmen A1, A2, A3 funktioniert. In der Hinreihe (rechts) werden drei Maschen LINKS zusammengestrickt ? Wieso nicht 2x2 Maschen (rechts) zusammenstricken? Und warum (in A2, 3) erst zwei Maschen abnehmen (3 Maschen LINKS zusammenstricken) und dann wieder eine zunehmen ? Kann mir jemand das erklären ? Vielen Dank im Voraus !!
16.02.2026 - 00:11
Ann Dahl skrifaði:
Hej Jag har stickat tröjan Walk with nature och älskar garnkombinationen. Nu vill jag sticka en liknande baströja i herrmodell i slätstickning och helst med dubbel halskant med en tråd soft tweed och en tråd kid mohair. Önskar förslag på beskrivning. Tack på förhand.
09.01.2026 - 18:08
Mo skrifaði:
Hallo, an welcher Stelle benötigt man denn das zweite Garn (Kid Silk)? Habe dazu in der Anleitung nichts gefunden. Viele Grüße
30.12.2025 - 19:10DROPS Design svaraði:
Hallo Mo, Kid-Silk wird die ganze Zeit mit verstrickt, d.h. Sie stricken mit 2 Fäden, also 1 Faden Soft-Tweed und 1 Faden Kid-Silk. Viel Spaß beim Stricken!
24.02.2026 - 21:31
Sandra skrifaði:
Me podrían explicar detalladamente cómo hacer la disminución para las sisas cuántos puntos antes comenzar y cuántos después y de qué manera realizarlas gracias
01.08.2025 - 03:21DROPS Design svaraði:
Hola Sandra, las disminuciones para las sisas se trabajan en los extremos de la fila y se trabajan según TIP-2 PARA LAS DISMINUCIONES (sisas y cuello). Trabajar 1 punto orillo en punto musgo, 2 puntos en punto jersey, A.1 sobre los siguientes 3 puntos (este diagrama es la disminución de la sisa), trabajas el resto de la fila hasta que queden 6 puntos, A.1 sobre los siguientes 3 puntos (= 2 puntos disminuidos), 2 puntos en punto jersey, 1 punto orillo en punto musgo. Esta disminución se trabaja cada 4ª fila y se trabaja en total el número de veces indicado para tu talla. Después se pasa a disminuir solo 1 punto en las tallas S, XL y XXL, trabajando A.2 en vez de A.1.
05.08.2025 - 13:17
Venus skrifaði:
Hola, mi pregunta es si la labor se tejer en redondo de abajo arriba como se cuando llegó a la sisas, cual es la parte de atrás y la de adelante. Espero que me respondan gracias.
16.02.2025 - 00:07DROPS Design svaraði:
Hola Venus, si las dos son iguales da igual cuál elijas como delantero y como espalda; puedes ver cuál ha quedado mejor trabajada (cuál se ven más bonitos los puntos) y elegir ese como delantero.
17.02.2025 - 01:33
Martine Malbranque skrifaði:
Bonjour seraist'il possible d'obtenir se modéle avec des aiguilles droites n'étant pas adepte de circulaires merçi !!
03.01.2025 - 14:58
Romi skrifaði:
How many stitches are there in the sleeves at the end?
27.11.2024 - 00:35DROPS Design svaraði:
Dear Romi, the number of stitches depends on your tension in height, just make sure to cast off the number of stitches requested for your size, make sure to cast off the same number of stitches on each side (especially when casting off 2 sts on each side until sleeve measures 54, 55 or 56 cm); the measurements is here more important than the remaining number of stitches. Happy knitting!
