Walter Suitner skrifaði:
Sehr netter Pullunder, gefällt mir sehr
15.05.2025 - 05:05
J E Ford skrifaði:
Do you have an adult version of this please. Tks
22.10.2024 - 17:45DROPS Design svaraði:
Hi J E Ford, you can choose some very similar from our adult patterns here . Happy knitting!
22.10.2024 - 20:54
Geeraerts Nicole skrifaði:
Waarom zijn de patronen bij jullie altijd voor in het rond te breien, of van boven naar onder Ik vind dat spijtig ik ben gewoon om de patronen gewoon te breien met 2 breinaalden Grts nicole
14.10.2024 - 10:36DROPS Design svaraði:
Dag Nicole,
De patronen komen uit Noorwegen en daar is men van oorsprong gewend om in de rondte te breien, van boven naar beneden. (Hierdoor lopen de Noorse ingebreide patronen mooi door in de rondte op de pas).
Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier. Dit is niet voor alle patronen geschikt, maar misschien heb je hier wat aan.
19.10.2024 - 11:07
Camila skrifaði:
Gracias por los trabajos que presentan, tengo una duda con respecto al grosor de la lana, en la fotografía no se ve tan grueso
17.06.2022 - 08:18DROPS Design svaraði:
Hola Camila, el grosor de la lana es correcto. Es una lana de grupo E, de 50g/50m.
18.06.2022 - 15:36
Iris Frohwitter skrifaði:
Hallo Drops-Team Vielen vielen Dank für die tollen Anleitungen! (Das muss einmal gesagt werden!) Ich möchte diesen Pullunder auch für mich stricken (Damen Größe M). Hätten Sie einen Tipp, wie ich die Anleitung "vergrößern" kann? Vielen Dank und viele Grüße
19.10.2021 - 21:02DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Frohwitter, vielleicht können Sie sich von Pullunder mit einem Garn der Garngruppe E inspirieren? Gerne können Sie auch die Resultate filtren und z.B. Maschenprobe anstatt Garngruppe wählen. Viel Spaß beim stricken!
20.10.2021 - 07:59
Smooth Stone Vest#smoothstonevest |
|
![]() |
![]() |
Prjónað vesti / slipover börn úr DROPS Wish. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með köntum í stroffprjóni og háum tvöföldum kraga. Stærð 2-12 ára.
DROPS Children 40-23 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handveg. Síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig. Að lokum eru prjónaðar kantar í stroffprjóni í kringum hálsmál og í kringum báða handvegi. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 64-68-72-76-80-84 lykkjur á hringprjón 8 með DROPS Wish. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 9. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 16-18-21-24-27-30 cm. Fellið nú af lykkjur fyrir handveg þannig: Fellið af fyrstu 3 lykkjur í umferð, prjónið næstu 26-28-30-32-34-36 lykkjur, fellið af næstu 6 lykkjur, prjónið næstu 26-28-30-32-34-36 lykkjur og fellið af síðustu 3 lykkjur í umferð = 26-28-30-32-34-36 lykkjur á bakstykki og framstykki. Hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig. FRAMSTYKKI: Prjónið sléttprjón fram og til baka – JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 1 lykkju 3 sinnum = 20-22-24-26-28-30 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 26-29-33-36-40-43 cm. Í næstu umferð eru miðju 6-6-6-6-8-8 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig (= 7-8-9-10-10-11 lykkjur á hvorri öxl). Haldið áfram í sléttprjóni og fækkið lykkjum í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 1 lykkju 1-2-2-2-2-2 sinnum = 6-6-7-8-8-9 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 33-36-40-44-48-52 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. BAKSTYKKI: Prjónið sléttprjón fram og til baka – JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 1 lykkju 3 sinnum = 20-22-24-26-28-30 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 30-33-37-41-45-49 cm. Í næstu umferð eru felldar af miðju 6-8-8-8-10-10 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig (= 7-7-8-9-9-10 lykkjur á hvorri öxl). Haldið áfram í sléttprjóni. Í næstu umferð frá hálsmáli er fækkað um 1 lykkju í byrjun á umferð = 6-6-7-8-8-9 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 33-36-40-44-48-52 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma kant í kant í ystu lykkjubogana – þannig að saumurinn verði ekki þykkur. KANTUR Í HANDVEG: Byrjið frá réttu neðst í handvegi og prjónið upp ca 40 til 48 lykkjur innan við 1 kantlykkju í kringum handveg, á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 8 með DROPS Wish (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Passið uppá að kanturinn dragist ekki saman, en hann má heldur ekki vera með of margar lykkjur svo að kanturinn beygist út. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 ½ cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING! Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp ca 32 til 52 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 8 með DROPS Wish (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar kanturinn mælist ca 11 cm. – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING! FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #smoothstonevest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 40-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.