DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Straight A

Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og vösum. Stærð S - XXXL.

DROPS 227-38
DROPS Design: Mynstur ai-357
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
350-400-400-450-500-500 g litur 02, hveiti

DROPS TALA, Marble NR 629: 6-6-6-7-7-7 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig jölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 5,8.
Í þessu dæmi er lykkjum fjölgað með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjur slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist ca 1 cm á eftir kanti í hálsi. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 9½-9½-10-9-9-9 cm millibili.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna ofan frá og niður. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður.
Lykkjur eru auknar út á berustykki. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað fram og til baka á hringprjóna, ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Annar helmingurinn af báðum vösunum er prjónaður á undan berustykkinu, þannig að hægt sé prjóna hann í stykkið. Vasinn er prjónaður fram og til baka og saumaður saman eins og útskýrt er í uppskrift.

VASI (fyrri helmingur):
Fitjið upp 24-24-26-26-28-28 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á sokkaprjóna 5 með DROPS Air. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 11-11-12-12-13-13 cm fellið kantlykkjur af = 22-22-24-24-26-26 lykkjur. Setjið lykkjur á þráð. Prjónið annan vasa alveg eins. Geymið vasana og prjónið berustykkið. Hinn helmingurinn af vösunum tveimur eru prjónaðir eftir að peysan hefur verið prjónuð til loka og frágangur er í lokin.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 84-92-96-100-104-108 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan næstu umferð þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, stroff (= 2 lykkjur snúnar slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Frá röngu er prjónað þannig:
5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, stroff (= 2 lykkjur snúnar brugðið, 2 lykkjur slétt) þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Prjónið stroff í 9 cm (= kantur í hálsmáli).

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að framan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Fellt er af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 1-3-4-15-16-17 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 85-95-100-115-120-125 lykkjur.

Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 3 cm frá prjónamerki. Nú er prjónað þannig – frá réttu: 5 lykkjur garðaprjón (= kantlykkjur að framan), A.1 yfir næstu 75-85-90-105-110-115 lykkjur (= 15-17-18-21-22-23 mynstureiningar með 5 lykkjum), endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka hafa verið auknar út 30-34-36-42-44-46 lykkjur = 115-129-136-157-164-171 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni þar til stykkið mælist 9-9-10-10-11-11 cm frá prjónamerki.

Prjónið nú þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, 0-2-1-1-2-1 lykkjur slétt, A.1 yfir næstu 105-115-125-145-150-160 lykkjur (= 21-23-25-29-30-32 mynstureiningar með 5 lykkjum), prjónið 0-2-0-1-2-0 lykkjur slétt og endið með 5 lykkjur garðaprjón. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka hafa verið auknar út 42-46-50-58-60-64 lykkjur = 157-175-186-215-224-235 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 15-16-17-18-19-20 cm frá prjónamerki.

Prjónið nú þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni,1-0-1-0-2-0 lykkjur slétt, A.1 yfir næstu 145-165-175-205-210-225 lykkjur (= 29-33-35-41-42-45 mynstureiningar með 5 lykkjum), 1-0-0-0-2-0 lykkjur slétt og 5 lykkjur garðaprjón. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka hafa verið auknar út 58-66-70-82-84-90 lykkjur = 215-241-256-297-308-325 lykkjur. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 27-29-26-17-26-29 lykkjur jafnt yfir = 242-270-282-314-334-354 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni yfir kanta að framan þar til stykkið mælist ca 20-22-23-25-27-29 cm frá prjónamerki.

Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 39-44-45-49-54-58 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 68-78-80-88-98-106 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 39-44-45-49-54-58 lykkjur sem eftir eru slétt (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 158-178-186-202-226-246 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan.
Prjónið þar til stykkið mælist 13-14-15-16-17-18 cm frá skiptingu. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið fyrstu 11-11-11-13-13-13 lykkjur eins og áður, setjið næstu 22-22-24-24-26-26 lykkjur á þráð (hinn helmingurinn af vasanum er prjónaður aðeins síðar), prjónið 22-22-24-24-26-26 lykkjur frá öðrum vasanum (passið uppá að prjóna áfram frá réttu vasanum), prjónið þar til eftir eru 33-33-35-37-39-39 lykkjur í umferð, setjið næstu 22-22-24-24-26-26 lykkjur á þráð (hinn helmingurinn af vasanum er prjónaður aðeins síðar), prjónið 22-22-24-24-26-26 lykkjur frá hinum vasanum (passið uppá að prjóna áfram frá réttu á vasanum) og prjónið síðustu 11-11-11-13-13-13 lykkjurnar í umferð eins og áður.
Prjónið þar til stykkið mælist 24-24-25-25-25-25 cm. Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú á að auka út lykkjur til að stroffið sem á að prjóna dragi ekki stykkið saman.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 34-34-38-42-46-50 lykkjur jafnt yfir = 192-212-224-244-272-296 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið næstu umferð þannig – frá röngu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur snúnar brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Frá réttu er prjónað þannig:
5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur snúnar slétt, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Prjónið stroff svona í 12 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 48-52-56-64-64-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 8-5-3-2½-2-2 cm milliblil alls 4-5-7-10-10-11 sinnum = 46-48-50-52-54-56 lykkjur. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 32-30-30-29-28-26 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 10 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út um 6-4-6-4-6-4 lykkjur jafnt yfir = 52-52-56-56-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur snúnar slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING!
Ermin mælist ca 42-40-40-39-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

VASI:
Prjónið fram og til baka á 2 sokkaprjóna.
Setjið 22-22-24-24-26-26 lykkjur af þræði á hægra framstykki á sokkaprjóna 5. Í fyrstu umferð er fitjuð upp 1 kantlykkja í hvorri hlið = 24-24-26-26-28-28 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til vasinn mælist 11-11-12-12-13-13 cm, fellið laust af.
Prjónið vasann á vinstra framstykki á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið vasana innan við 1 kantlykkju í kringum allan vasann. Festið síðan vasana niður að innanverðu á peysu með nokkrum smáum sporum í bæði neðstu hornin (það á ekki að sjást frá réttu á peysu).
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = prjónið 1 lykkju slétt án þess að sleppa lykkjunni af prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt í sömu lykkju, en í aftari lykkjubogann. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat (= 2 lykkjur fleiri)
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-38

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (5)

country flag Lisa wrote:

Jag har upptäckt ett fel i mönstret :när man kommer till resåren i nederkanten på koftan, står det på räta varvet : "två vridna rätmaskor, två rätmaskor" . Det ska väl vara "två vridna rätmaskor, två aviga maskor".

15.02.2023 - 09:09

country flag Ann wrote:

Var finns diagram A. ? Hittar ingen bild eller diagram

16.09.2021 - 19:48

DROPS Design answered:

Hej Ann. Du hittar diagram A.1 längst ner på mönstret, till höger om måttskissen. Mvh DROPS Design

17.09.2021 - 09:31

country flag Alicia wrote:

Ya lo localicé , muchas gracias

05.09.2021 - 15:53

country flag Alicia wrote:

Hola , mucha salud gracias por tan hermosos tejidos. Disculpen no encuentro el diagrama A 1

05.09.2021 - 15:49

country flag Alena wrote:

Krásný kardigan

03.08.2021 - 17:56