27.11.2024 - 07:21
Walk with Nature#walkwithnaturesweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Soft Tweed og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með tvöföldum kanti í hálsmáli og köntum í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 227-46 |
||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR (á við um úrtöku fyrir handveg og hálsmál – sjá ÚRTAKA-2): Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir) : Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 184 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 32) = 5,8. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna ca 5. og 6. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um úrtöku fyrir handveg og hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 yfir næstu 3 lykkjur (= 2 lykkjur færri). FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.1 yfir næstu 3 lykkjur (= 2 lykkjur færri), prjónið 2 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjón, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 yfir næstu 3 lykkjur (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.3 yfir næstu 3 lykkjur (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig til loka máls. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón neðan frá og upp þar sem ermakúpan byrjar, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna að loka máli. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli í stroffprjóni. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 184-196-216-236-256-280 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 32-32-36-40-44-48 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 152-164-180-196-212-232 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 76-82-90-98-106-116 lykkjur (= í hliðum á fram- og bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað þegar fella á af fyrir handveg. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm, fellið af fyrir handveg þannig: Byrjið 3-3-4-4-5-6 lykkjum á undan prjónamerki, fellið af 6-6-8-8-10-12 lykkjur fyrir handveg, prjónið 70-76-82-90-96-104 lykkjur sléttprjón, fellið af 6-6-8-8-10-12 lykkjur fyrir handveg (3-3-4-4-5-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) og prjónið 70-76-82-90-96-104 lykkjur sléttprjón. Bakstykki og framstykki er nú prjónað hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 70-76-82-90-96-104 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið -sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir handveg í hvorri hlið eins og útskýrt er að neðan – sjá ÚRTAKA-2: Fækkið um 2 lykkjur í hvorri hlið í 4. hverri umferð alls 1-3-4-5-6-8 sinnum. Fækkið síðan um 1 lykkju í hvorri hlið í 4. hverri umferð alls 2-0-0-1-1-0 sinnum = 62-64-66-68-70-72 lykkjur. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fellið af miðju 22-22-22-24-24-24 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 2 lykkju við háls – munið eftir ÚRTAKA-2 = 18-19-20-20-21-22 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm (stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm frá þar sem úrtaka fyrir handveg byrjaði). Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 70-76-82-90-96-104 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir handveg í hvorri hlið eins og útskýrt er að neðan – sjá ÚRTAKA-2: Fækkið um 2 lykkjur í hvorri hlið í 4. hverri umferð alls 1-3-4-5-6-8 sinnum. Fækkið síðan um 1 lykkju í hvorri hlið í 4. hverri umferð alls 2-0-0-1-1-0 sinnum = 62-64-66-68-70-72 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-48-49-51-52-54 cm, setjið miðju 14-14-14-16-16-16 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 2 lykkjur við háls – munið eftir ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 3 sinnum = 18-19-20-20-21-22 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm (stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm frá þar sem úrtaka fyrir handveg byrjaði). Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 44-48-48-52-52-56 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6-8-6-8-8-10 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA-1 = 38-40-42-44-44-46 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað þegar auka á út mitt undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 9-8-10-10-10-7 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 5-4½-3½-3-2½-2½ cm millibili alls 8-9-10-11-13-14 sinnum = 54-58-62-66-70-74 lykkjur. Þegar ermin mælist 46-46-45-44-43-41 cm, prjónið næstu umferð þannig: Byrjið 3-3-4-4-5-6 lykkjum á undan prjónamerki, fellið af 6-6-8-8-10-12 lykkjur, prjónið sléttprjón út umferðina = 48-52-54-58-60-62 lykkjur. Prjónið síðan ermakúpu þannig: Byrjið frá röngu og prjónið sléttprjón fram og til baka. JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-1-2-2-2-3 sinnum og 1 lykkja 4-4-5-5-6-7 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þar til stykkið mælist 54-54-55-55-55-56 cm. Fellið síðan af 3 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 55-55-56-56-56-57 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni meðfram handveg. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp ca 76 til 88 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar kanturinn mælist 7-7-7-8-8-8 cm, aukið allar 2 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið = ca 95 til 110 lykkjur. Haldið áfram með stroff með 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið þar til kanturinn í hálsmáli mælist 10-10-10-11-11-11 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Brjótið niður stroffið að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi ekki stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #walkwithnaturesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-46
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.