Eugenia wrote:
Hola !!! Seguí las instrucciones muy cuidadosamente y el resultado fue un enorme pero enorme chaleco para mi nieto que solo tiene 3 años !!! Creo que a mí también me hubiera quedado grande. Hay alguna forma de obtener las instrucciones correctas ??? TIA
21.09.2023 - 21:32DROPS Design answered:
Hola Eugenia, las instrucciones son correctas. En el esquema de medidas, bajo las instrucciones del patrón, puedes ver las medidas de las diferentes partes de la labor en cm. Si las medidas no coinciden con tu prenda, comprueba que hayas mantenido la tensión del tejido indicada a lo largo de la labor. Si tienes dudas en una sección concreta, puedes indicárnoslo aquí y trataremos de solucionar tus dudas.
24.09.2023 - 20:36Francesca wrote:
Sinistro essendo speculare come devo fare ? Invece di intrecciare faccio una diminuzione a fine giro invece che all inizio? Non so se mi sono spiegata . Grazie mille
10.10.2022 - 16:31DROPS Design answered:
Buonasera Francesca, a quale parte del modello sta facendo riferimento? Buon lavoro!
10.10.2022 - 19:10Anja Adams wrote:
Ik begrijp niet hoe ik dit moet afkanten: “ kant af voor het armsgat op het begin van elke naald vanaf de zijkant als volgt: 2-1-1-1-1-1 keer 2 steken en 3-3-3-4-4-4 keer 1 steek.” En deze: “ Minder 1 steek op iedere 2e naald (elke naald aan de goede kant) 9-9-9-9-10-10 keer, dan iedere 4e naald (iedere andere naald aan de goede kant) 1-1-2-2-2-2 keer.”
19.01.2022 - 22:41DROPS Design answered:
Dag Anja,
De reeks getallen correspondeert met de maten, dus als je bijvoorbeeld maat s breit neem je het eerste getal. Je kant dan eerst 2 keer 2 steken af aan elke kant van het armsgat. Dit is dus allemaal bij het armsgat. Daarnaast minder je tegelijkertijd steken voor de v-hals en dit doe je dus midden voor bij de hals. Bovenaan staat beschreven hoe je de minderingen precies maakt en in de beschrijving staat aangegeven hoeveel minderingen je moet maken voor elke maat.
21.01.2022 - 08:50
Spring Creek Vest |
|
|
|
Prjónað vesti fyrir börn úr DROPS Air. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með v-hálsmáli og köntum í stroffprjóni. Stærð 3 til 14 ára.
DROPS Children 40-25 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir) : Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 140 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þessum 138 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 14) = 9,9. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna ca 9. og 10. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um v-hálsmál): Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 1 KANTLYKKJU Í GARÐAPRJÓNI ÞANNIG: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 1 KANTLYKKJU Í GARÐAPRJÓNI ÞANNIG: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju, prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, neðan frá og upp. Lykkjur eru felldar af fyrir handveg. Síðan eru framstykkin og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvert fyrir sig. Stykkið er síðan saumað saman á öxlum. Að lokum er prjónaður kantur í stroffprjóni í kringum báða handvegina og kantur í meðfram framstykkjum og í kringum kant í hálsi aftan í hnakka. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 140-144-152-160-168-176 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 14-14-14-14-18-18 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 126-130-138-146-150-158 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 22-25-28-31-33-35 cm, fellið af fyrir handveg, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 29-30-32-34-35-37 lykkjur (= hægra framstykki), fellið af 6 lykkjur fyrir handveg, prjónið 56-58-62-66-68-72 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), fellið af 6 lykkjur fyrir handveg og prjónið eins og áður yfir þær 29-30-32-34-35-37 lykkjur sem eftir eru (= vinstra framstykki). Setjið lykkjur frá hægra framstykki og bakstykki á þráð eða hjálparprjón og prjónið vinstra framstykki eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-1-1-1-1-1 sinnum og 1 lykkju 3-3-3-4-4-4 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 26-29-32-35-37-39 cm, byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli við miðju að framan – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið um 1 lykkju fyrir v-hálsmáli í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 9-9-9-9-10-10 sinnum og síðan í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 1-1-2-2-2-2 sinnum. Eftir allar úrtökur fyrir handveg og hálsmáli eru 12-15-16-17-17-19 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 40-44-48-52-55-58 cm. Fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Setjið 29-30-32-34-35-37 lykkjur af þræði / hjálparprjóni í annarri hlið á stykki á hringprjón 5. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-1-1-1-1-1 sinnum og 1 lykkju 3-3-3-4-4-4 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 26-29-32-35-37-39 cm, byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli við miðju að framan – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið um 1 lykkju fyrir v-hálsmáli í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls alls 9-9-9-9-10-10 sinnum og síðan í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 1-1-2-2-2-2 sinnum. Eftir allar úrtökur fyrir handveg og hálsmáli eru 12-15-16-17-17-19 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 40-44-48-52-55-58 cm. Fellið af. BAKSTYKKI: Prjónið þær 56-58-62-66-68-72 lykkjur af þræði / hjálparprjóni á hringprjón 5. Prjónið sléttprjón fram og til baka og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-1-1-1-1-1 sinnum og 1 lykkju 3-3-3-4-4-4 sinnum = 42-48-52-54-56-60 lykkjur. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 38-42-46-50-53-56 cm, fellið af miðju 16-16-18-18-20-20 lykkjurnar af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 12-15-16-17-17-19 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 40-44-48-52-55-58 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina alveg eins. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. KANTUR Í HANDVEGI: Byrjið frá réttu, í botninum á öðrum handveginum og prjónið upp lykkjur innan við 1 kantlykkju ca 64-68-72-76-80-84 lykkjur í kringum handveg á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 með DROPS Air – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2-2-2-3-3-3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Prjónið alveg eins í kringum hinn handveginn. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN OG KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu neðst á hægra framstykki og prjónið upp lykkjur innan við 1 kantlykkju ca 79-87-91-99-107-111 lykkjur meðfram öllu framstykkinu og kanti í hálsi að miðju aftan í hnakka á hringprjón 4 með DROPS Air – lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4 + 3. Það er mikilvægt að stroffið verði ekki of laust með of margar lykkjur, en heldur ekki of stíft með of fáar lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig (þ.e.a.s. frá miðju að aftan): 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka. Þegar kanturinn mælist 1-1-1-1½-1½-1½ cm, fellið af fyrir 4-4-4-5-5-5 hnappagötum jafnt yfir. Fellt er af fyrir hverju hnappagati í brugðinni einingu (séð frá réttu) með því að slá 1 sinni uppá prjóninn og síðan að prjóna 2 lykkjur brugðið saman. Efsta hnappagatið á að vera staðsett ca 1 cm fyrir neðan þar sem úrtaka fyrir v-hálsmáli byrjaði og neðsta hnappagatið á að vera staðsett ca 5 cm frá neðri kanti. Haldið áfram með stroff þar til kanturinn mælist ca 3 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN OG KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu mitt aftan í hnakka og prjónið upp lykkjur innan við 1 kantlykkju ca 79-87-91-99-107-111 lykkjur meðfram kanti í hálsi aftan í hnakka og niður meðfram öllu framstykkinu á hringprjón 4 með DROPS Air – lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4 + 3 – stilltu af að þú hafir jafn margar lykkjur á hægri og vinstri kanti að framan / kanti í hálsmáli. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig (þ.e.a.s. frá neðri kanti): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til kanturinn mælist ca 3 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. Saumið kantinn í hálsi saman mitt aftan í hnakka. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |